Morgunblaðið - 09.10.2014, Page 30

Morgunblaðið - 09.10.2014, Page 30
Í STÚKUNNI Benedikt Bóas benedikt@mbl.is „Það er auðvitað ekki hægt að tala um kostnað í þessum efnum, því þó að fjárhagsútgjöld hafi verið tölu- verð höfum við fengið þau margfalt til baka með ógleymanlegum augna- blikum og sigrum. En ef við ættum að nefna tölu þá hefur sá sem hefur farið á alla leiki sennilega borgað í kringum meðalmánaðarlaun Íslend- ings,“ segir Viktor Örn Hólmgeirs- son, einn af forsprökkum Silf- urskeiðarinnar, stuðningsmannasveit Stjörnunnar, sem litaði Íslandsmótið í fótbolta svo fallegum litum í sumar. Viktor og félagar hafa stutt Stjörnuna með ekki síðri tilþrifum en liðið inni á vellinum sem hampaði sínum fyrsta Íslandsmeistaratitli á laugardaginn. Allt þetta byrjaði þeg- ar Stjarnan var í fyrstu deild. „Þetta byrjaði með Suberstar sem var virk og góð stuðningsgrúppa handboltans á tímum georgíska óð- alsbóndans Tite Kalandadze og landsliðskempunnar Rolands Eradze. Þegar Stjarnan var við það að rísa upp úr 1. deildinni í fótbolt- anum sumarið 2008 byrjuðu Su- berstar-menn að mæta á fótbolta- leiki og hvetja strákana til sigurs. Með aukinni velgengni inni á vell- inum eykst áhuginn í stúkunni, hóp- urinn stækkaði og fljótlega heyrði Suberstar-nafnbótin sögunni til og Silfurskeiðin var fædd. Ætli við höf- um ekki verið í kringum 8-10 strákar að hvetja Stjörnuna áfram í fyrstu deildinni, og hér erum við 6 árum síðar búnir að rífa ótal Garðbæinga með okkur í lið.“ Vinnuveitendur sýna skilning Viktor segir að meðlimir Silf- urskeiðarinnar séu tilbúnir að leggja ýmislegt á sig til að styðja sitt lið og vinnuveitendur þeirra hafi góðan skilning á þessum stuðning. „Menn eru auðvitað tilbúnir að ganga langt til þess að redda sér fríi í vinnu og fylgja sínu liði. Vinnuveitendur okk- ar hafa verið afar skilningsríkir gagnvart mörgum utanlandsferðum og stórleikjum sem drifið hafa á daga okkar í sumar.“ Stjarnan komst langt í Evr- ópukeppninni í sumar og spilaði í Wales, Skotlandi, Póllandi og endaði ævintýrið í Mílanó þar sem þeir léku við ítalska stórliðið Inter. Í aðdraganda leikjanna við Inter hjálpaði Stjarnan sínum stuðnings- mönnum mikið að sögn Viktors. Seg- ir hann að þó að Silfurskeiðin sé stuðningsaðili Stjörnunnar þá sé Stjarnan líka stuðningsaðili Silf- urskeiðarinnar. „Við erum í mjög góðu sambandi við forráðamenn Stjörnunnar og þeir eru duglegir að hjálpa okkur með ýmislegt sem kemur upp, eins og til dæmis í að- draganda leiksins gegn Inter á Laugardalsvelli, en við borgum glað- ir fyrir okkar árskort á Samsung- völlinn,“ segir hann og brosir. Fyrir hinn almenna knattspyrnu- áhugamann er ákaflega gaman að koma á knattspyrnuvöll þar sem Stjarnan er að spila og sjá og heyra stuðninginn sem liðið fær. Það sem vekur kannski mesta eftirtekt er bræðralagið sem er á milli leik- manna og stuðningsmanna. „Margir leikmanna hafa verið vinir Skeið- armanna frá blautu barnsbeini. Það breytist auðvitað ekkert þó að þeir séu úti á vellinum og við uppi í stúku. Það mætti jafnvel segja að Silf- urskeiðin hefði byrjað vegna þess að nokkrir strákar vildu mæta á völlinn að styðja við vini sína sem voru í lið- inu í fyrstu deild, svo þetta bræðra- lag okkar og leikmanna er okkur öll- um mjög mikilvægt.“ Þrátt fyrir að vera enn hásir eftir að hafa hvatt liðið sitt til dáða á laug- ardaginn eru Viktor og félagar byrj- aðir að hugsa um næsta sumar. „Það má alltaf gera betur og okkar tak- mark er að hver einn og einasti áhorf- andi á Samsung-velli taki undir með Skeiðinni og að Silfurskeiðin vaxi enn frekar. Það er margra ára verkefni þó að grettistaki hafi verið lyft í ár og viljum við þakka Garðbæingum kær- lega fyrir frábærar undirtektir. Von- andi náum við að bæta okkur á milli ára enda verður sannarlega tilefni til stórræða á næsta tímabili þar sem við munum spila í Meistaradeild Evr- ópu og freista þess að verja titilinn. Við getum í það minnsta ekki beðið eftir því að byrja aftur.“ Ein mánaðarlaun en ótal minningar  Stuðningsmenn Íslandsmeistara Stjörnunnar settu svip á Íslandsmótið  Hafa sungið, trallað og skemmt sér og öðrum í allt sumar  Byrjaði allt með 8-10 strákum í fyrstu deildinni Skotastemning Silfurskeiðin í að- draganda leiksins við Motherwell. Morgunblaðið/Styrmir Kári Bræðralag Margir leikmanna Stjörnunnar hafa verið vinir Skeiðarmanna frá blautu barnsbeini. Mikið bræðralag er á milli Silfurskeiðarinnar og leik- manna eins og hér sést þegar Ólafur Karl Finsen hafði tryggt liðinu sigur á Keflavík. Hann hljóp beint til stuðningsmanna. 30 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 2014 Ný sending • Fallegar peysur • Tunikur • Bolir • Buxur • Leggings Fyrir konur á öllum aldri Stærðir s-xxxl Ný sending af velúrgöllum Tax free af öllum snyrtivörum í október Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170 „Þeir sem eru að gagnrýna okkur ættu kannski að prófa að mæta í Skeiðina í einn leik áður en þeir út- húða okkur sem fyllibyttum. Á heild- ina litið eru áhrif Skeiðarinnar mjög góð,“ segir Viktor Örn. „Á leikina mæta ungir krakkar sem kunna allan söngkatalóginn og syngja hástöfum með. Í leikjum þar sem við höfum verið slappir hafa krakkarnir, sem við köllum Teskeið- arnar, rifið þetta í gang. Svo mæta þau á yngri flokka leiki með trommu og hvetja liðið sitt áfram. Þetta er næsta kynslóð Silfurskeiðarinnar sem við bindum miklar vonir við. Sumir eru gjarnir á það að kalla okk- ur illum nöfnum, en að okkar mati er ekkert rangt við það að fá sér bjór fyrir leiki og auðvitað er allt gott í hófi. Þetta er skemmtilegur og menn- ingarlegur vettvangur fyrir fé- lagsmenn að stunda áhugamál sitt, og menn eru í þessu til að skemmta sér og öðrum. Þeim sem þykir það svona hrikalega neikvætt og leiðinlegt líkar sennilega bara illa við okkur af öðrum ástæðum og reyna þar af leiðandi að benda á neikvæðu hliðarnar.“ Morgunblaðið/Ómar Stuð Silfurskeiðin gefur lítið fyrir þær fullyrðingar að stuðningsmanna- sveitin sé bara guttar með drykkjulæti. Skemmta sér og vonandi öðrum  Silfurskeiðin um gagnrýni um drykkjulæti
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.