Morgunblaðið - 09.10.2014, Page 44
44 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 2014
TWIN LIGHT
GARDÍNUR
Betri birtustjórnun
MEIRA ÚRVAL
MEIRI GÆÐI
ÍSLENSK
FRAMLEIÐSLA
EFTIR MÁLI
Sendum frítt hvert á land sem er gegn staðgreiðslu
Hringdu og bókaðu tíma í máltöku
Álnabær
Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta.
Síðumúla 32, Reykjavík. Sími: 588 5900 ▪ Tjarnargötu 17, Keflavík. Sími: 421 2061
Glerárgötu 32, Akureyri. Sími: 462 5900 ▪ alnabaer.is ▪ Opnunartími: mán.-fös. 11-18
VIÐTAL
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
„Ég hef aldrei lært að skrifa ís-
lensku,“ segir Thor Thors yngri á
lýtalausri íslensku, en hann hefur
búið í Bandaríkjunum mestalla
ævi sína. Faðir hans var Thor
Thors, bróðir Ólafs Thors, sendi-
herra Íslands í Bandaríkjunum í
rúmlega aldarfjórðung og fyrsti
fastafulltrúi Íslands hjá Samein-
uðu þjóðunum. „Þegar ég var lítill
strákur hérna á Íslandi gat ég
ekki farið í skóla, því að Bretinn
tók barnaskólana í hernáminu og
nýtti þá fyrir sig,“ segir Thor, sem
fékk því aldrei formlega menntun í
íslensku, því að fjölskyldan flutti
vestur um haf áður en bresku her-
mennirnir færðu sig úr skólunum.
Thor yngri var hér á landi í síð-
ustu viku vegna ræðismannaráð-
stefnu utanríkisráðuneytisins, sem
haldin var í Hörpunni. Thor ber
ráðstefnunni vel söguna og segir
hana einstakt tækifæri til þess að
treysta böndin við það duglega
fólk er sinnir ræðismennsku. Hann
er nú áttræður, en var bankamað-
ur í fjörutíu ár, auk þess sem hann
er varaformaður Íslensk-ameríska
viðskiptaráðsins (IACC), og vinnur
þar að auknum viðskiptatengslum
ríkjanna tveggja. Í tengslum við
þau störf sín hefur Thor fengið að-
stöðu hjá aðalræðisskrifstofu Ís-
lands í New York. „Ég fæ einn
dollar á ári, frítt kaffi og skrif-
stofu fyrir að vera ráðgjafi,“ segir
Thor, og bætir við að hann sé þar
Hlyni Guðjónssyni, fram-
kvæmdastjóra verslunarráðsins,
innan handar, auk þess sem hann
reyni að aðstoða þegar Sameinuðu
þjóðirnar koma saman.
Þá er Thor einnig í stjórn Am-
erican Scandinavian Foundation,
en hún veitir styrki, sem nefndir
eru í höfuðið á föður hans, til ís-
lenskra námsmanna sem eru á
leiðinni í nám til Bandaríkjanna.
Byrjaði allt í bílskúrnum
„Við sigldum til Bandaríkjanna,
og ég man hvað skipsáhöfnin var
okkur systkinunum góð,“ segir
Thor, en fjölskylda hans fór með
Goðafossi vestur um haf. „Við urð-
um því svo sorgmædd síðar þegar
við fréttum að Goðafossi hefði ver-
ið sökkt af þýskum kafbáti. Að
hugsa sér, hvað það var agalegt,“
segir Thor og minnist þess að
mannfall Íslendinga var svipað og
Bandaríkjamanna í styrjöldinni.
„Og nær allt kom það úr kaup-
skipa- og togaraflotanum okkar.“
Fyrsta árið var Thor eldri aðal-
ræðismaður Íslands með aðsetur í
New York, en fór ári síðar til
Washington, þar sem fjölskyldan
bjó síðan. Íslenska ríkið hafði hins
vegar ekki bolmagn til þess að
halda úti sendiskrifstofum líkt og
nú tíðkast. „Hann keypti húsið
fyrir sína eigin fjármuni, en það
var ekki hægt að leigja skrifstofu,
þannig að hann bjó hana til í bíl-
skúrnum sínum,“ segir Thor. „Ut-
anríkisþjónustan er í góðum mál-
um núna, en ætli þjóðin viti að
þetta byrjaði allt í bílskúr?“ spyr
Thor með bros á vör.
Stríðsárin voru um margt at-
hyglisverð fyrir fjölskylduna.
„Pabbi komst ekki heim, þannig að
þegar hann vildi tala við bróður
sinn talaði hann inn á plötu sem
var send til Íslands,“ segir Thor
og segir að þannig hafi það gengið
fram og til baka á milli þeirra
Ólafs og Thors.
Sendiherrar annarra ríkja voru í
svipuðum sporum og Thor, þeir
gátu ekki farið heim, því að heima-
lönd þeirra höfðu verið hernumin
af Þjóðverjum. „Sendiherrar Nor-
Stoltur af því að vera Íslendingur
Thor Thors yngri segir utanríkisþjónustuna skipaða dugmiklu fólki Faðir hans setti upp sendi-
skrifstofu í bílskúrnum sínum Sér fyrir sér að Íslendingar gætu miðlað málum í milliríkjadeilum
Morgunblaðið/Kristinn
Ríkisfangið mikill heiður Thor Thors yngri segir að hann sé stoltur af íslenskum uppruna sínum og að hann hafi komið sér til góða á starfsferli sínum er-
lendis. Íslendingar megi sömuleiðis vera ánægðir með það duglega fólk sem beri merki Íslands uppi á erlendum vettvangi.
Ljósmynd/Utanríkisráðuneytið Ljósmynd/Utanríkisráðuneytið
Merkisstund Thor Thors, sendiherra Íslands, undirritar stofnsáttmála
Sameinuðu þjóðanna, ári eftir að samtökin voru formlega stofnuð.
Sterk tengsl við upprunann Thor skoðar hér mynd af föður sínum að und-
irrita stofnsáttmála Sameinuðu þjóðanna í nóvember árið 1946.