Morgunblaðið - 09.10.2014, Blaðsíða 61
FRÉTTIR 61Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 2014
Höfðabakka 9, 110 Reykjavík • Sími 561 9200 • run@run.is • www.run.is 30ÁRA
Merino ull
Tveggjalaga kerfi (baselayer)
sem flytur raka og svita frá
líkamanum og heldur honum
alltaf þurrum og hlýum.
FYRIR HANA
Ullarnærföt - undirfatnaður
Stærðir: S-XL
FYRIR HANN
Ullarnærföt - undirfatnaður
Stærðir: M-2XL
Komið í verslanir um land allt
Frábær Merino ullarnærföt
sem henta í alla útivist
Göngur - hlaup
veiði - fjallgöngur
skíði - hjólreiðar
útilegur...
og allt hitt líka.
Sjaldan hefur verið jafnerfitt að
segja til um hver muni hljóta frið-
arverðlaun Nóbels, sem tilkynnt
verða á morgun. Sérfræðingar eru
þó þeirrar hyggju að líklegast sé að
annað hvort
Frans páfi eða
uppljóstrarinn
Edward Snow-
den muni hljóta
verðlaunin.
Einnig er
hermt að Malala
Yousafzai, sem
barist hefur fyrir
því að stúlkur í
Pakistan fái að
mennta sig, komi sterklega til
greina líkt og í fyrra. Á vefsíðu
norskra sérfræðinga um frið-
arverðlaunin, nobeliana.com, segir
að Malala, sem talibanar sýndu
banatilræði 2012, sé líklegri til að
fá verðlaunin en Snowden. Nób-
elsnefndin í Ósló gæti hins vegar
ákveðið að veita henni ekki verð-
launin vegna þess að hún sé of ung
og verðlaunin gætu aukið hættuna
á að öfgamenn réðust á hana.
Sjónum beint að Rússlandi?
Sjónir nóbelsnefndarinnar gætu
einnig beinst til Rússlands bæði
vegna Úkraínu og meðferðarinnar
á stjórnarandstæðingum heima fyr-
ir. Hefur dagblaðið Novaja Gazeta,
sem Míkhaíl Gorbatsjov átti þátt í
að stofna fyrir hluta af friðarverð-
launafé sínu 1993, verið nefnt til
sögunnar í þeim efnum. Nokkrir
blaðamanna blaðsins hafa verið
myrtir, þar á meðal Anna Polit-
kovskaja, sem fletti ofan af mann-
réttindabrotum í Tétsníju.
Nóbelsnefndin fékk 278 tilnefn-
ingar að þessu sinni og hafa þær
aldrei verið fleiri. Tilnefningarnar
hafa ekki verið birtar og geta sér-
fræðingar því aðeins metið stöðuna
út frá nöfnum, sem þeir sem til-
nefndu hafa gefið upp.
Hjá veðbankanum Paddy Power
eru líkurnar á því að Frans páfi fái
verðlaunin níu á móti fjórum, en
líkurnar á að Vladimír Pútín Rúss-
landsforseti, sem einnig er talinn
hafa verið tilnefndur, eru töluvert
minni eða fimmtíu á móti einum.
Orða páfa
og Snowden
við Nóbel
278 tilnefndir til
friðarverðlauna
AFP
Nóbel? Veðbankar veðja á að Frans
páfi fái friðarverðlaun Nóbels.
Edward Snowden
Í tilefni af 62 ára afmæli Vladímírs
Pútíns Rússlandsforseta í fyrradag
opnuðu dyggir stuðningsmenn hans
sýningu honum til dýrðar og veg-
semdar. Á sýningunni eru málverk
af afrekum Pútíns og þeim er líkt við
tólf þrautir Heraklesar.
Á málverkunum sést Pútín meðal
annars skjóta niður bandarískar orr-
ustuþotur með boga og örvum og
sitja klofvega á nauti á leið til Krím-
skaga.
Herakles var hálfguð í grískri
goðafræði, sonur Seifs og annálaður
kraftajötunn. Hann þurfti að leysa
tólf þungar þrautir og vann mörg
önnur afrek áður en hann beið bana
og var tekinn í guðatölu.
Sigraði þríhöfða
varðhund undirheima
Á málverkunum er Pútín sýndur í
skikkju, vopnaður sverði, að vinna
ýmis afreksverk, meðal annars
leggja Krím undir sig. Stærsta afrek
hans á sýningunni er barátta hans
við Bandaríkin sem líkt er við rimmu
Heraklesar við Kerberos, þríhöfða
hund sem gætti hallarhliðs Hadesar
undirheimadrottins. Síðasta þraut
Heraklesar var að draga hundinn
frá undirheimum.
Pútín hélt upp á afmælið á af-
skekktum stað í Síberíu. Hann nýtur
mikillar lýðhylli í Rússlandi og
margir landsmenn heiðruðu hann á
afmælinu. Yfir 100.000 manns tóku
t.a.m. þátt í göngu honum til heiðurs
í Grosní í Tétsníu. bogi@mbl.is
Kraftajötunn heiðraður
AFP
Sterkur leiðtogi Pútín með heiminn á herðum sér á sýningunni í Moskvu.
Afrekum Pútíns líkt við þrautir Heraklesar á sýningu