Morgunblaðið - 09.10.2014, Blaðsíða 105
MENNING 105
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 2014
Sími: 553-2075 www.laugarasbio.is
Miðasala og nánari upplýsingar
16
16
16
L
DRACULA UNTOLD Sýnd kl. 8 - 10
EQUALIZER Sýnd kl. 6 - 9
TOMBSTONES Sýnd kl. 5:40 - 8 - 10:20
SMÁHEIMAR 2D Sýnd kl. 5:40
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
ÞRÆLGÓÐ SPENNUMYND UM
EINKASPÆJARA SEM FLÆKIST INN Í
HEIM EITURLYFJASALA
LIAM NEESON
ÓLAFUR DARRI ÓLAFSSON
MARGUR ER
KNÁR
ÞÓTT HANN SÉ
SMÁR...
Stórhöfða 17 | Sími 577 5555 | veggsport.is
Októberfest
í Veggsport
Persónulegt
þjónusta
og vinalegt
umhverfi
30% afsláttur í golfherminn
Skelltu þér í golf í góðu veðri
9 mismunandi golfvellir
2 fyrir 1 í skvass um helgar
Bjóddu vini þínum með í skvass!
Matthew Scudder erfyrrverandi lög-regluþjónn og alkóhól-isti, sem er einka-
spæjari á eigin vegum í New
York-borg árið 1999. Scudder er
þjakaður vegna fortíðar sinn-
ar,sækir AA-fundina af kappi og
segir þar söguna af því þegar hann
hætti að drekka. Einn daginn kem-
ur að honum einn af alkóhólist-
unum, og segist hafa vinnu fyrir
Scudder.
Í ljós kemur að bróðir mannsins,
Kenny Kristo, er fíkniefnasali, og
að konu hans var rænt. Þó að
Kristo hefði borgað lausnargjaldið
ákváðu mannræningjarnir að
nauðga og myrða konu hans á
hrottafenginn hátt, og sækist hann
því eftir hefndum. Það kemur þó
fljótlega í ljós að Kristo er ekki
eini fíkniefnasalinn sem hefur
misst konu sína í hendur þessara
manna og að þarna er um að ræða
tvo fjöldamorðingja sem einfald-
lega eru veikir á geði. Scudder tek-
ur því starfið að sér, og aðstoðar
Kristo við að finna mannræn-
ingjana áður en þeir myrða á ný.
Myndin er byggð á samnefndri
skáldsögu eftir Lawrence Block, en
hann hefur skrifað alls um 17 bæk-
ur um ævintýri Matthews Scudder.
Scudder er nánast hin dæmigerða
andhetja, og tekst myndinni vel að
sýna það hvernig skuggar fortíð-
arinnar elta hann. Þar á Liam
Neeson langmest hrós skilið, en
hann er hreint út sagt fullkominn í
hlutverki Scudders, og gefur kar-
akternum mun meiri dýpt en búast
má við í kvikmyndum af þessu tagi.
Virðist það eiga vel við þennan
gæðaleikara að leika hörkutól og
menn sem leita eftir hefndum.
Ólafur Darri eftirminnilegur
Flestir aðrir leikarar myndarinnar
skilja hins vegar lítið eftir sig, fyrir
utan Ólaf Darra. Hann er hér í
litlu, en ákaflega eftirminnilegu
hlutverki sem Jonas Loogan, garð-
yrkjumaður í kirkjugarðinum þar
sem eitt líkið fannst, sem Scudder
grunar um að hafa eitthvað óhreint
í pokahorninu. Ólafur Darri stend-
ur sig mjög vel en helsti gallinn við
frammistöðu Ólafs er hreimurinn,
sem gerir íslenskan áhorfanda full-
meðvitaðan um fæðingarstað leik-
arans.
Myndataka og leikstjórn mynd-
arinnar er sömuleiðis mjög góð, og
tekst Scott Frank leikstjóra, sem
þekktari er sem handritshöfundur,
(Minority Report, The Interpreter)
að búa til spennuþrungið andrúms-
loft frá upphafsatriði myndarinnar
til hins síðasta. Galli myndarinnar
felst þó kannski í því sama and-
rúmslofti sem getur orðið þrúg-
andi, því að fátt er dregið undan í
því að sýna hrottaskap mannræn-
ingjanna, og verður manni um og ó
við sumt af því sem sést á skján-
um.
Þá má nánast telja klisjurnar úr
„Film Noir“ einkaspæjaramyndum,
og er Scudder meira að segja líkt
við þá Sam Spade og Philip Mar-
lowe á einum stað, svona til þess
að áhorfandinn geti verið viss um
vísunina.
A Walk Among the Tombstones
er því svo sannarlega ekki allra, og
vantar nokkuð upp á það að geta
talist skylduáhorf. Engu að síður
er hér á ferðinni nokkuð þétt
spennumynd, sem kemur á óvart.
Hefnd Liam Neeson er fullkominn í hlutverki hins breyska einkaspæjara Matt Scudder, að mati gagnrýnanda.
Meistari hefndarinnar
Laugarásbíó og
Borgarbíó Akureyri
A Walk Among the Tombstones
bbbnn
Leikstjóri: Scott Frank. Handrit: Scott
Frank eftir bók Lawrence Block. Aðal-
hlutverk: Liam Neeson, Dan Stevens,
Boyd Holbrook, Sebastian Roché, Brian
„Astro“ Bradley og Ólafur Darri Ólafs-
son. Bandaríkin, 2014. 113 mínútur.
STEFÁN GUNNAR
SVEINSSON
KVIKMYNDIR
Bíó Paradís mun nú í byrjun vetrar
sýna fjölda kvikmynda sem unnið
hafa til verðlauna á helstu kvik-
myndahátíðum heims á árinu og
þeirra á meðal myndir sem eru
framlög Svíþjóðar, Tyrklands,
Rússlands, Ungverjalands, Kanada
og Ítalíu til Óskarsverðlaunanna á
næsta ári. Sýningar eru þegar
hafnar á framlagi Svía, Force Maj-
eure eftir Ruben Östlund og sýn-
ingar á Óskarsframlagi Rússa,
Leviathan, hefjast 22. október.
White God eftir Kornél Mundruczó,
framlag Ungverjalands til
verðlaunna, verður frumsýnd 14.
nóvember og Human Capital eftir
Paolo Virzí, framlag Ítalíu, 5. des-
ember. Af öðrum myndum sem
verða frumsýndar á næstunni en
eru ekki framlög til Óskars-
verðlauna má nefna úkraínsku
kvikmyndina The Tribe sem frum-
sýnd verður 17. október. Sú mynd
hefur hlotið lofsamlega dóma og
þykir merkileg fyrir það að heyrn-
arlausir unglingar fara með öll
hlutverkin og er myndin öll á tákn-
máli. Frekari upplýsingar um dag-
skrána má finna á bioparadis.is.
Á táknmáli The Tribe verður sýnd frá 17. október í Bíó Paradís. Heyrnar-
lausir unglingar fara með öll hlutverk í henni og er hún því á táknmáli.
Framlög sex landa til Ósk-
arsins sýnd í Bíó Paradís
Miðar á Iceland Airwaves seldust
upp í byrjun vikunnar. Hátíðin
verður haldin í sextánda sinn í ár, 5.
til 9. nóvember og munu 220 tónlist-
armenn og hljómsveitir koma fram
á henni, þar af 67 erlendar hljóm-
sveitir. Meðal þeirra sem koma
fram eru Flaming Lips, The Knife,
The War on Drugs, Caribou, Ás-
geir, Samaris, Unknown Mortal
Orchestra, Future Islands og Anna
Calvi. Hátíðin fer fram á 12 tón-
leikastöðum í miðborg Reykjavíkur
og geta gestir sótt sér nýtt smá-
forrit og sniðið sér eigin dagskrá.
Þá verður einnig boðið upp á fría
tónleika og verður sá hluti dag-
skrárinnar kynntur á næstu dögum.
Uppselt á Iceland Airwaves
Varalogi Bandaríska rokksveitin
Flaming Lips leikur á Airwaves.
Androulla Vassiliou, fram-
kvæmdastjóri Evrópusambandsins
um menntun, menningu, fjöltyngi
og æskulýðsmál, tilkynnti í gær
hverjir væru vinningshafar í
keppninni um bókmenntaverðlaun
Evrópusambandsins 2014, á bóka-
kaupstefnunni í Frankfurt og er
einn Íslendingur þeirra á meðal,
Oddný Eir Ævarsdóttir. Verðlaun-
unum er ætlað að veita nýjustu og
bestu upprennandi rithöfundunum
í Evrópu viðurkenningu, eins og
segir í tilkynn-
ingu. Verðlaunin
hlýtur Oddný
fyrir bókina
Jarðnæði, eða
Land of Love,
Plan of Ruins í
enskri þýðingu.
Hver vinnings-
hafi hlýtur 5.000
evrur og nýtur
aukinnar kynningar og athygli á al-
þjóðavettvangi.
Oddný Eir hlaut verðlaun í keppni ESB
Oddný Eir
Ævarsdóttir