Morgunblaðið - 09.10.2014, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 2014
þjóðlegt gómsætt og gott
alla daga
www.flatkaka.is
Gríptu með úr næstu verslun k
ÖkugerÐ hp
VIÐTAL
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Öll gos hafa sína sérstöðu og við
sjáum nýjar hliðar. Það safnast
reynsla sem við reynum að skilja,“
segir Páll Einarsson, prófessor í
jarðeðlisfræði við
Háskóla Íslands.
Hann er einn
þeirra fjölmörgu
jarðvísindamanna
sem fylgst hafa
með þróuninni í
Bárðarbungu og
nágrenni og reynt
að rýna í fram-
haldið.
Í jarðhræring-
unum í Vatnajökli
og eldgosinu í Holuhrauni hafa nokk-
ur mikilvæg atriði bæst í reynslu-
bankann. „Þarna er það hvernig
gangurinn myndast út frá megineld-
stöðinni. Það tekur hann tvær vikur
að fara eftir jarðskorpunni og svo
gýs á hinum endanum. Við höfum
ekki séð þetta gerast svona áður þótt
ýmislegt í jarðfræðinni hafi bent til
þess að það gæti verið. Síðan er það
framhaldið, eftir að gangurinn hefur
myndast, hvernig kvikan heldur
áfram að flæða og tappar af meg-
ineldstöðinni, og askjan hrynur sam-
an. Við höfum ekki séð slíkt áður og
hefðum ekki getað giskað á að þetta
gerðist svona,“ segir Páll og bætir
því við að öskjuhrun af þessari
stærðargráðu sé ný reynsla, ekki að-
eins hér á landi heldur í heiminum.
Jarðhræringarnar í Bárðarbungu
hófust fyrir nærri tveimur mán-
uðum. Jarðskjálftahrinan hófst 16.
ágúst og þá var almannavarnakerfið
ræst.
Lítið gos virðist hafa orðið undir
sporði Dyngjujökuls og síðan varð
smágos nyrst í Holuhrauni. 31. ágúst
hófst síðan eldgosið í Holuhrauni
sem enn stendur.
Þótt gosið hafi verið kraftmest í
byrjun var aldrei neinn ofsi í því. Til
marks um það segir Páll að vís-
indamenn hafi orðið að sjá gosið á
vefmyndavélum til að vera vissir um
að það væri hafið. Hann segir að gos-
sprungan hafi aldrei orðið lengri en
tæpir 2 kílómetrar og er það miklu
styttri gossprunga en algengast var í
Kröflueldum og þekkist í Heklu-
gosum. Gosið hefur dregist að mestu
saman á einn stað, í kringum gíg sem
nefndur hefur verið Baugur og hann
hefur hlaðist vel upp. „Við sjáum
ekki skýrar vísbendingar um það.
Raunar er erfitt að meta það,“ segir
Páll þegar hann er spurður að því
hvort einhver merki séu um að gosið
sé að fjara út. Hann segir að gosið
virðist svipað og síðustu þrjár vik-
urnar, eða svo, og hraunrennslið
stöðugt.
Bætir Páll því við að sigið í Bár-
arbunguöskjunni sé besti mæli-
kvarðinn á að gosið sé ekki í rénun,
örlítið hafi dregið úr siginu en varla
merkjanlega.
Rennur undan Bárðarbungu
Jarðskjálftavirknin yfir kviku-
ganginum hélt áfram af nokkrum
krafti eftir að gosið hófst. Það gerði
jarðvísindamenn óörugga í að spá
um framhaldið því venjulega hættir
skjálftavirkni þegar kvikan nær til
yfirborðs. Töldu þeir hugsanlegt að
gossprungan gæti orðið lengri.
Öflugir jarðskjálftar hafa hins
Ný reynsla með hverju gosi
Páll Einarsson prófessor segir einstakt að hafa getað fylgst með ferð kvikunnar eftir ganginum út í
Holuhraun og samspili öskjuhrunsins í Bárðarbungu og gossins Ekki merki um að gosið sé að fjara út
Ljósmynd/Morten Schioldan Riishus
Holuhraun Eldvirknin er í gígnum sem vísindamenn hafa nefnt Baug og í sprungu útfrá honum. Glóandi hrauná rennur úr gígnum og hraunið breiðir sífellt úr sér. Gasið dreifist eftir vindátt.
Páll
Einarsson