Morgunblaðið - 09.10.2014, Page 39

Morgunblaðið - 09.10.2014, Page 39
FRÉTTIR 39Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 2014 Morgunblaðið/Þórður Flug Snertilending á Kaldármelum. Innanríkisráðuneytið hefur beint því til ISAVIA að kanna möguleika á samstarfi við einkaaðila um flug- brautina á Kaldármelum. Eins og hefur komið fram á að taka flug- brautirnar á Kaldármelum, Sprengisandi og á Siglufirði af skrá og þar með úr notkun. Einkaaðilar hafa sýnt áhuga á að taka flugbraut- ina á Siglufirði yfir og verið er að leita eftir áhuga annarra á að taka yfir hinar brautirnar. Flugbrautirnar á Kaldármelum og á Sprengisandi eru ekki á lista yfir flugbrautir þjónustusamnings innanríkisráðuneytisins og ISAVIA og því ekkert fjármagn sett í þær. „Innanríkisráðherra hefur hins veg- ar beint því til ISAVIA að leita eftir samstarfi við einkaaðila eða samtök um rekstur þessara flugbrauta sem hafa hag af því að halda þeim opn- um, eru í betri aðstöðu til þess að koma að rekstri þeirra og geta gert það á mun hagkvæmari hátt en mögulegt er í núverandi fyr- irkomulagi,“ segir í svari frá innan- ríkisráðuneytinu. Fjárveitingar til þjónustusamn- ings ráðuneytisins og ISAVIA um rekstur flugvallarkerfisins innan- lands hafa verið skornar verulega niður frá 2007 og eru nú vel á annan milljarð króna lægri en þegar best lét. Því hefur verið leitað allra leiða til að spara. Grasflugbrautin á Kaldármelum gegnir mikilvægu hlutverki fyrir nemendur Flugskóla Íslands en þar eru æfðar lendingar og flugtök á mjúkbrautar-flugvöllum í yfirlands- flugi. Friðþór Eydal, talsmaður ISAVIA segir langt ferli að taka flugbraut af skrá, það hafi hafist í mars með Kaldármela og sé enn í gangi. „Það er í gangi ferli vegna athugasemda til 15. október. Það hafa nokkrar at- hugasemdir borist til ISAVIA, t.d hafa hagsmunaaðilar í einkaflugi og kennsluflugi sent inn athugasemdir, þeim hefur verið svarað og það er verið að vinna í því máli,“ segir Friðþór og bætir við að endanleg ákvörðun liggi ekki enn fyrir með Kaldármela. ingveldur@mbl.is Kanna samstarf við einkaaðila  Endanleg ákvörðun liggur ekki fyrir með flugbrautina á Kaldármelum Stjórn BSRB kom saman til fundar á Ak- ureyri í gær. Þar var m.a. sam- þykkt ályktun þar sem stjórnin lýsir yfir fullum stuðningi við Starfsmanna- félag Kópavogs- bæjar (SfK) í kjaradeilu sinni við samninganefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga. SfK hefur verið án kjarasamnings frá vormánuðum en þá skrifuðu öll önnur bæjarstarfsmannafélög inn- an BSRB undir framlengingu samn- inga. Kópavogsbær hefur hins veg- ar viljað fella úr gildi svonefnda háskólabókun í kjarasamningnum, sem stjórn BSRB telur vega að fé- lagafrelsi nokkurra félagsmanna SfK. Krefst stjórnin þess að gengið verði frá framlengingu samninga nú þegar. BSRB styður starfs- menn í Kópavogi BSRB styður félaga sína í Kópavogi. Tuttugu prósent íslenskra barna í 4.-7. bekk grunnskóla eru yfir kjör- þyngd. Þetta sagði heilbrigð- isráðherra í umræðu um lífs- stílstengda sjúkdóma barna og ung- linga á Alþingi í gær. Ráðherra sagðist byggja á nýlegum mæl- ingum, frá árunum 2013 og 2014. Umræðuna hóf Höskuldur Þór Þórhallsson, þingmaður Fram- sóknarflokks, og kallaði hana þjóð- arvá vegna lífsstílstengdra sjúk- dóma barna og unglinga. Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra sagði að síðari hluta 20. aldar hefði átt sér stað mikil þyngdaraukning en síðustu mælingar sýndu að ekki væri lengur um mikla aukningu að ræða. Sjötti hluti barna er yfir kjörþyngd Vísbending, tímarit um efnahags- mál, hefur útnefnt Seltjarnarnes „Draumasveitarfélagið“ árið 2013. Tímaritið gefur sveitarfélögum ein- kunnir eftir fjárhagslegum styrk þeirra en Seltjarnarnesbær fékk einkunnina 9,3 fyrir árið í fyrra. Forsendur Vísbendingar fyrir val- inu eru eftirfarandi: Skattheimta þarf að vera sem lægst, breytingar á fjölda íbúa hóflegar, afkoma sem hlutfall af tekjum sem næst 10%, hlutfall nettóskulda af tekjum sem næst 1,0 og veltufjárhlutfall nálægt 1,0. Morgunblaðið/Ómar Úti á Nesi Seltjarnarnesbær er fyrsta sveitarfélagið sem fær einkunn yfir 9. Draumasveitarfélag- ið Seltjarnarnes salka.is • Skipholti 50c • 105 Reykjavík Handan minninga Kíktu á salka.is eftir Sally MagnussonHVERS VEGNA HEILABILUN BREYTIR ÖLLU Sally Magnusson skrifar hér um móður sína, Mamie Baird, og glímuna við Alzheimer- sjúkdóminn. Sally er þekkt sjónvarpskona í Bretlandi og dóttir hins kunna sjónvarpsmanns Magnúsar Magnussonar. Bersögul og áleitin fjölskyldu- saga, skrifuð af ást, virðingu og söknuði en leiftrandi húmorinn er aldrei langt undan. Einstök blanda af skarpri greiningu á alzheimersjúkdómnum og hjartnæmum minningum. Scotsman Mögnuð Guardian Metsölulisti Eymundsson 1.1. sæti ámetsölulista Eymundsson
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.