Morgunblaðið - 09.10.2014, Blaðsíða 96
96 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 2014
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Láttu hendur standa fram úr ermum.
Reyndar má sneiða hjá deilum með því að
hætta að reyna að breyta öðrum eða bæta.
20. apríl - 20. maí
Naut Forgangsröðunin stjórnar því hvað
maður tekur sér fyrir hendur og hverju
maður fær áorkað. Vertu nú svolítið röskur!
21. maí - 20. júní
Tvíburar Viðræður um stjórnmál, trúmál og
heimspeki ættu að verða gefandi í dag. Að-
dráttaraflið mun minnka þegar frá líður en
þú munt áfram meta vináttu viðkomandi og
leggja rækt við hana.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú hefur unnið vel að undanförnu og
mátt vera ánægður með sjálfan þig. Kannski
telur kunningi þinn að þú hafir móðgað
hann.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Vanalega heldurðu öllum persónulegum
fréttum og smáatriðum fyrir sjálfan þig.
Farðu eftir hugmyndunum sem þú færð því
þær eiga eftir að hafa mikil áhrif á þig í
langan tíma.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Sérhver manneskja á jörðinni finnur
til líkamlegrar eða andlegrar vangetu á ein-
hverjum tímapunkti. Kannski kynnist þú nýrri
hlið á sjálfum þér og þínu samskiptamynstri.
23. sept. - 22. okt.
Vog Haltu áfram að koma skipulagi á hlutina
bæði á heimilinu og í vinnunni. Hugsaðu
frekar um vináttuna en að slá keilur.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það er eins og allt standi á haus
í dag. Seinna í dag gerir félagsskapurinn
óárennileg verkefni skemmtileg. Vertu opinn
fyrir nýjum hlutum.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú veist ekki alltaf svörin í ásta-
lífinu, en stundum er best að þegja. Byrjaðu
á nýju og listrænu verkefni í dag. Listir,
rómantík, orlof og skemmtanir eiga líka hug
þinn allan.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Hvaða þáttur vinnunnar er þér
fjarlægastur? Í dag er rétti tíminn til þess að
kynna þér hann. Kunnuglegt umhverfi eykur
á kjark þinn.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Gættu þess að sýna ekki vinum
þínum yfirgang í dag. Sólin er beint á móti
þínu merki núna og samskipti þín út á við
þar af leiðandi í brennidepli.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú ert tilbúinn að mæta áskoruninni,
sérstaklega ef hún er stærri en þú. Búðu þig
samt undir harða samkeppni sem þú þó átt
að geta sigrast á.
Ólafur Stefánsson skrifaði í Leir-inn á mánudaginn:
Er Leirinn lagstur í dá,
og leiðinn að buga þá
sem fyrrum á tíð
fjörguðu lýð
og fóru á kostum, smá?
Björn Ingólfsson hafði orð á því
að ský hefðu verið óvenjulega blá-
svört í morgunsárið:
Sólin brött og byrjar göngu nýja,
að brjótast fram er henni þó um megn
því dökkir flotar skuggalegra skýja
skirrast við að hleypa henni í gegn.
Og bætti síðan við: „Gert bara til
að slá á áhyggjur þínar, Ólafur, um
þunglyndi eða jafnvel drepsótt á
Leir.“
Mér virðast áhyggjur Ólafs
óþarfar, því að á laugardag setti
Fía á Sandi á Leirinn:
Úti er gola ósköp mjúk,
andar haustsins blíða.
Frostið breiddi á fjöllin dúk,
fallega hvítan víða.
Og Davíð Hjálmar Haraldsson
yrkir „gagaraljóð að hausti“:
Hökli grænum haustið stal,
híma nakin gráleit fjöll.
Þó er nýtt á Súlum sjal,
sallafínt, úr ljósri mjöll.
Síðan fór Davíð Hjálmar út í aðra
sálma: „Læknar hóta verkfalli, þeir
muni þó sinna alvarlegum tilfellum
en láta smáslys afskiptalaus.
Það gagnar lítt að gleypa plast
og geitarull og körfubast,
að rassskelli þig frúin fast
svo flumbrist á þér dausinn,
að hálsbrotna er hentugast
(þú heyrðir þegar eitthvað brast):
Þeir safnast eins og súlukast
að síld – ef vantar hausinn.“
Jón Hjaltason á þessa limru:
Hann Gylli á Toyunni skugganum
skjótari,
nú er skítlegur Patrólinn helmingi
ljótari.
Hann stöðvar ei bíl
en stekkur með stíl,
Í stæðin hann vindur sér, fötluðum
fljótari.
Og svo er það húsgangurinn:
Komdu á Eyrina, kindin mín.
Kokkurinn vill þig finna,
gefur þér brauð og brennivín,
bláan klút og tvinna
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Áhyggjur á Leirnum
og verkfall lækna
Í klípu
„FARÐU BARA OG LÁTTU HANN VITA.
ÞÚ VEIST HVAÐ HANN HATAR AÐ VERA
SKILINN EFTIR Í MYRKRINU.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„VILTU UMBÚÐIR?“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
...að heyra af nýja
afabarninu í vændum.
ROOOOOOOP!
TIKK,
TIKK,
TIKK,
TIKK
ÞÚ ÞARFT EKKI AÐ SENDA MÉR
SMS UM ALLT SEM ÞÚ GERIR!
STRESSIÐ SEM
FYLGIR ÞVÍ AÐ VERA
VÍKINGAHÖFÐINGI EINS
OG ÉG ER ÓTRÚLEGT...
...OG ÞAÐ AÐ TAKA
ÁKVARÐANIR ER ÞAÐ
ERFIÐASTA...
ÆTTI ÉG AÐ FÁ MÉR ANNAN SKAMMT AF
MAÍSBAUNUM, EÐA ANNAN SKAMMT AF
KARTÖFLUMÚS?
Íþróttamennska, og hvað felist í þvíað vera íþróttamaður, hefur verið
ofarlega á baugi í kaffispjalli vinnu-
félaga Víkverja síðustu daga. Til-
efnið var það að í lok úrslitavið-
ureignarinnar á Íslandsmótinu að
þessu sinni ætlaði einn leikmað-
urinn, sem bar þó nokkra ábyrgð á
því að lið hans varð af gullinu, að
vaða í einn reyndasta dómara lands-
ins. Ekki er enn ljóst hvað viðkom-
andi leikmaður vildi dómaranum, en
látbragðið benti ekki til þess að hann
vildi rökræða lífsins gagn og nauð-
synjar yfir tebolla.
x x x
Sama kvöld fór síðan fram önnurviðureign, öllu ódannaðri en
knattspyrnan, þar sem tveir menn
flugust á, og reyndu að kýla hinn
kaldan. Bar útgangurinn á þeim,
sem minnti einna helst á fyrstu
Rocky-myndina, þess vitni, að við-
ureignin hefði verið nokkuð jöfn, þar
sem sigurvegarinn var allur bólginn
og blár og hafði fengið á sig nokkur
þung högg. Skipti þó engum togum
að bæði meðan á bardaganum stóð,
og eftir hann, var ljóst að íþrótta-
andinn var heldur meiri í slags-
málahundunum í hringnum, heldur
en í knattspyrnumanninum tapsára.
Svo segja menn að Gunnar Nelson
sé ekki góð fyrirmynd.
x x x
Annað, sem hefur borið á góma íkaffispjallinu, er það hver til-
gangur íþróttaviðtala er. Víkverji er
þó á því, að öll viðtöl mættu vera eins
og þau sem íþróttafréttamenn taka
strax eftir leik. Fréttamenn gætu þá
spurt Sigmund Davíð og Bjarna
Ben. strax eftir erfiða atkvæða-
greiðslu í þinginu: „Hvernig líður
ykkur, nú þegar frumvarpið er kom-
ið í gegn?“ eða „Jæja, hvað varð til
þess að þetta hafðist?“
x x x
Svörin yrðu þá væntanlega á þáleið, að þeim hefði liðið vel inn í
þingsalnum, þeir hafi undirbúið sig
vel, og að planið hefði gengið vel
upp. Stjórnarandstaðan væri hins
vegar með gott þinglið og hefði náð
nokkrum þungum sóknum á frum-
varpið. „En á endanum vildum við
þetta meira en þeir, og þess vegna
náði þetta í gegn!“ víkverji@mbl.is
Víkverji
Yður er í dag frelsari fæddur, sem er
Kristur Drottinn, í borg Davíðs.
(Lúkasarguðspjall 2:11)