Morgunblaðið - 09.10.2014, Side 20

Morgunblaðið - 09.10.2014, Side 20
BAKSVIÐ Guðni Einarsson gudni@mbl.is Verk listakvennanna Gerðar Helga- dóttur og Nínu Tryggvadóttur setja mikinn svip á Skálholtsdómkirkju. Glerlistaverkin sem prýða kirkju- gluggana eru eftir Gerði og mósaík- altarismyndin var unnin eftir vatns- litamynd Nínu. Á liðnu sumri var liðið 51 ár frá vígslu kirkjunnar og nú er svo komið að gera þarf við skemmdir sem orðið hafa á gler- listaverkunum og altarismyndinni. Illa farnir af raka og fúa Steindir gluggar Gerðar Helga- dóttur í Skálholti liggja undir skemmdum. Gerð hefur verið áætl- un um viðgerð þeirra, eins og greint var frá í Morgunblaðinu 1. október sl. Aðalástæða skemmdanna er að of lítið loftrými var á milli hlífðarglers- ins að utan og steindu glugganna. Hitabreytingar valda saggamyndun á milli gluggabyrðanna. Sumir gluggarnir í Skálholts- dómkirkju eru orðnir svo feysknir að menn óttast að þeir kunni að detta úr komi sterkur jarðskjálfti, að sögn séra Kristjáns Vals Ingólfs- sonar vígslubiskups. Einu sinni eftir slagviðri sá hann allt að 40 senti- metra djúpt vatn á milli glerja í ein- um glugganum. Kristján Valur sagði það lengi hafa verið ljóst að gera þyrfti við kirkjugluggana. Jóhannes Ingibjartsson, formaður bygginga- og listanefndar þjóðkirkj- unnar, fór í Skálholt 2005 til eftirlits og skoðaði um leið kirkjugluggana. Þá var fúi kominn í tréverkið og ým- islegt annað að og ljóst að gluggarn- ir lágu undir skemmdum. Þegar Kristján Valur var starfsmaður Biskupsstofu var hann fenginn árið 2009 til að skrifa Oidtmann- glerlistafyrirtækinu í Linnich í Þýskalandi þar sem Gerður Helga- dóttir vann gluggana. Vinna við gerð þeirra og uppsetningu hófst 1959. Dr. Stefan Oidtmann kom til landsins 2010 og gerði úttekt á gluggunum og skilaði skýrslu um Altarismyndin Eftir Suðurlandsskjálftana árið 2000 kom fram mjó sprunga í mósaíkmyndinni. Gera þarf við fúgurnar þar sem sprungan er. Morgunblaðið/RAX Skálholtsdómkirkja Steindu gluggarnir hennar Gerðar Helgadóttur og mósaíkaltarismyndin eftir Nínu Tryggvadóttur setja mikinn svip á kirkjuna. Í vet- ur er stefnt að fjársöfnun til að standa straum af viðgerð á listglerinu og gluggaumbúnaðinum. M.a. þarf að skipta um burðarvirki glugganna. hvað þyrfti að gera. Kristján Valur tók við í Skálholti haustið 2011 og segir brýnt að gera við skemmd- irnar. Tilboð Oidtmann í viðgerðina á listglerinu hljóðar upp á rúmlega 25 milljónir króna. Þá er eftir að borga fyrir flutning á glerinu í viðgerð og heim, nýtt hlífðargler, efni og við- gerð á burðarvirki glugganna. Ljóst er að því fylgir talsverður kostn- aður. Gjöf til þjóðkirkjunnar Kristján Valur rifjaði upp að stjórnvöld hefðu fært þjóðkirkjunni Skálholt að gjöf árið 1963 með öllum gögnum hennar og gæðum. Fram kom í frumvarpi til laga um gjöfina að um væri að ræða „verðmæta al- þjóðareign“ og að hún ætti að verða til „sem mestra nytja fyrir þjóðina í andlegu og menningarlegu tilliti“. Kristján Valur sagði mikilvægt að hafa í huga að Skálholt væri ekki einungis eign þjóðkirkjunnar heldur einnig þjóðarinnar allrar. Fúgan sprakk í jarðskjálfta Altarismynd Skálholtsdómkirkju er mikil mósaíkmynd sem gerð var eftir vatnslitamynd Nínu Tryggva- dóttur. Myndin var unnin hjá verk- stæði Oidtmann í Linnich í Þýska- landi, því sama og vann glerlistaverk Gerðar Helgadóttur. Hver og ein mósaikflís mynd- arinnar er merkt með númeri að aft- anverðu og var stuðst við þau við uppsetningu myndarinnar. Í Suður- landsskjálftunum sumarið 2000 kom fram sprunga í myndinni og þarf að laga fúgur á milli flísanna þar sem sprungan er. Gera þarf við glerlistaverk og a  Skálholtsdóm- kirkja var vígð í júlí 1963. Nú er kominn tími á við- hald og fjársöfnun er í undirbúningi 20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 2014 Skálholtsfélagið hið nýja ætlar að efna til fjáröflunar í vetur vegna viðgerðar á gluggum og gler- listaverkum Skálholtsdómkirkju. Í fyrra var haldið upp á 50 ára vígsluafmæli Skálholtskirkju. Séra Kristján Valur Ingólfsson vígslubiskup stóð þá fyrir stofnun félagsins. Skálholtsfélagið hið eldra vann að endurreisn Skálholtsstaðar fyrir meira en hálfri öld. Formaður stjórnar Skálholtsfélagsins hins nýja er Jón Sigurðsson, rekstrarhagfræðingur, fyrrverandi seðlabankastjóri og ráðherra. Hann sagði að stjórn félagsins mundi leita eftir nákvæmri kostnaðaráætlun vegna viðgerðar glugganna hjá Biskupsstofu. „Við höfum verið í sambandi við dr. Stefan Oidtmann varð- andi það sem að þeim snýr. Það þarf að taka steindu gluggana niður og setja í glugga til bráðabirgða, væntanlega með filmum sem gefur ímynd glugganna. Steindu gluggana þarf að senda til Þýskalands til viðgerðar. Á meðan þarf að gera við glugga- umbúnaðinn. Þetta verkefni getur tekið eitt til tvö ár og kostað ef til vill 40-50 milljónir,“ sagði Jón. Stofna á sérstakan sjóð vegna söfnunarinnar og fá staðfest- ingu ríkisskattstjóra á því að framlög í sjóðinn verði frádrátt- arbær hjá lögaðilum. Jón sagði ekki raunhæft að reyna fjáröfl- unina án þess að þetta lægi fyrir. „Þetta er stórkostlegt verkefni sem mun taka marga mánuði að vinna. Það þorir eng- inn að leggja af stað í viðgerðina fyrr en búið er að ljúka fjár- mögnuninni. Þetta er meginverkefnið sem við höfum hugsað niður því þar vantar gangstíga. Jón sagði að Þorláksbúð væri listaverk af hendi Gunnars heitins Bjarnasonar en heimamenn vissu ekki hvernig ætti að nýta húsið. Hugmyndin er að minn- ingarmarkið um Ragnheiði Brynjólfsdóttur verði suðaustur af Þorláksbúð. Þá nefndi Jón að ekki væri búið að gera fornleifa- rannsóknir nema á þriðjungi gamla Skálholtsstaðar og þar biðu mikil verkefni á sviði fornleifarannsókna. Næsta stórverkefni á eftir gluggaviðgerðinni verður að vinna að því að Skálholtsbókasafn fái framtíðaraðstöðu sem hæfir þessu dýrmæta safni, að sögn Jóns. Einnig á að láta laga dönsku kirkjuklukkuna sem brotnaði árið 2002. Þá hefur verið rætt um að gera þurfi göngustíga ekki síst til þess að verja kirkjugarðinn þeim mikla ágangi sem þar er. Í votviðrinu á liðnu sumri traðkaðist jarðvegurinn víða niður í svörð. Í móttökuhúsi við bílastæðið í Skálholti er sýning, en sú aðstaða er ófullnægj- andi fyrir gesti staðarins, að mati Jóns. Hann sagði ekki gott ef óvissa fengi að ríkja um hver framtíð Skálholts ætti að vera. „Við hugsum um Skálholtsstað sem biskupsstól með dómkirkju og menningarsetur sem er opið gestum. Það er til önnur hugmynd og hún er um Skálholtsstað sem ferðamannamiðstöð með dómkirkju. Þjóðkirkjan þarf að gera það upp við sig hvora leiðina hún vill fara,“ sagði Jón. „Þarna bíða ótal verkefni. Draumur okkar er að fá samþykki og ákvörðun nýs kirkjuráðs um fjársöfnun í vetur. Við höfum sam- ið drög að skipulagsskrá sjóðsins og munum leggja hana fram. Eftir það getum við gengið í fyrirtæki og beðið um stuðning.“ mest um, hvernig við getum hjálpað til að afla fjár svo gert verði við þessa glugga.“ Jón sagði að í skattalögum væri ákvæði um skattaafslátt lögaðila og þeir gætu varið allt að 0,5% af tekjum til við- urkenndra málefna án þess að greiða skatt af gjöf- inni. Jón sagði að þetta gætu stór fyrirtæki gert og væri framlaginu dreift á 2-3 ár gæti fjáröflun af þess- ari stærðargráðu orðið raunhæf. Minningarmark um Ragnheiði Jón sagði stefnt að því að Skálholtsfélagið hið nýja héldi innan tíðar fund með heimamönnum og nágrönnum Skálholts- dómkirkju. Þar á að fara yfir hugmyndir félagsins um aðgerðir til stuðnings Skálholti og viðhalds á staðnum. Einnig er verið að athuga með hvaða hætti megi útbúa minningarmark um biskupsdótturina Ragnheiði Brynjólfsdóttur og fjölskyldu hennar í Skálholti. „Þjóðin hefur áhuga á þeirri sögu og máli Ragnheiðar. Það væri virðingarvert og ánægjulegt að geta gert því vegleg skil á staðnum. Gröf þeirra er sennilega 4-5 metra austan við kirkjuna,“ sagði Jón. Hann sagði að dómkirkjan í Skálholti hefði gegnt sínu hlutverki með mikilli prýði en þegar betur væri skoðað sæist að þar lægi ýmislegt undir skemmdum. Auk glugganna þyrfti að laga kirkjuklukku og huga að framtíð Skálholtsbókasafns. Austan við dómkirkjuna er kirkjugarður og inni í honum var Þorláksbúð reist. Svæðið í kringum Þorláksbúð er að troðast Ætla að safna fyrir viðgerð á steindu gluggunum SKÁLHOLTSFÉLAGIÐ HIÐ NÝJA HEFUR ÞAÐ MARKMIÐ AÐ STUÐLA AÐ UPPBYGGINGU OG VIÐHALDI SKÁLHOLTSSTAÐAR Jón Sigurðsson
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.