Morgunblaðið - 09.10.2014, Blaðsíða 38
38 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 2014
islandsbanki.is Netspjall Sími 440 4000 Facebook
Rauðir dagar 6.-10. október
Síðdegisboð VÍB
Ídag býður VÍB til síðdegisopnunar milli kl. 16.00-18.00.
Sérfræðingar VÍB verða á staðnum og bjóða upp á ráðgjöf, spjall og svör
við spurningum um sparnað, fjárfestingar og séreignarsparnað. Einnig verða
óformlegar spjallstofur þar sem gestum gefst tækifæri til að taka þátt í umræðum
um verðbólgu og efnahagsmál, skuldabréfamarkaðinn og hlutabréfamarkaðinn.
Boðið verður upp á veitingar frá Búrinu.
Íslandsbanki Kirkjusandi. Fim. 9. okt. kl. 16.00-18.00
Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Á dagskránni í dag er meðal annars síðdegisfundur
VÍB um sparnað, fjárfestingar og séreignarsparnað.
Kynntu þér dagskrá Rauðra daga á islandsbanki.isbanki.is
Þú gætir unnið iPhone 6
Notaðu Íslandsbanka Appið í október og þú ert
með í leiknum. Kynntu þér Appið og iPhone leikinn
á islandsbanki.is
SVIÐSLJÓS
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Vel virðist horfa með bókanir og
áhuga erlendra ferðamanna á norður-
ljósaferðum hér á landi í vetur. Gosið
í Holuhrauni hefur kallað á ein-
hverjar afbókanir eða fyrirspurnir
ferðamanna en fleiri hafa hins vegar
sýnt áhuga á að sjá gosið berum aug-
um. Mikil ásókn er því í flugferðir yfir
eldgosið norðan Vatnajökuls.
Friðrik Pálsson á Hótel Rangá,
sem gerir sérstaklega út á að sýna
ferðamönnum norðurljósin, segir vet-
urinn líta mjög vel út.
„Við höfðum áhyggjur af því að
umfjöllun í erlendum fjölmiðlum yrði
ekki eins mikil og hún hefur verið.
Hún er eitthvað minni en við tókum
okkur til og reyndum að bæta um
betur. Við settum upp stjörnuskoð-
unarhús og höfum auglýst grimmt
hjá okkar viðskiptavinum að þetta sé
hrein viðbót við norðurljósaferðir.
Hvort sem það er því að þakka eða
ekki, þá er bókunin í vetur á við það
sem var í fyrra,“ segir Friðrik.
Hann segir vertíðina þegar hafna.
Skilyrði til norðurljósaferða hafi verið
ágæt, þrátt fyrir rysjótta tíð. Fyrstu
ljósin hafi sést 15. ágúst síðastliðinn
en héðan í frá megi reikna með norð-
urljósum á himni allt fram í mars eða
byrjun apríl.
„Gestirnir sem til okkar koma hafa
getað treyst því að við vekjum þá hve-
nær sem er að nóttu til ef norður-
ljósin sjást. Þetta gerðist síðast um
miðja nótt fyrir stuttu og þá voru
gestirnir komnir út á hlað örfáum
mínútum síðar, sumir í náttfötum en
aðrir fullklæddir,“ segir Friðrik.
Hann segir miklu skipta að ferða-
menn sem til þeirra koma, sem líta á
það sem meginmarkmið að fá að sjá
norðurljósin, séu vel búnir undir það
að sjá ljósin ekki.
„Þeir skilja að þetta er bara bónus
og þiggja því mikla afþreyingu hjá
okkar samstarfsaðilum. Öll sú af-
þreying, sem er í boði á sumrin, er
einnig á veturna nema þá helst lax-
veiðin og golfið.“
Aðspurður segir Friðrik að eld-
gosið í Holuhrauni hafi vissulega haft
einhver áhrif á eftirspurnina. Að-
allega séu það ferðamenn frá Suð-
austur-Asíu sem vilji síður taka mikla
áhættu með löngu flugi til Íslands, ef
ske kynni að frekari eldgos yrðu með
tilheyrandi truflun á flugumferð.
Hann segist hafa nýlega verið á ráð-
stefnu í S-Evrópu þar sem gosið í
Holuhrauni kom til tals. „Hið merki-
lega var að nær allir báru þetta sam-
an við gosið í Eyjafjallajökli 2010. Það
virðist sem alþjóðafjölmiðlar hafi búið
til þessi áhrif í fyrstu, þegar flug-
vandræðin 2010 voru rifjuð upp. Sem
betur fer hefur það ekki gerst en ég
býð ekki í það ef hlutirnir endurtaka
sig,“ segir Friðrik.
Á náttfötum í norðurljósaferðir
Vel horfir með bókanir í norðurljósaferðir í vetur Ferðamenn eru vaktir upp um miðja nótt á
Hótel Rangá ef sést til norðurljósa Afbókanir vegna eldgossins koma einkum frá Suðaustur-Asíu
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Norðurljós Erlendir ferðamenn hafa komið til landsins í stórum stíl yfir veturinn til að sjá norðurljósin.
Guðrún Þórisdóttir, sölustjóri
Iceland Excursions - Gray Line
Iceland, segir eftirspurn eftir
norðurljósaferðum mjög svip-
aða og í fyrra, sem var metár.
Fyrirtækið er með daglega rútu-
ferð að kvöldi til og eftir 15.
október verða farnar tvær ferðir
á dag. Bætt verður við sér-
stökum lúxusferðum, þar sem
farnar verða lengri ferðir, allt
upp undir átta tíma og boðið
upp á mat og kaffi á leiðinni.
Fullbúnar rútur verða notaðar í
ferðirnar, með salerni og öllu
tilheyrandi, og stoppað lengur á
hverjum stað en í hefðbundnum
ferðum.
Guðrún segist lítið finna fyrir
áhrifum eldgossins á bókanir.
Mest hafi verið spurt fyrstu
dagana eftir að gosið hófst en
nú berist varla fyrirspurnir eða
afbókanir. „Við finnum mikinn
áhuga ferðamanna, sem hingað
eru komnir, á því hvernig þeir
geti komist að eldstöðvunum og
séð gosið með eigin augum,“
segir hún.
Lúxusferðir
á lengri leið
ICELAND EXCURSIONS