Morgunblaðið - 09.10.2014, Side 65

Morgunblaðið - 09.10.2014, Side 65
UMRÆÐAN 65 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 2014 Umræðan und- anfarið í fjölmiðlum um málefni múslima á Ís- landi, hefur verið óþarflega uggvekjandi, vegna þess að þar hef- ur vantað aðkomu flestra hinna sérfróð- ari, og ábyrgari, og formlegri, aðila, er málið gæti varðað. Þó er þetta vísir að byrjun á alvöru nýbúaumræðu á Íslandi. Miklu máli skiptir því að hér megi myndast þroskuð félagsmála- umræða, sem og samstiga viðbrögð á milli almennings og stjórnvalda, svo allir geti lært að tala og hugsa um þessi mál sem fyrst; og að verða sáttir að kalla. En það gengur síður í litlu landi sem Íslandi, en í stærri löndum, að í nýbúamálum myndist stór ágrein- ingur á milli efnahagslegra og fé- lagslegra þarfa almennings, er kem- ur að sáttinni um að opna landið fyrir innflytjendum frá útlöndum. Æskilegt væri að enn fleiri for- svarsmenn trúfélaga múslima á Ís- landi, styngju niður penna nú um umræðu þessa. Einnig væri uppbyggilegt að heyra meira um skoðanir frá með- limum þeirra sem væru dæmi um það sem helst er verið að gagnrýna um múslima í heimspressunni. Þá stendur það upp á okkur fé- lagsmenn í fræðafélögum, að reyna að koma með okkar sérfræði- innsýnir; svosem mannfræðinga, stjórnmálafræðinga, félagsráðgjafa, kennara, sagnfræðinga; sálfræð- inga; guðfræðinga, heimspekinga, bókmenntafræðinga; og svo fjöl- miðlafræðinga; og lögfræðinga. Þá ættu félagar í vináttufélögum Íslands við hin ýmsu múslimalönd að hafa eitthvað fram að færa; svosem við lönd á borð við Kúvæt, Palestínu, Íran, Líbanon, Egyptaland; og fleiri lönd sem Íslendingar hafa flykkst til. (Þess má til gamans geta, að Vin- áttufélag Íslands og Kanada, sem ég leiði, hefur haldið mót landsvina- félaga, þar sem við buðum m.a. fé- laginu Íslandi-Palestínu að gera grein fyrir sér.) Borgarstjórn Reykjavíkur hefur tjáð sig um lóðarumsókn múslima undir bænahús, en stærsta emb- ættið er kannski innanríkisráðu- neytið; sem arftaki dóms- og kirkju- málaráðuneytisins. Hefur það litla málgleði sýnt um þetta. Í samanburði við umræðu kalda- stríðsáranna, líkist umræðan um múslima umræðunni um önnur ríki sem voru áður mest áberandi í her- verkum á alþjóðavettvangi: Þá voru það Bandaríkjamenn og Sovétmenn, en nú eru það mörg múslimalöndin. En ólíkt því sem var þá, erum músl- imar ekki sérstaklega á könnu utan- ríkisráðuneytisins. (Enda erum við ekki í stríði við þá; nema þá sem að- ilar að hernaði NATÓ í Afganistan. En við höfum sent friðargæsluliða og hjálparstarfsfólk þangað; og einnig áður til Bosníu.) Kvenréttindasamtök okkar, Amn- esty International, og Mannrétt- indastofa, hafa tjáð sig um málefni múslima, enda tengd Sameinuðu þjóðunum. Sendiráð og ræðismannaskrif- stofur múslimalanda á Íslandi mættu einnig láta heyra í sér. Af fjölmiðlastofnunum hafa dag- blöðin leitt umræðuna, og kannski minni útvarpsstöðvar. Ríkisútvarpið síður. En það er kannski einmitt merki um að uppbygging svo eld- fimrar umræðu krefst innleggs frá svo mörgum fleiri aðilum til að geta náð þroska. Dómsmálaráðuneytið hefur ekki enn haft frumkvæði að því að ákæra meinn fyrir meiðyrði; enda væri það hæpið í stöðunni nú, að ætla almenn- ingi að verða eins orðvar og atvinnu- fjölmiðlamennirnir, á þessu þroska- stigi umræðunnar. Kirkjumálaráðuneytið hefur ekki tekið sérkristna afstöðu í málinu, enda hlutdrægur aðili. Sem félagi í Ása- trúarfélaginu leyfist mér að fullyrða: Það ber að virða trúarbrögð annarra, svo fremi sem þeir brjóta ekki lög. Hér hafa verið nefndir margir helstu aðilarnir sem gætu komið að umræðunni. Þó má einnig nefna að Samfylkingin hefur komið múslimanýbúa á Alþingið; en það er ein aðsópsmesta fjölmiðla- kona nýbúa: frú Tamimi frá Palest- ínu. Ætti eitthvað að geta heyrst úr hennar horni! Einnig má nefna að Háskólinn á Akureyri hefur gert baráttukonu í mannréttindamálum frá Íran að heiðursdoktor hjá sér. Ætti þeim því ekki að vera um megn að tjá sig um múslimaumræðuna líka. Þá má ekki gleyma að Reykjavík- urborg hefur veitt rithöfundi frá Líbanon hæli á Íslandi af mannúðar- ástæðum, og mun hann nú vera orð- inn íslenskur ríkisborgari! Enn má minna á að núverandi borgarfulltrúi Framsóknarflokksins gerði út á múslimaumræðuna í síð- ustu sveitarstjórnarkosningum. Mætti ekki spyrja hana frekari ráða? Þó eru skáld einna duglegust við að tjá sig um slík tilfinningamál. Ég kemst einna næst því að tjá mig um heimsfréttir frá múslimaríki í dæmi sem er að finna í fimmtándu ljóða- bók minni, Væringjaljóðum (2014). Er það í ljóði sem heitir Þessi Per- vez Muzharraf, og sem rekur feril þessa fyrrverandi einræðisherra í Pakistan. En þar segir meðal annars svo: Fyrst var það þjónkunin við Bandaríkin. En voru ekki skæruliðar að rífa í sundur landið? Svo var það dómurinn yfir hópnauðg- urunum. En mátti konan ekki neita að giftast? Allavega var refsingunni aldrei framfylgt. Loks var það umsátrið um moskuna þar sem hermdarverkamennirnir höfðu samansafnast. Gat hann þá látið slíkt viðgangast í höf- uðborginni? Á eftir fylgdu máttleysislegar fjölda- handtökur. Aðilar sem vantar að múslimaumræðunni Eftir Tryggva V. Líndal »Miklu máli skiptir því að hér megi myndast þroskuð fé- lagsmálaumræða... Tryggvi V. Líndal Höfundur er skáld og menningar- mannfræðingur. SPORT MARKAÐUR 2 FYRIR 1 DAGANA 9.-13.OKT OPIÐ: MÁN. - FÖS. KL. 12 - 18 - LAU. KL. 12-16 EKKI MISSA AF ÞESSU! AF CASALL BOLUM! MÖRKIN 6 108 REYKJAVÍK S:520-1000 SPORTIS.IS *GREIÐA ÞARF FYRIR DÝRARI BOLINN
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.