Morgunblaðið - 09.10.2014, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 09.10.2014, Blaðsíða 11
Bleikt Þessar dömur hoppa af kæti og ætla að skemmta sér með öðrum konum fyrir norðan núna um helgina. Vinkonur, systur, mæðgur, dætur og frænkur njóta lífsins og gera sér glaðan dag saman á Dömulegum dekurdögum sem hefjast á Akureyri í dag og standa fram á sunnudag. Boðið er upp á alls kyns skemmtanir um allan bæ, kynn- ingar og tilboð í verslunum. Bleiki þráðurinn í gegnum allt það sem fram fer er fjáröflunarátak til styrktar rann- sóknum á krabbameini í konum. Krabbameinsfélag Akur- eyrar og nágrennis mun í þessum alþjóðlega bleika októ- ber njóta góðs af því sem safnast á Dömulegum dekurdögum. Alls kyns uppákomur fara fram þessa daga í rómantísku og bleiku umhverfi þar sem dans, söngur, ljúf- ir tónar, list, hönnun, heilsa kvenna, forvitnilegur fróð- leikur, matur, drykkur og kruðerí, ball og diskótek koma m.a. við sögu. Hægt er að fá nánari upplýsingar um dagskrána á vef- slóðinni: www.visitakureyri.is og á Facebook-síðu Dömu- legra dekurdaga. Dans, söngur, list og hönnun í rómantísku og bleiku umhverfi Dömulegir dekurdagar á Akureyri hefjast í dag DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 2014 Allir sem hafa einhverntíma verið á tónleikum eða balli með Varsjár- bandalaginu vita að það er heljar- innar fjör. Varsjárbandalagið leikur glundroðakennda blöndu af klezmer og balkanrokki með íslensku ívafi. Varsjárbandalagið fer reglulega í leyfi en rumskar þó annað veifið til að svala þorsta áheyrenda í það sem sveitin hefur fram að bjóða, en líka til að hljómsveitarmeðlimir fái sinn gleðiskammt. Fastir meðlimir sveitar- innar eru Magnús Pálsson sem leikur á klarínett og sópransax, Karl James Pestka sem leikur á fiðlu, Sigríður Ásta Árnadóttir sem þenur nikkuna og syngur, Hallur Guðmundsson sem plokkar bassa og syngur og Stein- grímur Guðmundsson á trommur. Auk þess spila eftirfarandi stundum með Varsjárbandalaginu: Ásgeir Ás- geirsson á gítar, Gréta Mjöll á fiðlu, Þórdís Claessen og Halldór Eldjárn, bæði á trommur og slagverk. Tónleikar í kvöld á Kexinu Stuð með Var- sjárbandalagi Morgunblaðið/Ernir Litríkt band Aldrei lognmolla þarna. Það er alltaf jafn notalegt að koma við á Sunnlenska bókakaffinu á Sel- fossi, fletta bókum á meðan sopið er á kaffi og spjalla við vertinn Bjarna Harðarson. Bókakaffið varð átta ára sl. þriðjudag og hefur stækkað heil- mikið undanfarið ár eins og gengur með afmælisbörn á þessum aldri. Haldið verður upp á afmælið næsta laugardag, 11. okt., og þá verður heitt á könnunni og bækur og ritföng á til- boðsverði. Allir eru velkomnir, börn, unglingar, mömmur, pabbar, afar, ömmur, langafar og langömmur. Sunnlenska bókakaffið 8 ára Afmælisveisla fyrir fólk á öll- um aldri Vertinn Bjarni spjallar við gesti. Morgunblaðið/Sigmundur Sigurgeirsson Fjarðarkaup Gildir 9. - 11. okt verð nú áður mælie. verð Svínalundir úr kjötborði.................................... 1.298 2.398 1.298 kr. kg Nauta entrecote úr kjötborði............................. 3.198 3.998 3.198 kr. kg Fjallalambs lambahryggur frosinn ..................... 1.598 1998 1.598 kr. kg Kjarnafæði ferskt lambalæri ............................. 1.398 1.498 1.398 kr. kg KS lambabógur frosinn .................................... 898 1.149 898 kr. kg Ísfugl 1/1 frosinn kjúklingur ............................. 698 798 698 kr. kg Hamborgarar 10x80g frosnir ............................ 1.216 1.520 1.216 kr. pk. Helgartilboðin Getty Images/iStockphoto
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.