Morgunblaðið - 09.10.2014, Blaðsíða 98

Morgunblaðið - 09.10.2014, Blaðsíða 98
98 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 2014 Von er á tíu bókum frá Bókabeit- unni fyrir komandi jól, þar af fjórum íslenskum. Sjötta bókin í bóka- flokknum Rökkurhæðir eftir Mörtu Hlín Magnadóttur og Birgittu Elínu Hassell nefnist Vökumaðurinn. „Pétur Kristinn er nýfluttur í gamla húsið við Kirkjulund 1. Aðeins eru nokkrar vikur síðan þar áttu sér stað hræðilegir atburðir en Pétur Kristinn er viss um að þar sé ekkert illt á sveimi. Þar til hann rekur aug- un í dularfullar verur sem eru eitt- hvað að baksa í garðinum hans, garðinum sem liggur upp að kirkju- garðinum,“ segir m.a. í tilkynningu. Kamilla Vindmylla og svikamyll- urnar eftir Hilmar Örn Óskarsson nefnist þriðja bókin um hina mál- glöðu Kamillu. Í bókinni þarf hún að kljást við algjörlega nýtt vandamál, en sem betur fer eru vinir hennar ekki langt undan. Einnig kemur út eftir Hilmar Örn bókin Funi og Alda falda sem sniðin er að þörfum nýrra lesenda og kjörin fyrir þá sem eru að æfa sig í lestri. Bókin fjallar um Funa sem veit fátt skemmti- legra en að hanga í tölvunni. „Mamma er ekki sammála og heimt- ar að hann fari út að leika. Einn góðan veðurdag þegar hann hangir úti, í einni af ferlegu fýlunum, hittir hann dularfulla stelpu sem fer með hann í stórkostlegt ferðalag.“ Verðlaunabækur að utan Erlendu bækurnar sem Bókabeit- an gefur út hafa allar verið verðlaunaðar í heimalöndum sínum. Fyrst ber að nefna Arfleifð sem er þriðja bókin í þríleik eftir Veronicu Roth í þýðingu Magneu J. Matthías- dóttur. „Fylkjakerfið sem Tris Prior fæddist inn í er í upplausn. Ofbeldi og valdabarátta, tortryggni og miss- ir hafa splundrað samfélaginu og þegar Tris fær tækifæri til að kanna heiminn utan borgarinnar grípur hún það fegins hendi. En veruleik- inn utan borgarmarkanna er enn skelfilegri en nokkuð sem hún hefði getað ímyndað sér. Sannleikurinn kollvarpar öllum hennar áformum og krefst þess að Tris taki erfiðar ákvarðanir.“ Teningur Mortímers eftir Ken- neth Bøgh Andersen í þýðingu Hörpu Jónsdóttur er önnur bókin í fjögurra bóka seríu sem nefnist Djöflastríðið, en fyrsta bókin, Lær- lingur djöfulsins, kom út í íslenskri þýðingu í fyrra. „Filip er kominn aftur heim eftir ævintýri sín sem lærlingur Djöfulsins. Hann saknar Satínu, Skuggaskeggs og hinna vin- anna og gleðst því mikið þegar hann er kallaður til baka, þó ástæðan sé ekki góð. Undirheimarnir allir og lífið sjálft er nefnilega í uppnámi. Teningi Mortímers hefur verið rænt sem veldur því að allar manneskjur fæðast ódauðlegar. Mortímer þarfn- ast hjálpar og Filip semur við hann um laun sem eru upp á líf og dauða.“ Eleanor og Park eftir Rainbow Rowells í þýðingu Mörtu Hlínar Magnadóttur fjallar um fyrstu ást- ina. Eleanor er nýja stelpan í skól- anum og fellur alls ekki inn í hópinn þar sem hún er í ósamstæðum föt- um úr Rauðakrossbúðinni og með úfnar, rauðar krullur. Park er hljóð- látur og framandi, en í augum Eleanor óendanlega svalur. Park hefur áttað sig á því að besta leiðin til að þrauka skólann er að láta lítið fyrir sér fara. Barnabækur um veðrið og liti Inn í sortann eftir Celine Kiernan fjallar um tvíburabræðurna Patrick og Dominick Finnerty sem þurfa að hafast við á sumardvalarstað fjöl- skyldunnar eftir að heimili þeirra brennur til grunna. „Undarleg vera tekur sér bólfestu í líkama Dom- inicks og hinn fimmtán ára gamli Patrick er sá eini sem tekur eftir að eitthvað sé athugavert.“ Þýðandi er Birgitta Elín Hassell. Von er á fyrstu bókinni af fjórum í bókaflokknum Seiðfólkið eftir Jo Salmson og Natalia Batista í þýð- ingu Önnu R. Ingólfsdóttur. „Arel er í herþjálfun. Enós er kominn af kaupmönnum. Sól elst upp hjá elda- buskunni. Þau eru vinir – en enginn má vita það. Þegar þau uppgötva hræðilegt leyndarmál breytist allt.“ Auk þess koma út barnabæk- urnar Vinur minn, vindurinn eftir Bergrúnu Írisi Sævarsdóttur sem fjallar um veðrið og Þegar litirnir fengu nóg eftir Drew Daywalt í þýð- ingu Birgittu Elínar Hassell, með myndskreytingum eftir Oliver Jef- fers, sem fjallar um ósamlyndi lit- anna. silja@mbl.is Djöflastríð, Rökkurhæðir og seiðfólk  Bókabeitan sendir frá sér tíu bækur  Von á Arfleifð, síðustu bókinni í þríleik Veronicu Roth Kenneth Bøgh Andersen Morgunblaðið/Styrmir Kári Útgefendur Birgitta Elín Hassell og Marta Hlín Magnadóttir. Veronica Roth Benedikta Br. Alexandersdóttir benedikta@mbl.is „Ég er að reyna að tækla þennan íslenska, hráa raunveruleika, þenn- an hversdagsleika sem við gleym- um gjarnan að taka eftir, hvað þá að taka mynd af með minninu eða myndavélinni,“ segir Hallgerður Hallgrímsdóttir ljósmyndari um nýjustu einkasýningu sína Hvass- ast úti við sjóinn í Listasafni ASÍ á laugardaginn, 11. október, kl. 15. Sýningin er fyrsta stóra einkasýning Hallgerðar en hún hefur staðið að minni sýn- ingum bæði hér- lendis og í Glas- gow í Skotlandi, þar sem hún lauk námi í Fine Art Photography við Glasgow School of Art. Hallgerður hefur alltaf heillast af hversdagslegri fegurð og beinir sjónum sínum gjarnan að hvers- dagslegum augnablikum lífsins. Hún segir sýninguna að einhverju leyti uppreisn gegn íðilfögrum landslagsljósmyndum sem Íslend- ingar þekkja svo vel og sýna upp- hafið landslag Íslands. Þá leitast hún frekar við að sýna og setja hversdagsleikann á stall. Samval mynda segir sögu Sýningin samanstendur af fjór- um verkum þar sem Hallgerður vinnur með ljósmyndir, texta og fundið efni til þess að draga fram hljóðlátan og gleymdan hversdags- leikann. Ljósmyndirnar eru sam- ansafn mynda Hallgerðar frá síð- ustu árum sem hún hefur m.a. safnað með því að ferðast vítt og breitt um landið. Myndirnar eru því af mörgum stöðum á landinu, sumar teknar á fjallstindi, aðrar á sléttu. Hallgerður notar ljósmyndamið- ilinn á afgerandi hátt en í verkum hennar er mikið lagt upp úr úrvali og samsetningu mynda. Þá telur hún ferlið þar sem hún velur hvaða myndir eiga heima í sýningunni og skapa heild eða sögu vera mik- ilvægara en myndatökuna sjálfa og einbeitir hún sér því frekar að því. „Ég einbeiti mér að því hvernig myndirnar eiga saman því um leið og maður sér meira en eina mynd á vegg eða í bók þá förum við sjálf- krafa að tengja þær og búa til sögu. Samval mynda og samhengið er því það sem er athyglisvert fyrir mér,“ segir Hallgerður. Hallgerður segist meðvituð um ljósmyndamiðilinn og vill að áhorf- endur séu meðvitaðir um að ljós- mynd er aðeins tillaga eða túlkun á raunveruleikanum en ekki sann- leikurinn. „Þú getur ímyndað þér að marg- ir mismunandi ljósmyndarar hafi tekið myndirnar. Ég reyni að ná því fram með því að blanda saman ólíkum stílum og jafnvel gera mis- tök við framköllun myndanna. Þannig er ég að minna áhorfendur á að þetta er ljósmynd, ekki sann- leikurinn.“ Safnaði orðum úr veðurfrétt- unum og lýsingum á veðri Veður skipar ákveðinn sess í sýningu Hallgerðar. Yfirskrift sýn- ingarinnar, Hvassast úti við sjóinn, kemur úr veðurfréttunum og í einu verki sýningarinnar safnaði Hall- gerður saman íslenskum orðum um veður úr veðurfréttum og lýsingum af veðri. „Ég komst að því að við eigum ekkert sérstaklega mikið af orðum yfir gott veður en við eigum hins vegar fjöldann allan af ynd- islega skemmtilegum orðum yfir slæmt veður,“ segir Hallgerður um verkið. Þá gerði Hallgerður einnig myndaröð af misfallegum íslensk- um húsum og kallar hún hana „Gluggaveður.“ Hallgerður telur veðrið eiga vel við íslenskan hvers- dagsleika og sýningu sína. „Það er ekkert hversdagslegra en veð- urfréttir,“ segir Hallgerður. Fjórða verkið samanstendur af póst- kortum sem sýna íslensk eldgos. „Í því verki fæ ég lánaðar myndir frá okkar færustu ljósmyndurum en mitt framlag er að setja þau saman í eitt verk sem bendir á þessa und- arlegu sýn okkar á náttúruhamfar- ir,“ segir Hallgerður. Sýningin stendur til 2. nóvember og er safnið opið alla daga nema mánudaga kl. 13-17 og er aðgangur ókeypis. Hversdagsleg fegurð heillar  Hallgerður Hallgrímsdóttir opnar ljósmyndasýninguna Hvassast úti við sjóinn í Listasafni ASÍ á laugardaginn  Yfirskrift sýningarinnar er úr veðurfréttunum, að sögn Hallgerðar Kastali Hallgerður gerði myndaröðina „Gluggaveður“ af íslenskum húsum. Venus Ein af ljósmyndum Hallgerðar á sýningu hennar. Hallgerður Hallgrímsdóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.