Morgunblaðið - 09.10.2014, Page 40

Morgunblaðið - 09.10.2014, Page 40
SVIÐSLJÓS Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.s „Það má segja að skemmtilegar til- viljanir hafi ráðið því að málverkið sé komið aftur á sinn stað, meira en eitt hundrað árum eftir að farið var með það úr landi til Vesturheims,“ segir Valgeir Þorvaldsson, stjórn- arformaður Kolkuóss ses. og for- stöðumaður Vesturfarasetursins á Hofsósi, um málverk sem hann tók nýverið við og komið er upp í mynd- arlegu gistihúsi á Kolkuósi í Skaga- firði. Gistihúsið er í gamla íbúðar- húsinu á þessum fornfræga verslunarstað, en það var end- urbyggt frá grunni og opnað í sum- ar. Málverkið er úr eigu hjónanna Tómasar Ísleikssonar söðlasmiðs og Guðrúnar Jóelsdóttur ljósmóður. Þau voru fyrstu föstu ábúendur á Kolkuósi, frá árunum 1891 til 1903, en þá fluttu þau vestur um haf til Winnipeg í Kanada líkt og margir Íslendingar á þeim tíma. Ekki er vit- að hver málaði myndina en það sýnir Drangey, Málmey og Þórðarhöfða, með tvö gufuskip siglandi úti fyrir Skagafirði. Útsýnið er ekki ósvipað því sem blasir við á hverjum degi frá Kolkuósi við austanverðan fjörðinn. Örlagarík gjöf Valgeir segir söguna á bak við endurheimt málverksins hafa byrjað fyrir allmörgum árum, þegar Vest- ur-Íslendingurinn Wayne Gud- mundsson heimsótti Skagafjörð og fleiri staði á Íslandi, í því skyni að gera kvikmynd en Wayne starfar sem kvikmyndagerðarmaður. Val- geir hitti hann í þessari ferð. „Hann varð mjög hrifinn af Skagafirði og þegar ég hitti hann á Hofsósi vildi svo til að ég var í hesta- vesti með Kolkuósnafninu á bakinu, sem var nýbúið að gefa mér. Ég fór úr vestinu, hengdi það á hann og gaf honum, líklega eina vestið í heim- inum með þessu nafni á,“ segir Val- geir og þeir Wayne kvöddust glaðir í bragði. Síðan liðu nokkur ár, þar til Wayne hringdi í Valgeir með skemmtilega sögu. Þá hafði kvik- myndin hans um Ísland verið sýnd á kanadískri sjónvarpsstöð, þar sem Skagafjörður og Drangey komu m.a. í mynd. Eftir sýningu myndarinnar hringdi kona að nafni Judy Kellett í Wayne. Hún sagðist vera af vest- uríslenskum ættum og auk þess að lýsa hrifningu sinni á myndinni sagðist hún vera með málverk af Drangey í sínum fórum. Reyndist þetta vera ættargripur sem hafði gengið kynslóð fram af kynslóð. Barnabarnið hringdi „Hún sagðist vera orðin fullorðin, og ætti engin börn, og langaði að gefa málverkið aftur til Íslands. Hún spurði Wayne hvort hann sæi fyrir sér einhvern stað sem vildi taka við málverkinu. Honum datt þá Vest- urfarasetrið á Hofsósi í hug og hringdi í mig. Ég tók þessu mjög vel og sagði það að sjálfsögðu heiður að fá myndina aftur til Íslands,“ segir Valgeir sem næst spurði Wayne hvort hann vissi hver hefði átt mál- verkið í upphafi. Það vissi hann ekki, en sagðist ætla að kanna málið. „Síðan hringdi hann nokkrum tím- um síðar og mátti vart mæla, honum var það mikið niðri fyrir,“ segir Val- geir en þá kom í ljós að myndin fór frá Kolkuósi 1903 og var í eigu Tóm- asar og Guðrúnar. Konan sem hringdi í Wayne reyndist vera barnabarn þeirra og hafði fengið málverkið frá móður sinni, Láru Kristínu Tómasdóttur. Eftir þetta samtal flaug Wayne við fyrsta tækifæri til Íslands og af- henti Valgeiri málverkið í sérstakri athöfn á Kolkuósi. Sem stendur er málverkið yfir pí- anói í setustofu gistihússins. Þar kemur það ágætlega út, t.d. þegar Þórhildur Björnsdóttir, staðarhald- ari á Kolkuósi og píanóleikari, sest og spilar þar fagra tóna. Valgeir seg- ir það einnig koma til greina að hafa málverkið við hliðina á mynd af frú Vigdísi Finnbogadóttur, sem á sæti í stjórn Kolkuóss ses. Mestu skiptir þó að listaverkið er komið heim. Komið heim eftir rúm hundrað ár  Skemmtilegar tilviljanir réðu því að málverk úr eigu fyrstu ábúanda á Kolkuósi í Skagafirði skilaði sér heim  Sýnir Drangey í allri sinni dýrð  Hestavesti og kvikmyndagerðarmaður örlagavaldar Morgunblaðið/Björn Jóhann Uppbygging Þórhildur og Valgeir á tröppum hússins á Kolkuósi, sem var endurgert í sinni upprunalegu mynd. Frekari uppbygging er fyrirhuguð. Morgunblaðið/Björn Jóhann Komið heim Valgeir Þorvaldsson og Þórhildur Björnsdóttir, staðarhaldari á Kolkuósi, með málverkið úr eigu fyrstu föstu ábúenda á staðnum. Málverkið er nú komið heim eftir fjarveru í Vesturheimi í meira en öld. Afhending Wayne Gudmundsson (t.h.) kom til Íslands með málverkið. 40 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 2014 Trésmiðja GKS ehf, Funahöfða 19, sími 577 1600, gks@gks.is, gks.is Gæði - Kunnátta - Sveigjanleiki Nýjar hagstæðar lausnir í innréttingum. Nútímaleg hönnun, glæsilegt útlit og örugg gæði frá fagmönnum. Verktakar – húsbyggjendur ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA Tómas Ísleiksson og Guðrún Jóels- dóttir urðu fyrst til að hefja fasta búsetu á Kolkuósi, árið 1891. Þau fóru til Vesturheims árið 1903. Um líkt leyti fluttu Hartmann Ásgríms- son og Kristín Símonardóttir í Kolkuós og byrjuðu þar verslun. Á næstu árum stóðu þau fyrir mikilli uppbyggingu á staðnum, byggðu íbúðarhús, verslunarhús og slát- urhús. Sonur þeirra, Sigurmon, tók við búinu, ásamt eiginkonu sinni, Haflínu Marín Björnsdóttur, og bjuggu þau á Kolkuósi til ársins 1984. Sigurmon hélt uppi mynd- arlegri hrossarækt sem faðir hans stofnaði til í upphafi 20. aldar. Ljósmynd/Héraðsskjalasafn Skagfirðinga Þau fyrstu Tómas Ísleiksson söðlasmiður og Guðrún Jóelsdóttir ljósmóðir. Föst búseta á Kolkuósi frá 1891 til 1984 Kolkuós Sigurmon Hartmannsson og Haflína Marín Björnsdóttir.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.