Morgunblaðið - 09.10.2014, Page 81

Morgunblaðið - 09.10.2014, Page 81
81 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 2014 Leikfélagið er ein af þeim stofn- unum sem líma samfélagið á Ak- ureyri saman. Þetta sást vel á ný- legri sýningu á Bláa hnettinum eftir Andra Snæ Magnason, en sýningin fór fram á pólsku. „Erling Jóhannesson hafði á sínum tíma verið fenginn til að stýra uppfærslu á verkinu í Gdansk. Var sama sýn- ing á fjölunum hjá okkur eina helgi með pólska leikhópnum og við- brögðin mjög góð. Húsið fylltist af Pólverjum sem hafa sest að hér á landi og margir aldrei komið áður í leikhúsið.“ Leiklistarskólinn er líka ein af grunn-stoðum bæjarlífsins. „Þessi skóli er krúnudjásnið okkar en þar fer fram leiklistarkennsla fyrir börn frá 3. upp í 10. bekk,“ segir Ragnheiður. „Þau börn sem byrja strax við fyrsta tækifæri og eru í leiklistarskólanum út grunn- skólanámið eru nánast orðin tæk í háskólanám í leiklist. Þessi sömu börn halda svo áfram leiklist- arstarfi í leikfélögum framhalds- skólanna og er mikill listrænn mannauður að verða til í þessum ungmennum.“ Mikilvæg samfélagsstofnun húsakynnum leikfélagsins og gaman frá því að segja að búið er að end- urvekja Yggdrasil, leikfélag Verk- menntaskólans á Akureyri. Þau sýna núna í lok október verkið 101 Reykjavík eftir Hallgrím Helgason en Menntaskólinn á Akureyri heldur sína sýningu eftir áramót,“ útskýrir Ragnheiður. Hundur í óskilum frumsýnir í októberlok verkið Öldin okkar úr smiðju tónlistar- og leikhópsins í samvinnu við LA. Félagarnir Eirík- ur Stephensen og Hjörleifur Hjart- arson vöktu mikla athygli fyrir tveimur árum með verkinu Saga þjóðar þar sem farið var á líflegan og hrífandi hátt yfir helstu viðburði í sögu Íslands. „Sú sýning Hunds í óskilum sló rækilega í gegn bæði hér á Akureyri og síðar í Borgarleikhús- inu þar sem verkið var sýnt margoft fyrir troðfullu húsi. Í Öldinni okkar er áfram sagt frá sögu Íslands nema einblínt er á viðburði 21. aldarinnar, eða þess sem af henni er liðið.“ Eftir áramót segir Ragnheiður að langþráður draumur muni rætast með stórri barna- og fjölskyldusýn- ingu. Ræðst leikfélagið til atlögu við ekki ómerkilegra verk en Lísu í Undralandi eftir Lewis Carroll. „Verkið er í leikgerð Margrétar Örnólfsdóttur, leikstýrt af Vigni Rafni Valþórssyni með tónlist eftir sjálfan Dr. Gunna. Verður það Thelma Marín Jónsdóttir sem fer með hlutverk Lísu.“ Ragnheiður á von a geysiflottri sýningu. „Með þennan frábæra hóp listamanna getur útoman ekki orðið annað en flott. Verkið er líka af þeim toga að ætti að höfða bæði til barna og fullorðina. Börnin hafa gaman af ævintýrinu og furðuverunum en for- eldrarnir njóta þessa sérstaka verks á annan hátt.“ Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Metnaður Valinn maður er í hverju hlutverki í uppfærslu á Lísu í Undralandi eftir ára- mót. „Með þennan frábæra hóp listamanna getur útkom- an ekki orðið annað en flott,“ segir Ragnheiður Skúladóttir leikhússtjóri. www.gulimidinn.is AF HVERJU SELDU BLEIKU GLASI RENNUR TIL STYRKTAR BLEIKU SLAUFUNNAR. Fyrir flottan málstað er bleikur miði hugsaðu um heilsuna húð, bein og liði. Fæst í apótekum, heilsuverslunum og stórmörkuðum.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.