Morgunblaðið - 09.10.2014, Blaðsíða 36
36 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 2014
Samanlagður áætlaður kostnaður
forsætisráðuneytisins og utanrík-
isráðuneytisins vegna ferða ráð-
herra og fylgdarliðs á allsherjarþing
Sameinuðu þjóðanna í New York í
september sl. og tengda viðburði,
nam tæplega 5,5 milljónum króna.
Auk forsætisráðherra, Sigmundar
Davíðs Gunnlaugssonar, fóru til
New York á vegum ráðuneytisins
Jörundur Valtýsson utanrík-
ismálaráðgjafi ráðherra, Jóhannes
Þór Skúlason aðstoðarmaður ráð-
herra og Anna Sigurlaug Pálsdóttir
eiginkona forsætisráðherra, sem tók
þátt í sérstakri makadagskrá.
Sigmundur Davíð sótti m.a. leið-
togafund um loftslagsbreytingar 23.
september, tók þátt í setningu alls-
herjarþingsins 24. september og
hliðarviðburðum því tengdu, og átti
óformleg samtöl við erlenda ráða-
menn. Þá kynnti ráðherra sér starf-
semi íslenskra fyrirtækja í New
York og hélt ræðu á ársfundi ís-
lensk-ameríska viðskiptaráðsins,
samkvæmt upplýsingum frá forsæt-
isráðuneytinu.
Kostnaður ráðuneytisins vegna
ferðarinnar, sem stóð yfir 22.-29.
september, nam 1.941.770 krónum.
Sat fjölda tvíhliða funda
Gunnar Bragi Sveinsson utanrík-
isráðherra, Einar Gunnarsson ráðu-
neytisstjóri, Hermann Ingólfsson
skrifstofustjóri alþjóða- og öryggis-
skrifstofu og Sunna Gunnars Mar-
teinsdóttir aðstoðarmaður ráðherra
tóku þátt í ráðherraviku allsherj-
arþings SÞ á vegum utanríkisráðu-
neytisins. Ferð þeirra stóð jafn lengi
og ferð sendinefndar forsætisráðu-
neytisins en áætlaður kostnaður
vegna hennar er 3.481.368 króna.
Gunnar Bragi átti marga tvíhliða
fundi, m.a. með utanríkisráðherra
Barbados, þar sem loftferðasamn-
ingur var undirritaður, og utanrík-
isráðherra Albaníu, þar sem skrifað
var undir tvísköttunarsamning. Þá
fundaði ráðherrann með Riyad al-
Maliki, utanríkisráðherra Palestínu,
og sótti ýmsa ráðherrafundi.
holmfridur@mbl.is
5,5 milljónir vegna
allsherjarþingsins
AFP
Þing Forsætisráðherra ávarpaði
leiðtogafund um loftslagsbreytingar.
Átta fóru utan á vegum ráðuneytanna
Þórunn Kristjánsdóttir
thorunn@mbl.is
„Þegar ég byrjaði að kynna mér
sögu kirkjunnar og vinna að bók-
inni komst ég að því að Graf-
arvogur er í
raun eins og lítið
kauptún í borg-
inni, þar sem
íbúar hafa staðið
þétt saman og
skapað sterkt
samfélag.
Sóknarstarfið
endurspeglar
það,“ segir Sig-
mundur Ó.
Steinarsson, höf-
undur bókarinnar Grafarvogssókn
25 ára 1989-2014, sem kom út ný-
verið.
Bókin er tæplega 300 síður og
hana prýða ótal myndir frá litríkri
sögu sóknarinnar. Hverri opnu er
skipt niður í fjóra fleti sem end-
urspegla altaristöflu kirkjunnar
sem er í bláum og gulum lit. „Ég
vildi að lesandinn fengi þá tilfinn-
ingu að hann væri að lesa á alt-
aristöfluna, sem er ákaflega fal-
leg.“
Sigmundur lagði upp með að
stíll bókarinnar yrði léttur og
textinn læsilegur og skemmti-
legur, ekki þurr skýrsla um
kirkjustarfið. Bókin er byggð upp
á ótal viðtölum við fólk sem hefur
komið að starfinu í gegnum tíðina.
Til að brjóta upp síðurnar greip
Sigmundur til þess ráðs að munda
pensilinn og vatnslitaði ótal arkir í
ljósum litum, sem hann notaði sem
rammagrunna undir styttri fróð-
leiksmola, sem kalla á lesendann.
Sigmundur hafði gaman af ritun
bókarinnar og lagðist í mikla
rannsóknarvinnu – komst til dæm-
is að því að þriggja tonna altari
kirkjunnar var smíðað úr steini
sem kom frá Simbabve í Afríku.
„Ég hafði mjög gaman af vinnslu
verksins, enda mikið líf í söfn-
uðinum, sem á sér stutta en litríka
sögu.“
Spurður hvort hann sé trúaður
svarar Sigmundur að hann hafi
gengið með kross um hálsinn frá
unglingsaldri.
Ljósmynd/Björg Vigfúsdóttir
Útgáfa Bókin var afhent við hátíðlega athöfn, Agnes M. Sigurðardóttir tók
við fyrsta eintakinu í Grafarvogskirkju úr hendi ritnefndarinnar.
Grafarvogur kauptún í borginni
Bók á 25 ára afmæli
Grafarvogssóknar
» Sigmundur Ó. Steinarsson
ritaði sögu Grafarvogssóknar.
» Veglegt brot, tæplega
300 síður og ótal myndir
af starfinu.
» Þriggja tonna altari
kirkjunnar var smíðað úr
steini sem kom frá Simbabve
í Afríku.
Sigmundur Ó.
Steinarsson
„Litla Barcelona“
Valencia
Páskaferð
Beint leiguflug
með Icelandair
1.-5. apríl. 2015
VERÐ FRÁ:
SH Abashiri HHH
115.900 KR
á mann m.v. tvo fullorðna í tvíbýli
með morgunverði.
Jón Pétur Jónsson
jonpetur@mbl.is
„Maður mætir ekki ólesinn í próf hjá
þessu fólki,“ sagði Sigurjón Árnason,
fyrrverandi bankastjóri Landsbank-
ans, í skýrslutöku í Héraðsdómi
Reykjavíkur í gær. Óhætt er að full-
yrða að Sigurjón hafi komið vel undir-
búinn í réttarsal eftir að hafa setið á
hliðarlínunni í fimm daga. Skýrslu-
takan hófst kl. 8.30 og stóð yfir til kl.
14, en þá er búið að taka skýrslu af öll-
um sakborningum í máli sérstaks
saksóknara gegn Landsbankamönn-
um. Sigurjón sagði að aldrei hefði
verið reitt jafn hátt til höggs og í
þessu máli.
Sigurjón, Ívar Guðjónsson, fyrr-
verandi forstöðumaður eigin fjárfest-
inga Landsbankans, og Júlíus S.
Heiðarsson og Sindri Sveinsson, fyrr-
verandi starfsmenn eigin fjárfest-
inga, hafa verið ákærðir fyrir mark-
aðsmisnotkun á tímabilinu 1.
nóvember 2007 til 3. október 2008 og
eru sakaðir um að hafa handstýrt
verðmyndun hlutabréfa í Landsbank-
anum og með því blekkt fjárfesta,
kröfuhafa, stjórnvöld og samfélagið í
heild.
Óendanleg hneykslun
Sigurjón varðist af krafti í réttar-
salnum, fór upp og niður tilfinninga-
skalann, sló á létta strengi og var
harðorður í garð embættis sérstaks
saksóknara, en hann sagði mikið um
rangfærslur í ákærunni. „Hvað er í
gangi? Hvernig er þetta hægt, að ég
sé búinn að vera í fangelsi og hand-
tekinn? Það er búið að hlera mig, það
er búið að hlera fundi sem ég hef ver-
ið á með fólki úti í bæ.
Það er búið að fara yfir 520 þúsund
tölvupósta, hlusta á sjö þúsund símtöl
og taka 80 kassa niðri í vinnu og það
er búið að fara yfir hvert einasta
plagg, og það dettur engum í hug að
skoða hvernig þetta var áður en ég
byrjaði að vinna [í bankanum, innsk.
blm],“ sagði Sigurjón.
Ummælin lét hann falla eftir að
hann vakti athygli á því að á ákæru-
tímabilinu hefðu nettó viðskipti sem
hlutfall af heildarveltu í eigin bréfum
Landsbankans oft farið yfir 50%,
jafnvel 70-80%. Hann benti hins veg-
ar á að á árunum 2000 til 2003 hefði
hlutfallið margsinnis – oft dag eftir
dag – farið upp í 100%, bæði í sölu og
kaupum. Þá hefði bankinn verið
aleinn að kaupa eða selja á markaði.
Sigurjón sagði hneykslun sína
óendanlega, þar sem markmið sak-
sóknara væri að fangelsa menn í 5-6
ár. „Maður skipti sér aldrei af þessu
og starfsmennirnir sem voru að
vinna, það hvarflaði ekki að þeim að
þeir væru að gera annað en rétt,“
sagði hann.
Var ekki að halda uppi verðinu
fyrir Björgólfsfeðga
„Eigin stöðutaka [eigin fjárfest-
ing], eða einstakir starfsmenn þar,
þeir fengu ekki, hvorki bein né óbein
fyrirmæli, leiðbeiningar, línur eða
áherslur, hvorki frá mér né fjármála-
nefndinni, með þeim hætti sem mér
finnst stundum hafa verið sagt. Ann-
að en það að það var auðvitað gefin
lína með þessi þrjú prósent eða fimm
prósent,“ sagði Sigurjón í gær og vís-
aði til þess að heildarstaða eignar-
hlutar Landsbankans í eigin bréfum
væri innan við 3% en í einstaka bréf-
um væri ekki farið yfir 5%.
Hann sagði að starfsmenn eigin
fjárfestinga hefðu verið að vinna eftir
fyrirkomulagi sem var þegar til stað-
ar, þ.e. áður en þeir hófu störf hjá
Landsbankanum. Sigurjón hóf störf
2003 en aðrir seinna. Sigurjón sagði
jafnframt galið að halda því fram að
hann hefði verið aðalmaðurinn í því að
halda uppi hlutabréfaverði í Lands-
bankanum fyrir eigendurna, feðgana
Björgólf Thor Björgólfsson og Björg-
ólf Guðmundsson. „Það var einmitt
enginn að halda uppi einu verði eða
gera eitt né neitt,“ sagði hann.
Venjulegir fjölskyldumenn
Sigurjón sagði að hann hefði verið
sannfærður fram á síðustu stundu um
að Landsbankinn myndi standa af sér
efnahagslægðina haustið 2008 en eftir
að Glitnir hefði verið „sprengdur í loft
upp“ hefði verið ljóst að endalokin
væru í nánd. Hann gagnrýndi að öllu
hefði verið snúið á haus í málatilbún-
aði sérstaks saksóknara og að rann-
sókn málsins hefði ekki verið hlut-
laus.
„Ég held bara að aldrei nokkru
sinni, bara í neinu máli, hafi verið
reitt jafn hátt til höggs til þess að
reyna að sanna eitthvað sem er bara
ekki til staðar, og reyna að sanna eitt-
hvað á algjörlega blásaklaust fólk.
Bara venjulega fjölskyldumenn sem
þurfa að sitja hérna og berjast við
þetta vald,“ sagði hann í tilfinninga-
þrungnu ávarpi sínu.
Aðalmeðferð í málinu heldur áfram
í dag en þá verða vitni leidd fyrir
dóminn.
„Aldrei verið reitt
jafn hátt til höggs“
Unnu eftir fyrirkomulagi sem var þegar til staðar
Morgunblaðið/Þórður
Í dómsal Sigurjón sagði við skýrslutökuna í gær að Kauphöllin hefði aldrei
gert athugasemdir við eigin fjárfestingar Landsbankans.