Morgunblaðið - 09.10.2014, Side 56

Morgunblaðið - 09.10.2014, Side 56
56 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 2014 BAKSVIÐ Karl Blöndal kbl@mbl.is Loftárásir Bandaríkjamanna og bandamanna þeirra virtust í fyrsta í skipti í gær bera árangur í orrustunni um sýrlenska landamærabæinn Kob- ane, sem hefur verið umsetin víga- mönnum hreyfingarinnar Ríki ísl- ams. Að sögn Sýrlensku mannréttinda- vaktarinnar hörfuðu liðsmenn Ríkis íslams úr hverfum í austur- og suð- vesturhluta bæjarins aðfaranótt gær- dagsins. Rahmi Abd al-Rahman, stjórnandi vaktarinnar, sem hefur að- setur í London og styðst við net heim- ildarmanna í Sýrlandi, sagði að þeir hefðu hörfað vegna loftárása á víg- stöðvar Ríkis íslams fyrir utan Kob- ane, en harðir bardagar voru einnig háðir í bænum. Enn eru þó liðsmenn Ríkis íslams í bænum. Þeim tókst að rjúfa varnir bæjarins í vikunni eftir þriggja vikna umsátur. Nái þeir Kobane undir sig verða þeir komnir með á sitt vald mikið órofið svæði, sem liggur að landamærum Tyrklands. Vaxandi þrýstingur er nú á að Kúrdum verði veitt aukin ut- anaðkomandi aðstoð. Staffan de Mistura, sérlegur erindreki Samein- uðu þjóðanna í málefnum Sýrlands, tók undir ákallið um tafarlausa hjálp. „Heimurinn, við öll, munum iðrast þess sárt nái [Ríki íslams] að leggja undir sig bæ, sem hefur varist af hug- rekki, en er nú við að geta það ekki lengur,“ sagði hann. „Við verðum að láta til skarar skríða núna. Alþjóða- samfélagið verður að verja þá.“ Bandaríkin afskrifa Kobane Bandarísk stjórnvöld virðast vera búin að afskrifa Kobane. Á fréttavef sjónvarpsfréttastöðvarinnar CNN var í gær haft eftir ónefndum banda- rískum embættismönnum að meg- inmarkmiðið væri ekki að bjarga borgum og bæjum í Sýrlandi, heldur að vega að forustu Ríkis íslams og eyðileggja olíuhreinsunarstöðvar og aðra innviði til að gera samtökunum ógerlegt að starfa, sérstaklega í Írak. Ýmsar ástæður væru fyrir þessari afstöðu. Í fyrsta lagi væri samband milli Íraksstjórnar og Bandaríkj- anna, en stjórn Baracks Obama for- seta vildi að Bashar al-Assad, forseti Sýrlands léti af völdum. Í öðru lagi ættu Bandaríkjamenn bandamenn á vígvellinum í Írak, þar á meðal íraska herinn og sveitir Kúrda, sem nefnast peshmerga. Obama hyggst ekki leggja meira af mörkum í borgarastyrjöldinni í Sýr- landi en árásir úr lofti. Í stjórn hans ríkir sú skoðun að Tyrkir eigi að hætta að draga lappirnar. Grænt ljós en engar aðgerðir Tyrkneska þingið gaf fyrir helgi grænt ljós að beita hernum til að hrinda sókn Ríkis íslams. Recep Ta- yyip Erdogan, forseti Tyrklands, sagði á þriðjudag að Kobane væri við það að falla. Hann sagði hins vegar að Tyrkir myndu ekki aðhafast frekar nema Bandaríkjamenn samþykktu að veita uppreisnarmönnum í Sýrlandi aukna aðstoð við að steypa Assad. Obama vill hins vegar að Tyrkir taki af skarið gegn Ríki íslams án þess að blanda stríðinu gegn Assad inn í málið. Erdogan hefur einnig sagt að hann vilji ekki senda herlið inn í Sýrland nema að því verði framfylgt að ekki megi fljúga yfir átakasvæðið til þess að halda sýrlenska flughernum í skefjum. Eins og fram kom í fréttaskýringu í The New York Times í gær finnst stjórn Obama Tyrkir vera með und- anslátt og benda bandarískir emb- ættismenn á að með lofárásunum undir forustu Bandaríkjamanna hafi skilyrðinu um að koma í veg fyrir að beita megi sýrlenska flughernum yfir norðurhluta Sýrlands í raun verið fullnægt. „Það er vaxandi uggur yfir því að Tyrkir skuli draga lappirnar í að koma í veg fyrir fjöldamorð innan við mílu frá landamærum sínum,“ sagði háttsettur bandarískur embætt- ismaður við The New York Times í skjóli nafnleyndar. „Eftir allan reiði- lesturinn um mannlegar hamfarir í Sýrlandi finna þeir upp ástæður til að aðhafast ekki til að koma í veg fyrir aðrar mannlegar hamfarir. Svona hegðar bandamaður í NATO sér ekki á meðan helvíti skapast steinsnar frá landamærum hans.“ Hörð mótmæli í Tyrklandi Aðgerðaleysi tyrkneskra stjórn- valda hefur ekki bara valdið reiði í Washin gton. Kúrdar í Tyrklandi hafa mótmælt harðlega og á þriðju- dagskvöld og í gær sauð upp úr með þeim afleiðingum að a.m.k.19 manns létu lífið. Sérfræðingar halda því fram að í raun haldi Erdogan Kúrdunum í Kobani í gíslingu. Soner Cagaptay, sérfræðingur Stofnunar um Mið- Austurlandamál í Washington, segir að markmiðið sé að veikja stöðu Verkamannaflokks Kúrdistans í frið- arviðræðum við stjórnvöld í Ankara. Tyrkir vilja einnig að sveitir Kúrda í Sýrlandi afneiti Assad og gangi op- inberlega til liðs við uppreisnarmenn. Sveitir Kúrda og stjórnmálamenn þeirra hafa fremur einbeitt sér að því að koma sér upp sjálfstjórn og verja sitt landsvæði, en að berjast við stjórnvöld í Damaskus. Sums staðar hafa þeir meira að segja barist við hlið stjórnarhersins. Kúrdar í Sýrlandi berjast undir merkjum Verndarsveita þjóðarinnar, skammstafað YPG, sem eru hinn vopnaði armur stjórnmálasamtak- anna Lýðræðissambandsflokkur Kúrda, YPG. Tyrknesk stjórnvöld segja að YPG sé útibú PKK, sem í áratugi barðist blóðugri baráttu fyrir sjálfstæði Kúrda í Tyrklandi, en hefur nú snúið við blaðinu, lagt niður vopn og krefst nú aukinnar sjálfstjórnar í stað sjálfstæðis. PKK eru skilgreind sem hryðjuverkasamtök í Tyrklandi og víða á Vest- urlöndum. YPG varð til eftir að Kúrdar héldu mót- mælafundi gegn stjórn Assads árið 2004, en tilvist samtakanna varð opinber sum- arið 2012 þegar upp- reisnin gegn stjórn landsins hafði staðið í ár. PYD og YPG neita því að bein tengsl séu við PKK, þótt hugmyndafræðilegur skyldleiki sé fyrir hendi. Kúrdar bíða hjálpar gegn Ríki íslams á meðan blóðbað blasir við  Loftárásir loks sagðar hafa haft áhrif  Bandaríkjamenn saka Tyrki um að draga lappirnar AFP Umsátur Reykjarsúla stígur til himins eftir loftárásir til að aflétta umsátri Ríkis íslams um Kúrdabæinn Kobane í Sýrlandi við landamæri Tyrklands. Átök um Kobane TYRKLAND TYRKLAND SÝRLAND Kobane (Ain al-Arab) Íslamistar sitja um vopnaðar sveitir Kúrda Loftárásir Bandaríkjanna og fleiri landa Sjálfstjórnar- svæði Kúrda í Írak Mannskæðar sjálfsvígsárásir Hundruð manna létu lífið í átökum liðsmanna Ríkis íslams, samtaka íslamista, og sveita Kúrda Jarabulus 10 km Mishentur- hæð Útvarpsturn Suruc JÓRDANÍA SÁDI- ARABÍA ÍRAN DAMASKUS BAGDAD SÝRLAND Aleppo Homs Raqqa Í RAK Hasakeh Zummar Badush AskiMosul Deir Ezzor Mayadin Hit Kirkuk Fallujah Mosul Gröf Suleimans, afa stofnanda Tyrkjaveldis 100 km Íslamistarnir hafa setið um svæðið sem lýtur yfirráðumTyrkja Ríki íslams er ekki eitt um að fá liðsafla frá Evrópu. Það sama á við um Kúrda, þótt liðsaukinn sé ekki næstum því jafn fjölmennur. Tugir Kúrda hafa sagt skilið við vestræn þægindi í Amster- dam, Berlín eða Róm til að taka upp vopn í röðum Kúrda í Írak. Sumir þeirra hafa reynslu af að berjast með peshmerga-sveitum Kúrda, en aðrir hafa aldrei komið nálægt stríði. Í frétt frá AFP segir frá 12 bræðrum úr sömu fjölskyldu, Nawzad Anwerbeg. Sumir þeirra höfðu búið í Kúrdistan í Írak í nokkur ár. Flestir ákváðu að leggja land undir fót frá Hol- landi. Kúrdarnir leyna ekki ferð- um sínum. Einn bræðranna hringdi séstaklega í hollenska utanríkisráðuneytið til þess að tilkynna að hann væri genginn í raðir peshmerga í Írak tveimur dögum eftir komu sína. Öðrum bræðranna, Aza, sem er nýorðinn 24 ára gamall, var fenginn rifill og tveir dagar til að æfa sig áður en hann var sendur á víglínuna. Hann hafði aldrei hleypt af riffli áður. „Að minnsta kosti hefur eitt- hvað gott komið út úr þessu stríði,“ sagði hann. „Það hefur sýnt heiminum úr hverju Kúrdar eru gerðir.“ Aza var í kennaranámi í Hol- landi, en nú segist hann ætla að verða peshmerga að eilífu. „Börn okkar hafa ferðast frá Evrópu til að taka þátt í þessu stríði,“ sagði einn af öldungum ættarinnar, Sar- had Anwerbeg Betwata. „Þeir fara í einkenn- isbúning og eru til- búnir til að verða píslar- vottar.“ Kúrdar koma víða að LIÐSAUKI FRÁ EVRÓPUVilja öflugri vopn » Kúrdar segja að tæpar standi í Kobane en fólk haldi og þeir verði að fá þungavopn til að verja bæinn. » Kúrdneski blaðamaðurinn Mustafa Ebdi sagði á Facebook í gær að á götum hverfisins Maktala í Kobane lægju lík liðs- manna Ríkis íslams eins og hráviði. Hann bætti við að ástæða væri til að óttast um almenna borgara í bænum. Einn Anwerbeg- bræðranna með alvæpni í Arbil.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.