Morgunblaðið - 09.10.2014, Page 50
50 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 2014
ekkert undanfæri; þá bíður fangels-
isvist. Þannig fór fyrir Uli Hoeness,
stjórnarformanni Bayern München,
í fyrra og hann situr nú inni.
Í fyrra notuðu 26.000 manns tæki-
færið og gengust við brotum. Alls
mun þýska stjórnin hafa fengið í
hendur um 3,5 milljarða evra auka-
lega vegna þessara játninga, um 534
milljarða íslenskra króna.
Það eru ekki aðeins vellauðugir
menn sem eiga í vanda, fjöldi frægra
einstaklinga, þ. á m. íþróttamanna,
leikara og stjórnmálamanna um all-
an heim hefur orðið ber að því að
nýta sér skattaskjól. „Áður var það
venjulega þannig að pólitíkusar
lentu í klípu vegna þess að þeir
héldu fram hjá, núna er það vegna
þess að þeir eiga falda bankareikn-
inga,“ sagði dálkahöfundurinn Jan
Fleischhauer á Spiegel Online.
Á að refsa með fangelsi þeim
bankamönnum sem hafa veitt aðstoð
við undanskot en sjá að sér? Bent er
á að refsing geti fælt marga frá því
að ljóstra upp um svik. Bandaríski
bankamaðurinn og uppljóstrarinn
Bradley Birkenfeld hratt skriðu af
stað þegar hann hóf samstarf við
skattayfirvöld í Washington, IRS,
árið 2007. Hann líkir svissneskum
bankamönnum við glæpagengi.
„Í reynd er bankaleynd sambæri-
leg við svikabrask glæpagengja – og
svissnesk stjórnvöld eru samsek
ásamt svissneskum einkabönkum,“
sagði hann.
Upplýsingar Birkenfelds urðu til
þess að hafin var viðamikil rannsókn
á starfi útibús svissneska bankans
UBS vestanhafs og fleiri banka sem
höfðu gert bandarískum borgurum
kleift að stunda undanskot. Svo fór
að UBS varð að borga 780 milljón
dollara sekt, nærri 95 milljarða ísl.
króna. Gert var samkomulag við
UBS sem m.a. olli því að bankinn af-
henti nöfn nærri 52.000 Bandaríkja-
manna sem áttu viðskipti við bank-
ann og mörg þúsund þeirra voru
grunaðir um undanskot.
Sjálfur fékk Birkenfeld árið 2012
um 104 milljónir dollara í verðlaun
frá sérstakri uppljóstraraskrifstofu
IRS en hún hefur heimild til að
greiða uppljóstrurum ákveðið hlut-
fall af því fé sem innheimtist vegna
upplýsinga frá þeim. Var miðað við
að hann fengi um 25% af því skattfé
sem hafði verið klófest en það var
um 400 milljónir dollara.
Mikill hagnaður af gagna-
kaupum
IRS hefur, með því að beita sams
konar loforðum og Þjóðverjar um
væga refsingu, tekist að innheimta
um 5.000 milljónir dollara, nær 608
þúsund milljónir ísl. kr., hjá fólki
sem notfærði sér ólögleg ráð UBS til
að skjóta fé undan skatti. Samstarfið
við Birkenfeld skilaði því skattborg-
urum Bandaríkjanna margföldum
ágóða.
Sviss undirritaði loks í fyrra eftir
mikið þóf fjölþjóðlegan sáttmála um
gagnkvæma aðstoð við skattrann-
sóknir. En ákvæði sáttmálans hafa
sætt harðri gagnrýni þeirra sem
segja að hann sé nánast eins og
gatasigti. Auk þess er ljóst að þótt
Svisslendingar hafi verið stórir á
þessu sviði eru fjölmörg ríki
reiðubúin að taka við keflinu, ef svo
má að orði komast.
Heimildarmenn segja að þegar
öllu sé á botninn hvolft séu það fjár-
málafyrirtæki í fjármálamiðstöðinni
miklu, London, sem séu duglegust
allra við að aðstoða þá sem vilja
koma fé undan skatti. Þau nýta þá
skattaskjól eins og Guernsey, Mön,
Tortólu og Cayman-eyjar. Bresk
stjórnvöld eru ekki líkleg til að
slátra mjólkurkúnni í bráð.
Falið fé grafið upp og skattlagt
Ráðamenn Þjóðverja og Bandaríkjamanna eru iðnir við að borga fyrir gögn um skattundanskot
Bandarískur uppljóstrari segir svissneska bankamenn samseka og líkir þeim við „glæpagengi“
Peningalegur árangur af því að
heimila þýskum skattsvikurum að
gangast sjálfir við brotum sínum
gegn því að sleppa við refsingu er
ótvíræður, frá sjónarhóli yfirvalda.
En nú segja ráðherrar jafnaðar-
manna (SPD, sem sitja í stjórn með
Kristilegum demókrötum (CDU)
Angelu Merkel kanslara, að um-
rædd syndakvittun ætti aðeins að
gilda um smáar fjárhæðir.
„Ég skil það vel að ráðherrar fjár-
mála vilja ná í peningana en við
verðum líka að hafa í huga réttlætið í
þessu landi,“ sagði Thomas Opper-
mann, þingflokksformaður jafn-
aðarmanna. Annar áhrifamaður
sagði að með vægari refsingum til
handa iðrandi skattasyndurum væri
verið að hygla þeim í samanburði við
þá sem fremdu brot af öðru tagi. En
CDU-maðurinn Wolfgang Schäuble
fjármálaráðherra vill engu breyta.
Enn aðrir benda á að aldrei verði
hægt að hindra auðmenn í að skjóta
fé undan skatti með hjálp rándýrra
sérfræðinga sem kunni fjölmargar
brellur. Einfaldast sé að draga sem
mest úr skattheimtu og einfalda
skattalögin en flækja þau ekki.
Deilt um réttlæti
og fyrirgefningu
Jafnaðarmenn gagnrýna syndakvittun
Líf Unaðslegt líf í
skattaparadís en líka
má njóta peninganna
heima fyrir. En svo
er það spurningin
um siðferðið.
Bandaríkjamaðurinn Bradley
Birkenfeld, sem vann hjá UBS
og veitti IRS upplýsingar um
undanskot þúsunda landa
sinna, hagnaðist vel á tiltækinu.
En þar sem Birkenfeld, sem var
44 ára gamall og bjó í Sviss,
hafði veitt einum skjólstæðinga
sinna aðstoð við undanskot var
hann dreginn fyrir rétt þegar
hann kom heim. Hann hlaut 40
mánaða fangelsi í ágúst 2009
og fékk 30 þúsund dollara sekt.
IRS kom því til leiðar að af-
plánun var frestað í þrjá mánuði
til þess að hann gæti unnið með
stofnuninni að því að fletta ofan
af bankamönnunum. Og svo fór
að Birkenfeld fékk reynslulausn
eftir þrjú ár enda urðu margir til
að gagnrýna dóminn.
Fékk dóm en
reynslulausn
UPPLJÓSTRUN Í SVISS
Virki fjármálaheimsins UBS-bankinn í Sviss. Ljóstrað hefur verið upp um skuggalega starfsemi þar á bæ. Banda-
rískir og þýskir viðskiptamenn fengu aðstoð við að fela fé og svíkja þannig undan skatti í heimalöndum sínum.
FRÉTTASKÝRING
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Rætt er nú um að íslensk stjórnvöld
kaupi stolin gögn af óþekktum aðila
um leynilega bankareikninga Ís-
lendinga í svonefndum skatta-
skjólum. Eðlilega vilja ráðamenn
hér koma í veg fyrir undanskot frá
skatti en margir benda að siðferð-
islega sé vafasamt að ríkisvaldið taki
þannig óbeint þátt í að brjóta lög,
þótt í góðum tilgangi sé. En for-
dæmin eru til staðar erlendis.
Margir þýskir auðmenn og stór-
fyrirtæki engjast nú vegna þess að
síðustu árin hafa stjórnvöld í Berlín
hert mjög róðurinn gegn und-
anskotum frá skatti. Sama er upp á
teningnum í sambandsríkjunum sem
vilja líka fá sína skatta og engar refj-
ar. Stjórnlagadómstóll Þýskalands
hefur lagt blessun sína yfir að
stjórnvöld kaupi stolnar upplýsingar
af starfsmönnum fjármálastofnana
til að klófesta skattsvikara, banda-
rísk stjórnvöld hafa einnig keypt slík
gögn fyrir stórfé.
Fyrir fjórum árum komust liðs-
menn skattayfirvalda í Þýsklandi yf-
ir dvd-diska með listum yfir leyni-
lega bankareikninga í skattaskjóli í
Sviss og fleiri ríkjum. Ekki er ljóst
hve mikið þýsk stjórnvöld hafa
greitt fyrir gögn frá uppljóstrurum
en talið að fjárhæðin geti verið allt á
annað hundrað milljónir evra, allt að
15 milljarðar ísl. króna.
Þetta gerðist um sama leyti og
ráðamenn í Evrópusambandsríkjum
og Bandaríkjunum voru farnir að
auka samstarf yfir landamæri um
aðgerðir gegn skattundanskotum.
Hoeness laug og lenti í fangelsi
Margir skattsvikarar brugðust við
með því að gefa sig fram, borga sekt-
ir og að sjálfsögðu ógreidda skattinn
og áfallna vexti. Í Þýskalandi hefur
auk þess verið beitt þeirri aðferð að
lofa mun vægari refsingu ef fólk
skýrir sjálfviljugt frá undanskotum
sínum. En séu upplýsingar þeirra
rangar í mikilvægum atriðum er