Morgunblaðið - 09.10.2014, Blaðsíða 100
100 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 2014
Suðurlandsbraut 48 (bláu húsin í Faxafeni) - Sími 553 3450 - Vefverslun: www.spilavinir.is - sendumumallt land!
kl. 13:00Upplestur
20%
afsláttur
Við aðstoðum þig við að velja spilið
og pökkum því inn fyrir þig.
Gefðu spil
í afmælisgjöf
Sendum
um allt land
spilavinir.is
Túristahljóð & Ólympískar teikn-
ingar nefnist sýning í tveimur hlut-
um á nýjum verkum eftir Kristján
Guðmundsson í Gallery GAMMA og
verður fyrri hlutinn, Túristahljóð,
opnaður í dag kl. 17. Seinni hluti
sýningarinnar, Ólympískar teikn-
ingar, verður opnaður 27. nóvember
og er sýningin sett upp í samstarfi
við i8 gallerí.
Kristján þarf vart að kynna
áhugamönnum um myndlist. Hann
er einn þekktasti myndlistarmaður
landsins og frumkvöðull þegar kem-
ur að hugmyndalist og mínímalískri
myndlist. Í tilkynningu vegna sýn-
ingarinnar í GAMMA segir að þótt
verk Kristjáns hafi mínímalískt yf-
irbragð og séu knöpp í framsetningu
séu þau líka full af húmor og tilvís-
unum sem hann láti áhorfendur um
að uppgötva. Kristján segi verk sín
„tóm en hlaðin“ og takist í þeim á við
ýmsar spurningar um skilning okkar
á heiminum og möguleikum mynd-
listarinnar. Í fyrri hluta sýning-
arinnar í GAMMA sýnir Kristján
verk sem eru framhald af verkum
hans frá árinu 1996 sem byggjast á
póstkortum sem prentuð hafa verið
fyrir ferðamenn á Íslandi. Í seinni
hluta sýningarinnar sýnir Kristján
verk sem hafa ekki verið sýnd áður á
Íslandi. Gallery GAMMA er í Garða-
stræti 37 í Reykjavík og er opið á
virkum dögum kl. 13-16.
Morgunblaðið/Eggert
Hugmyndaríkur Kristján var einn af forsprökkum SÚM-hópsins.
Kristján sýnir ný
verk í GAMMA
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Gleðibrasssveitin Mnozil Brass
heldur tónleika á mánudaginn,
13. október, í Háskólabíói. Mno-
zil Brass er sjö manna lúðra-
sveit frá Vín í Austurríki, stofn-
uð árið 1992 og skipuð þremur
trompetleikurum, þremur bás-
únuleikurum og einum túbuleik-
ara. Tónleikarnir í Reykjavík
eru hluti af Evrópuferð hljóm-
sveitarinnar sem nú stendur yfir
og er það Sigurður Smári Gylfa-
son sem stendur fyrir þeim.
Sigurður segir sveitina þekkta
í litlum kreðsum hér á landi,
aðdáendur séu flestir hverjir
lúðrablásarar og -nördar.
„Þennan aðdáendahóp á Íslandi
hefur um árabil langað til að
fara á tónleika með þeim og
þessi hópur hefur horft á öll
YouTube-myndbönd með þeim.
Margir eiga orðið mynddiska og
slíkt með þeim og alltof fáir hafa
komist á tónleika þó þeir hafi
farið víða um heiminn á þeim
tíma sem þeir hafa verið starf-
andi,“ segir Sigurður.
Háalvarlegt sprell
„Þeir byrjuðu að leika á krá í
Vín sem heitir Mnozil og margir
af þeim sem stundað hafa tón-
listarnám í Vín þekkja til þeirra
og hafa kynnt fyrir öðrum hér á
landi. Þetta er mjög óhefð-
bundið brassband, þrjár bás-
únur, þrír trompetar og ein túba
og á í sjálfu sér enga fyrirmynd,
það er engin tónlist skrifuð fyrir
svona hljóðfæraskipan,“ segir
Sigurður um Mnozil Brass.
Tónleikar Mnozil Brass eru
meira en tónleikar, ef marka má
myndbönd á YouTube, eins kon-
ar bræðingur tónleika og uppi-
stands, mikið sprell og fíflalæti í
bland við fagmannlega spila-
mennsku.
„Þetta er svona tónlistargrín.
Þeim hefur verið líkt við Monty
Python í músíkinni. Þetta eru
frábærir hljóðfæraleikarar, í
hæsta gæðaflokki en þeir eru
ekkert feimnir við að klæða sig
eins og kjánar og haga sér eins
og fífl. Þeir syngja og dansa og
klæða sig upp í búninga þannig
að ég veit ekki hvað á að kalla
þetta. Þetta er leikþáttur, glens,
gleði og fjör,“ segir Sigurður og
bætir því við að þeir spili tónlist
úr öllum áttum. „Þeir spila tón-
list eftir Queen, kvikmynda-
músík og annað léttmeti í bland
við klassískari stykki í svæsnum
útsetningum en um leið yfirfull
af húmor og ærslum,“ segir Sig-
urður og bætir við að tónleikar
Mnozil Brass séu við allra hæfi,
það eigi allir að geta haft gaman
af þeim.
Tónleikarnir eru þeir fyrstu
sem Sigurður stendur fyrir.
„Þetta var bara þjóðþrifamál að
fá þá til Íslands, þegnskyldu-
verkefni,“ segir hann um tón-
leikana og hlær. Hann hafi
ákveðið að senda hljómsveitinni
póst og nú sé hún loksins á leið-
inni til landsins og miðasala í
fullum gangi á Midi.is.
Þeir sem vilja kynna sér
Mnozil Brass geta gert það á
YouTube og heimasíðu hljóm-
sveitarinnar, www.mnozil-
brass.at.
Frábærir hljóðfæraleikarar
sem haga sér eins og fífl
Austurríska lúðrasveitin Mnozil
Brass heldur tónleika í Háskólabíói
„Þetta er leikþáttur,“ segir
skipuleggjandi tónleikanna
Ljósmynd/Mnozil Brass
Gleðisveit Mnozil Brass er skipuð Thomas Gansch, Robert Rother, Roman Rind-
berger, Leonhard Paul, Gerhard Füssl, Zoltan Kiss og Wilfried Brandstötter.
Þýski rithöfundurinn Siegfried
Lenz lést á þriðjudag 88 ára að
aldri. Dánarorsök var ekki gefin
upp. Lenz tilheyrði þeirri kynslóð
þýskra rithöfunda, sem kennd hef-
ur verið við heimsstyrjöldina síðari
og tók með skrifum sínum þátt í
uppgjöri Þjóðverja við nasismann.
Lenz fæddist í Austur-Prúss-
landi 1926, gekk í Hitlersæskuna
og þjónaði í sjóhernum, en gerðist
liðhlaupi í mars 1945 og sat stutt-
an tíma í fangabúðum hjá Bretum.
Lenz naut mikillar hylli í Þýska-
landi og náðu vinsældir hans út
fyrir raðir lesenda hans. Í bókinni
Deutschstunde (Þýskutíminn)
sýndi hann hvernig hugmynda-
fræði nasista sýkti menningu, sem
hafði stært sig af fágun og visku.
AFP.
AFP
Virtur Siegfried Lenz með pípuna.
Siegfried
Lenz látinn
Framleiðendur
sjónvarpsþátt-
anna Dallas, sem
sneru aftur á
skjáinn 2012,
hafa ákveðið að
hefja ekki vinnu
að fjórðu serí-
unni. Dallas
sagði frá valda-
baráttu innan
Ewing fjölskyld-
unnar vegna olíu. Þættirnir voru
hinir vinsælustu allra tíma en um
300 milljónir manna sáu 356 þætti
upphaflegu raðarinnar sem hóf
göngu sína 1978.
Ewing fjölskyld-
an af skjánum
Átök Ewing bræð-
urnir takast á.