Morgunblaðið - 09.10.2014, Page 78

Morgunblaðið - 09.10.2014, Page 78
78 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 2014 AKUREYRI Morgunblaðið gefur út sérblað Vertu viðbúin vetrinum föstudaginn 17. október Vertu viðbúinn vetrinum –– Meira fyrir lesendur NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is PÖNTUNARFRESTUR AUGLÝSINGA: fyrir kl. 16 mánudaginn 13. október. SÉRBLAÐ Vetrarklæðnaður • Snyrtivörur • Ferðalög erlendis Vetrarferðir innanlands • Skemmtilegar bækur Námskeið og tómstundir • Hreyfing og heilsurækt Bíllinn • Leikhús, tónleikar. • Skíðasvæðin hérlendis Mataruppskriftir • Ásamt fullt af öðru spennandi efni! Jón Agnar Ólason jonagnar@mbl.is Á þessu fimmta starfsári Menningarhússins Hofs er dagskráin að venju mjög fjölbreytt og spennandi. Það er ljóst að allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi,“ segir Lára Sóley. „Gestum Hofs fjölgar líka stöðugt og við tökum einnig eft- ir aukinni ásókn viðburðahaldara í að koma í húsið með ýmiskonar menningarviðburði, ráðstefnur og fundi.“ Lára Sóley bætir því við að það sem einkenni þetta starfsár sé kannski gróskan í norðlensku menn- ingarlífi. Margir viðburðanna séu þannig sprottnir upp úr nær- umhverfi Hofs. „Þar má nefna að Tónlistarfélag Akureyrar held- ur í vetur sína mánaðarlegu há- degistónleika, svokallaðar föstu- dagsfreistingar, í Hofi. Þetta er gert í samstarfi við 1862 Nordic Bistró sem framreiðir léttan hádeg- isverð meðan á tónleikum stendur. Norðurljósin eru svo aftur nýir og spennandi jólatónleikar þar sem ein- vala lið norðlenskra tónlistarmanna tekur á móti góðum gestum og núna í lok október heldur Populus Tre- mula, sem starfrækt hefur verið í Listagilinu undanfarin ár, upp á 10 ára afmæli sitt með tónleikum í Hofi ásamt Sigríði Thorlacius og Valdi- mar Guðmundssyni. Norðlenski stórtenórinn Óskar Pétursson held- ur sýna árlegu tónleika um Páskana og þá býður Sinfóníuhljómsveit Norðurlands auðvitað upp á glæsi- lega dagskrá sem fyrr. Okkur for- svarsmönnum Hofs þykir þessi þró- un einstaklega ánægjuleg og við efumst ekki um að tilkoma Hofs hafi ýtt undir þessa grósku.“ Heiðurstónleikar í öndvegi Þegar dagskráin í Hofi fyrir vet- urinn framundan er skoðuð sést að það er talsvert um tónleika sem efnt er til í þeim tilgangi að heiðra tiltek- inn flytjanda. „Já, heiðurstónleikar af ýmsu tagi eru áberandi í Hofi í vetur og þar koma við sögu stór nöfn úr tónlistarsögunni. Frábærir Led Zeppelin tónleikar fóru fram um síðustu helgi og í september seldist upp á þrjár sýningar af Bat Out of Hell. Í vor verða meðal ann- ars haldnir tónleikar til heiðurs Villa Vill og Bítlunum. Einnig er þónokk- uð um afmælistónleika. Raggi Bjarna hélt nýverið tónleika í tilefni af áttræðisafmæli sínu og Manna- korn fagna 40 ára afmæli í þessum mánuði með tvennum tónleikum svo eitthvað sé nefnt,“ bætir Lára Sóley við. En tónleikar eru ekki einu uppá- komurnar. Sjónlistasýningar eru settar upp í opnum rýmum Hofs all- an ársins hrings. „Um næstu helgi lýkur sýningunni Sjónarhorn sem vakið hefur verðskuldaða athygli meðal gesta Hofs í sumar,“ bendir Lára Sóley á. „Hún var unnin í sam- starfi við Minjasafnið á Akureyri og samanstóð af gömlum ljósmyndum úr nærumhverfi Hofs sem hefur heldur betur tekið breytingum í gefnum tíðina.“ Ný sýning verður opnuð 18. októ- ber. Yfirskrift hennar er Náttúra- Fjölbreytt og spennandi í  Það stendur mikið til í Menningarhúsinu Hofi, nú í haust sem endranær, og dagskráin öll með líflegasta móti eins og Lára Sóley Jó- hannsdóttir, verkefnastjóri í Hofi, segir frá Akureyrarvaka Það eru fjölbreyttir viðburður á dagatali Hofs árið um kring. Lára Sóley Jóhannsdóttir Ljósmyndir/Daníel Starrason
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.