Morgunblaðið - 09.10.2014, Page 4

Morgunblaðið - 09.10.2014, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 2014 látið drauminn rætast þurfti að safna 800 þúsund krónum. Meðal fjáröflunarleiða Brands voru mál- verk sem hann málaði sjálfur og seldi hann tvö verk. Er meðal ann- ars á dagskrá hjá honum að opna sína fyrstu málverkasýningu á listahátíð í Vík í Mýrdal sem fram fer um helgina. Verk hans eru flest landslagsverk. Í gegnum fjáröfl- unarvefsíðuna Karolinafund náði Brandur svo að fjármagna kaup á dróna og hyggst hann nota myndir úr honum til þess að mála eftir. Einskonar loftmyndir. Hann stefnir á að halda aðra sýningu í janúar þar sem hann mun sýna verk sem gerð verða eftir myndum úr drónanum. Brandur hafði aldrei málað áður en hann veiktist og lamaðist. Hann hefur náð mikilli færni með því að mála með munninum. „Það var eig- inlega út af Eddu Heiðrúnu (Back- man) sem ég byrjaði á þessu,“ segir hann. Morgunblaðið/Árni Sæberg Tekst á loft Brandur Bjarnason Karlsson málaði meðal annars myndir til að fjármagna kaup á flugstól sem hann mun nota til þess að fara í svifflug. Hann heldur sína fyrstu málverkasýningu um helgina á Vík í Mýrdal. „Geggjað að fá að fljúga“  Stefnir á að endurvekja drauma úr æskunni  Prófar flug- stólinn á morgun  Fjármagnar flugdrauminn með listinni Flugstóll Margir komu að söfnun flugstóls sem kostaði um 800 þúsund krónur. Hér má sjá stólinn þegar hann var í hönnunarferli hjá Össuri. Svifflug » Brandur Bjarnason Karlsson stefnir að því að fara í svifflug um helgina. » Brandur er lamaður fyrir neðan háls en hefur safnað fyrir sérútbúnum stól sem ger- ir það að verkum að hann get- ur drauminn rætast. » Brandur fjármagnaði kaupin m.a. með því að mála. Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Brandi Bjarnason Karlssyni gefst loks tækifæri til að uppfylla draum sinn um að svífa um loftin blá í svif- vængjaflugi. Ástæðan er sú að nú er lokið söfnun fyrir sérútbúnum flug- stól sem nota má í flugið. Brandur þarf á stólnum að halda því hann er lamaður fyrir neðan háls, líkt og persónan Philippe í kvikmyndinni Intouchables, en hugmyndina fékk Brandur eftir að hafa horft á Phil- lipe fara í svifvængjaflug í kvik- myndinni hugljúfu. Hann segir að undirliggjandi sé mikill spenningur. „Með þessu er ég að vonast til þess að endurvekja drauma frá því í æsku þegar mann dreymdi um að fljúga,“ segir Brandur. Margar hættur í heiminum Margir hafa komið að söfnuninni en Össur á að mestu heiðurinn af hönnun stólsins. Ef veður leyfir hyggst Brandur fljúga ásamt kenn- ara sínum Gísla Steinari Jóhanns- syni um helgina. „Maður heldur væntingum niðri þangað til það kemur að þessu en auðvitað er geggjað að fá að fljúga,“ segir Brandur. Hann segist hvergi bang- inn. „Það er fagmaður með mér og maður er öruggur í þessum stól. Að auki fljúgum við ekkert nema í kjör- aðstæðum. Ég sé ekki að þetta sé hættulegra en margt annað sem maður gerir,“ segir Brandur. Brandur var ekki búinn að prófa stólinn þegar blaðamaður ræddi við hann en til stendur að gera það í dag. Fjáröflun fyrir verkefnið gekk vonum framar en svo Brandur gæti Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Landspítalinn á inni ríflega 1.230 milljónir í útistandandi kröfum, eins og staðan var 31. september 2014. Sumar eru gjaldfallnar, aðr- ar ekki. Ógreidd sjúklingagjöld á Land- spítalanum nema um 310 millj- ónum. Skuldir á erlendum kenni- tölum, oft skuldir ósjúkratryggðra einstaklinga við spítalann, eru um 220 milljónir. Þá nema aðrar skuldir við spítalann, t.d. fyr- irtækja og annarra heilbrigð- isstofnana, um 700 milljónum. Heildarkröfurnar hafa lítið hækk- að frá sama tíma í fyrra en síðan þá hafa tvisvar verið gerðar breyt- ingar á gjaldskrá, komugjöld fyrir sjúklinga hækkuðu um síðustu áramót og um mitt árið, að sögn Sigrúnar Guðjónsdóttur, deild- arstjóra á fjármálasviði. Kröfur á útlendinga erfiðar Kröfur vegna ósjúkratryggða einstaklinga er erfiðast að inn- heimta en það eru kröfur á út- lendinga sem hafa þurft lækn- isþjónustu hér og Íslendinga sem hafa ekki dvalið lengur en sex mánuði í landinu og því ósjúkra- tryggðir hér. „Það tekur yfirleitt langan tíma að innheimta þessar kröfur. Þær koma yfirleitt í sveifl- um, á góðærisárunum þegar það var mikið af erlendum verkamönn- um hérna var þetta dálítið mikið en datt svo niður en með auknum ferðamannafjölda fjölgar þeim aft- ur. Oft eru þetta mjög háar kröf- ur, ef sjúklingur liggur lengi á gjörgæslu getur hver reikningur skipt mörgum milljónum,“ segir Sigrún. Alltaf þarf að afskrifa eitt- hvað af kröfum á útlendinga enda ekki hægt að elta menn uppi á kennitölum eins og á Íslandi. Sigrún segir að það gangi held- ur verr að innheimta nú en oft áð- ur og þá hafi staðgreiðsluhlutfallið líka lækkað á spítalanum sem ger- ir það að verkum að það hlutfall sem ekki næst inn hækkar. Íslendingar skulda 310 milljónir í komugjöld og sjúklingagjöld. 700 milljónirnar tilheyra svo fyr- irtækjum og stofnunum t.d. Sjúkratryggingum Íslands og öðr- um heilbrigðisstofnunum sem Landspítalinn selur rannsókn- arþjónustu. „Það yrði gott að ná þessum pening inn. Við gerum okkar besta en þessar upphæðir eru alltaf svipaðar á milli ára,“ segir Sigrún. Ekki stendur til að breyta inn- heimtuferlinu, það fá allir greiðsluseðil, áminningarbréf og ítrekunarbréf og ef greiðslan skil- ar sér ekki eftir það fer reikning- urinn í innheimtu til lögfræðistofa sem eru t.d. í samskiptum við er- lendar innheimtustofur. Spítalinn á inni yfir milljarð  Útistandandi heildarkröfur Land- spítalans eru 1.230 milljónir Morgunblaðið/Rósa Braga Á spítala Heilbrigðisþjónusta kost- ar en erfitt getur verið að innheimta gjöld hjá sjúklingum. Heildarkröfur Landspítalans Heildarkröfur Kröfur v. sjúklingagjalda einstaklinga Kröfur v. ósjúkratryggðra einstaklinga Kröfur á fyrirtæki og stofnanir Í sept. 2013 270.000.000 190.000000 680.000.000 1.140.000.000 310.000.000 220.000000 700.000.000 1.230.000.000 14,81% 15,79% 2,94% 7,89% Í sept. 2014 Hækkun „Hann hefur haft góð áhrif fyrir Ísland, orðspor Ís- lands; að það sé svo ótrúlega frjálslynt að grínisti gat orðið borgarstjóri. Og með því að gera það hefur hann haft áhrif á allan heiminn, ekki bara Ísland,“ sagði listakonan Yoko Ono um Jón Gnarr, fyrrverandi borgarstjóra Reykjavíkur, í samtali við mbl.is í gær. Í dag mun hún afhenda Jóni LennonOno-friðarverðlaun- in í Hörpu. Ono sagði Jón hafa svipaðar hugmyndir og hún um frið. „Þegar hann var borgarstjóri rann það upp fyrir mér að hugmyndir hans um heimsfrið, og til hvaða ráða við ættum að grípa og allt það, væru afar líkar mínum hugmyndum. Þannig að við skildum hvort ann- að,“ sagði hún í gær. LennonOno-friðarverðlaunin voru fyrst veitt árið 2002 en þau eru afhent annað hvert ár. Verðlaunahafar hljóta styrk að upphæð 50.000 Bandaríkjadalir, jafn- virði 6 milljóna króna. Meðal þeirra sem áður hafa hlotið verðlaunin eru Lady Gaga og rússneska hljóm- sveitin Pussy Riot. Aðrir verðlaunahafar í ár eru Jann Wenner, einn stofnenda tónlistartímaritsins Rolling Stone, Jeremy Gilley, stofnandi samtakanna Peace One Day, og Do- reen Remen og Yvonne Force Villareal, stofnendur samtakanna Art Production Fund. Friðarsúlan í Viðey verður tendruð kl. 20 í dag en á heimasíðu Viðeyjar segir að Yoko Ono bjóði þeim sem vilja taka þátt í at- höfninni fría siglingu frá Skarfabakka. Hafa líkar hugmyndir um frið Morgunblaðið/Golli Yoko Ono Listakonan mun veita Jóni Gnarr LennonOno-friðarverðlaunin í Hörpu í dag. Sími 555 2992 og 698 7999 BLÁBER Bláberin fást í apótekum, heilsuhúsum og Fjarðarkaupum Bláber eru full af andoxunarefnum sem vinna á móti hrörnun líkamans og ákveðnum sjúkdómum eins og krabbamein, æðakölkun og ský á auga. Bláber eru líka holl hjartanu því þau vinna á slæma kólesterólinu og þau gagnast einnig við þvagfærasýkingum. Landslæknis-embættið mælirmeð notkuná bláberjum Prófaðu bláberin og finndu muninn! Er náttblinda, gláka, sjónskerpa, sykursýki, kólestról eða minnisleysi vandamál hjá þér? Þá gætu Bláberin verið lausnin!
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.