Morgunblaðið - 09.10.2014, Síða 84

Morgunblaðið - 09.10.2014, Síða 84
84 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 2014 ✝ JónatanSveinsson, hæstarétt- arlögmaður, fædd- ist í Ólafsvík 18. febrúar 1934. Hann lést á hjúkr- unarheimilinu Sól- túni 29. september 2014. Foreldrar hans voru hjónin Sveinn Einarsson, sjómaður í Ólafsvík, f. 10. jan- úar 1892, d. 13. september 1967 og Þórheiður Ein- arsdóttir, húsfreyja í Ólafsvík, f. 4. apríl 1895, d. 6. júní 1964. Systkini Jónatans: Einar, f. 1916, d. 1979, Lárus, f. 1919, d. 1947, María, f. 1921, d. 2007, Sigurður, f. 1923, d. 1947, Elinbergur, f. 1926, Sól- veig, f. 1928, d. 2010, Sæunn, f. 1930, Katrín, f. 1932, d. Þóra Nanna og Sigríður Soffía. Sonur Jónatans er Hró- bjartur, hæstaréttarlögmaður, f. 1958, maki Valgerður Jó- hannesdóttir, viðskiptafræð- ingur, f. 1964. Börn þeirra eru Viktoría, Jóhannes og Jón- atan. Auk þess á Hróbjartur soninn Björn en börn hans eru Kristín Metta, Mikael Nói og Erik Leo. Jónatan ólst upp í Ólafsvík í stórum systkinahópi. Hann lauk stúdentsprófi frá Mennta- skólanum á Akureyri 1957, skipstjórnarprófi frá Stýri- mannaskólanum í Reykjavík 1960 og lögfræðiprófi frá lagadeild Háskóla Íslands 1965. Jónatan starfaði sem stundakennari við Unglinga- skólann í Ólafsvík á árunum 1957-59. Hann gegndi ýmsum störfum á fiskiskipum með- fram námi, þ. á m. stýri- manns- og skipstjórn- arstörfum. Að laganámi loknu starfaði hann fyrst um sinn sem fulltrúi. hjá ríkissaksókn- ara en árið 1966 hóf hann störf á málflutningsskrifstofu Bjarna Beinteinssonar hrl. Ár- ið 1967 hóf hann störf sem ftr. hjá ríkissaksóknara og var settur saksóknari árið 1977 og skipaður saksóknari 1982. Hann rak eigin lögfræðiskrif- stofu frá árinu 1986 allt þar til að hann lét af störfum árið 2009. Hann rak fiskiskipaút- gerð í félagi við aðra á ár- unum 1972-1986 og var stundakennari í sjórétti við Stýrimannaskólann í Reykja- vík á árunum 1968-1984. Áhugamál Jónatans voru fjöl- mörg. Hann tengdist sjávar- útvegi og fiskveiðum sterkum böndum alla tíð og hafði ávallt brennandi áhuga á öllu sem því við kom.. Hann rak lengi útgerð eins og áður segir auk þess sem átti hann smábáta sem hann réri á til fiskveiða og skemmtunar þegar færi gafst. Hann átti sæti í ýmsum nefndum og ráðum í gegnum tíðina auk þess sem hann fylgdist grannt með allri þjóð- málaumræðu. Útför Jónatans fer fram frá Árbæjarkirkju í dag, 9. októ- ber 2014, og hefst athöfnin kl. 13. 1996, Sveinbjörn, f. 1936, d. 2007, Guðmundur, f. 1939. Fóstursystir Þóra Stef- ánsdóttir, f. 1909, d. 1998. Jónatan kvænt- ist árið 1962 Nönnu Jón- asdóttur, hjúkr- unarfræðingi, fæddri á Dalvík 16. júní 1939. Þau eiga tvo syni: 1) Svein, héraðsdóms- lögmann, f. 1963, maki Brynja Ólafsdóttir, grunnskólakenn- ari, f. 1963. Dætur þeirra eru Nanna og Sigrún Hrefna. Dóttir Brynju er Alexandra Gyða Frímannsdóttir. 2) Jón- as, verkfræðingur, f. 1964, maki Anna Margrét Tóm- asdóttir, arkitekt, f. 1965. Börn þeirra eru Jónas Grétar, Skarðið sem pabbi skilur eftir er stórt og vandfyllt. Við sem eftir lifum varðveitum fjölmarg- ar góðar minningar um hann sem munu gera missinn léttbær- ari. Pabbi var traustur og áreið- anlegur og lagði metnað sinn í að skapa fjölskyldunni öruggt og gott umhverfi. Hann ólst upp í hópi 11 samheldinna systkina í Ólafsvík þar sem lífsbaráttan gat verið hörð. Pabbi var sá eini úr hópnum sem fór í langskóla- nám. Þetta hefur eflaust mótað hann. Eljusemi og samviskusemi einkenndu hann alla tíð. Tengsl hans við sjóinn voru sterk og út- gerð og fiskveiðar heilluðu. Há- skólanámið var fjármagnað með sjómennsku og hann kenndi um árabil við Stýrimannaskólann. Vinnudagurinn gat verið langur og fríin iðulega notuð í sjósókn eða framkvæmdir. Við bræðurn- ir vorum ekki gamlir þegar pabbi fór að taka okkur með á skak, línu eða net á Faxaflóan- um. Fyrst á Sæfellinu en eftir því sem árin liðu urðu fleyin betur búin. Það gat verið erfitt fyrir okkur bræðurna að vakna, jafnvel um miðjar nætur því pabbi var stundum svo spenntur að leysa landfestar ef útlit var fyrir gott veður og fiskirí. Auk þess að vera með smábáta í bænum var pabbi lengi með talsverða útgerð í Stykkishólmi með Bjössa bróður sínum. Pabbi og mamma byggðu sumarhúsið Sunnufell við Með- alfellsvatn og þar hefur fjöl- skyldan átt athvarf í um ald- arfjórðung. Þar er gott að slaka á og ekki skemmdi fyrir að um- hirða sumarhússins og umhverf- isins eru uppspretta endalausra verkefna fyrir eljusama menn. Fáum kom á óvart að meðal fyrstu verka pabba var að byggja hafnaraðstöðu til að auð- velda útgerð frá sumarhúsinu. Pabbi var alltaf boðinn og bú- inn til að rétta hjálparhönd og fór ekki í manngreinarálit. Skipti þá ekki máli hvort um var að ræða að bretta upp ermar og fara í drullugallann eða leysa úr lögfræðilegum málefnum fyrir skjólstæðinga sína. Pabbi hafði gaman af fótbolta. Leikur í enska boltanum eða meistaradeildinni var gott tilefni til að kíkja í heimsókn til hans. Eins var hann dyggur stuðn- ingsmaður Fylkis enda flutti fjölskyldan í Hraunbæinn þegar hverfið var að byggjast. Síðar var byggt í Deildarásnum þar sem stutt var að rölta á Fylk- isvöllinn. Pabbi bar ekki tilfinningar sína á torg en var samt með stórt hjarta. Hagur fjölskyldu, ættingja og vina skiptu hann miklu – sérstaklega barnanna. Hann var kletturinn í fjölskyld- unni sem ég leit upp til. Alltaf til staðar ef á bjátaði eða aðstoðar var þörf, en hélt sig oft til hlés. Hann var okkur bræðrunum góð fyrirmynd og veitti okkur nauð- synlegt aðhald enda gátum við verið óstýrilátir í uppvextinum. Pabbi var lengst af hraustur. Það var honum því erfitt þegar heilahrörnunarsjúkdómur sótti að honum síðustu árin. Viljinn var til staðar en getan fór þverr- andi. Það var því ómetanlegt hversu vel mamma hlúði að hon- um í veikindunum hans allt til hinstu stundar. Ekki bar skugga á þeirra samband alla tíð. Pabbi var hvíldinni feginn og gangur lífsins heldur áfram. Við sem þekktum hann getum með gleði þakkað fyrir allar góðu stundirnar sem hann gaf okkur. Blessuð sé minning hans. Jónas Jónatansson. Þegar ég læt hugann reika um minningar tengdar Jónatan tengdapabba þá er margra góðra stunda að minnast. Jón- atan var traustur, hlýr og heil- steyptur maður sem gott var að umgangast. Hann hafði slíkt yf- irbragð að auðvelt var að líka vel við hann frá fyrstu kynnum. Hann var víðlesinn og hafði mikla frásagnargáfu og talaði litskrúðugt mál þannig að unun var að hlusta á. Það kom honum vel sem málflutningsmanni. Okkar samskipti voru bæði fjölskylduleg og vinnutengd þar sem þeir feðgar Hróbjartur og Jónatan ráku saman lögmanns- stofu í um tuttugu ár. Sú sam- vinna og vinátta þeirra var þeim báðum mikill happafengur sem aldrei bar nokkurn skugga á. Hróbjartur naut þess að hafa pabba sinn sér til halds og trausts frá fyrstu árum síns lög- mannsferils og í langan tíma, sem hann er afar þakklátur fyr- ir. Jónatan var ekki einungis góður og virtur lögmaður heldur var hann líka mikill reiðumaður í bókhaldi og fjármálum en sá þáttur er ekki síður mikilvægur í rekstri lögmannsstofu en lög- fræðin sjálf. Það var samverka- mönnum hans til eftirbreytni. Jónatan og Nanna nutu þess að dvelja í sælureitum sínum, bæði á Spáni og ekki síður í bú- stað sínum við Meðalfellsvatn. Á báðum stöðum áttum við með þeim margar góðar stundir sem við Hróbjartur og börnin okkar erum þakklát fyrir. Jónatan var alinn upp í stórum systkinahópi í Ólafsvík sem var mjög samheldinn. Ég fann fljótt að sjórinn og sjávar- útvegur var Jónatan mikið áhugaefni enda stundaði hann sjó á yngri árum og rak útgerð um árabil. Eftir því sem árin færðust yfir hann voru fréttir tengdar útgerð og aflabrögðum skipa í Fiskifréttum vinsælt les- efni hans og umræðuefni. Nú þegar komið er að því að kveðja Jónatan kemur upp í hugann þakklæti fyrir að hafa kynnst honum og hans yndislegu konu, Nönnu. Blessuð sé falleg minning um Jónatan Sveinsson. Valgerður Jóhannesdóttir. Elsku afi, þú varst svo stór hluti af lífinu mínu og ég verð þakklát alla ævi fyrir allt sem þú kenndir mér og allar stund- irnar sem við höfum átt saman. Það eru góðar og dýrmætar minningar sem ég mun alltaf eiga. Mér fannst alltaf svo gam- an að koma í heimsókn til ykkar ömmu og ég tala nú ekki um þegar ég fékk að gista sem var nú ekki sjaldan. Við Sigrún gát- um leikið endalaust með svefn- sófann, gerðum m.a. búð, renni- braut, leikskóla og leikhús þar sem Hans og Gréta var leikið nokkrum sinnum í heimatilbún- um búningum úr Nóatúnspok- um. Svo náðum við yfirleitt í epli sem við komum með til þín þar sem þú sast og horfðir á sjón- varpið og bara þú máttir skræla og skera eplið enda bragðaðist það ekki eins ef einhver annar gerði það. Markmiðið var að ná hýðinu af í heilu lagi og sá sem sótti eplið fékk svo fyrsta bitann sem var að sjálfsögðu bestur. Ég tók þig líka nokkrum sinnum í hárgreiðslu þar sem þú sast í sófanum og ég ofan á öxlunum á þér og setti í þig eins margar teygjur og komust í hárið á þér. Á morgnana var alltaf sama rút- ínan við komum upp í til ykkar og horfðum á barnatímann, ég yfirleitt á undan þar sem ég hef aldrei verið þekkt fyrir að sofa lengi. Þá fór amma fram í eld- hús og náði í ristað brauð sem hún skar í ræmur (ristabrauð- aræmur), rúgbrauð og kakó með „sjúguskeið“ og kom með upp í rúm þar sem við lágum öll sam- an fram eftir morgni. Ég á svo margar dásamlegar minningar úr bústaðnum. Þegar þú ýttir mér svo hátt í rólunni að ég fékk kitl í magann og aðrir sem voru að ýta mér fengu þær leið- beiningar að þeir ættu að gera þetta eins og afi gerði. Þegar við tókum upp kartöflur sem við elduðum svo með kvöldmatnum og við Sigrún fengum að taka hluta af þeim heim til mömmu og pabba, mjög stoltar af upp- skerunni. Þegar þú varst að slá grasið og ég fékk stundum að sitja á lærinu á þér og hjálpa þér að stýra traktornum. Svo þegar það var búið að raka öllu saman var kerran fest aftan í og við keyrðum á milli hrúga og söfnuðum öllu heyinu í hana og það var aðalsportið að fá að sitja í kerrunni og fá allt heyið ofan á sig. Þegar við fórum á litla bátn- um út á Meðalfellsvatn þar sem það var skýr regla að allir væru í björgunarvestum og enn þann dag í dag hleypi ég engum á bátinn nema í vesti. Ég hef oft sagt fólki frá því að afi minn sé hetja því að hann bjargaði ömmu þegar hún fékk hjarta- stopp í Danmörku og mun alveg örugglega monta mig af því nokkrum sinnum í viðbót. Ég mun aldrei geta þakkað þér nógu vel fyrir það því að ég væri ekki helmingurinn af þeirri manneskju sem ég er í dag ef ekki væri fyrir ömmu Nönnu og ég lofa þér að ég skal hugsa vel um hana þangað til hún kemur til þín. Elsku afi, nú ertu frjáls og kominn tími til þess að við kveðjumst í bili. Sofðu rótt. Nanna Sveinsdóttir. Afi Jonni var yndislegur mað- ur, alltaf hlýr og góður. Hann var einstaklega klár, duglegur, heiðarlegur og mikil fyrirmynd í bæði leik og starfi. Við vorum alltaf svo velkomin í heimsókn, þó að strákarnir hafi átt sín móment í ærslagangi, gátum leikið við Goldie, farið niður í kjallara að hamast í öllu dótinu, fengið eins og einn frost- pinna og stundum skottast niður í Árbæjarlaug. Þegar hann fór með okkur systkinin í bátsferðir og stýrði bátnum eins og sönn- um skipstjóra sæmir, þær ferðir eru okkur dýrmætar og minn- umst við hans þannig. Minning- arnar sem við eigum frá því að leika okkur öll saman hjá ömmu og afa uppi í bústað eru okkur líka kærar og við erum þakklát fyrir þær. Það var alltaf fjör að leika úti í garði og í rólunum og hlaupa síðan inn til að fá heitt súkkulaði. Viktoría var svo heppin að fá að vera mikið með afa seinustu mánuðina, sem er ekki sjálfgefið þegar maður er úti í námi. Að hafa verið með afa á góðu og slæmu dögunum gef- ur meiri skilning á því hversu sterkur karakter hann var. Við munum alltaf eiga góðu minningarnar, frá Spáni, útá bátnum, sumarbústaðnum og Deildarásnum. Það hefði verið gaman að þekkja og muna betur eftir góðu árunum en við mun- um eflaust heyra fleiri skemmti- legar sögur um ókomin ár. Eins erfitt og það er að kveðja þá vitum við að afi er á betri stað. Hann myndi vilja að við héldum áfram að standa okkur vel og við vitum að hann var stoltur af okkur, rétt eins og við vorum af honum. Viktoría, Jóhannes og Jónatan. Við fráfall Jónatans mágs míns er margs að minnast. Kynni okkar hófust í Ólafsvík er ég sá fyrst þennan óvenju glæsi- lega 19 ára ungling sem var þá í fremstu röð frjálsíþróttamanna í sýslunni og þekktur að dugnaði og harðfylgi. „Jonni minn, heldurðu að sé ekki miklu betra fyrir þig að vera skipstjóri á báti hjá mér heldur en hefja lögfræðistörf í Reykjavík sem eru víst ekki vel launuð. Þú hefðir þá miklu betri laun, og ég skal láta byggja und- ir þig nýjan bát.“ Eitthvað á þessa leið fórust Halldóri Jóns- syni, útgerðarmanni í Ólafsvík, orð um það leyti sem Jónatan var að ljúka lögfræðiprófi frá Háskóla Íslands, en hann hafði þá þegar verið nokkur sumur skipstjóri á bátum hans. – Ég hygg að það hafi verið með fá- dæmum að ungir menn væru svo vel gerðir til líkama og sálar að þeim stæðu slíkir valkostir til boða, og væru jafnhæfir til hvors tveggja, en Jónatan hafði aflað sér bæði skipstjórnarrétt- inda og lokið lögfræðiprófi á sama tíma. – Og það var úr vöndu að ráða, niðurstaðan varð að velja lögfræðistörf en sleit sig þó aldrei alveg frá sjónum. Hann keypti fiskibát og gerði út með bróður sínum, skaust þá stundum á sjóinn og enn síðar keypti hann sér trillubát og réri frá Reykjavík þegar hentaði. Í hinni stóru sjómannsfjöl- skyldu hans í Ólafsvík störfuðu allir bræðurnir sjö að sjó- mennsku í lengri eða skemmri tíma. Allan sinn námstíma í Menntaskólanum á Akureyri stundaði hann námið mikið ut- anskóla, varð að skreppa til Ólafsvíkur um vetrarvertíðina og aflaði oft mikilla tekna á skömmum tíma, en hann skilaði sér alltaf til prófs á vorin. Sami háttur var á hafður er hafið var lögfræðinám í háskólanum, skot- ist á sjó í jóla- og páskahléum, þannig að aldrei þraut skotsilfur á námsárunum. Minnisstæður er gamlársdag- ur 1962 er hringt var til mín og ég beðinn að mæta kl. 4 síðdegis og vera svaramaður Jónatans en hann hugðist þá gifta sig. Hann hafði farið sem stýrimaður út á báti 2. jóladag og vegna mikillar síldveiði hefði hann lítið sofið frá þeim tíma en kæmi í land um tvöleytið og vildi drífa í að gift- ast henni Nönnu sinni því nýárs- dagur væri frídagur. Það gekk svo allt samkvæmt áætlun, en það var svefnlítill maður sem játaðist brúði sinni og steinsofn- aði þegar að lokinni athöfninni. Jónatan starfaði nær 20 ár við embætti ríkissaksóknara og þótti öflugur í starfi, fékk í fang- ið mörg landhelgisbrot og einna eftirminnilegast mála er hann varð saksóknari í Miðkvíslar- málinu er Mývetningar sprengdu þar stíflu. – En þar vann hann sér slíkt traust og virðingu sinna „delikventa“, að er hann hóf lögmannsstörf á eig- in vegum komu sömu Mývetn- ingar og báðu hann að gerast lögmann sinn í þeirra málum. Við Sæunn áttum því láni að fagna að fara ógleymanlegar ferðir með Jónatan og Nönnu víða um Evrópu og siglingu um Miðjarðarhafið. Vart var hægt að eiga betri ferðafélaga. Fyrir vináttu og aðstoð við mig og mína eru Jónatan færðar hugheilar þakkir og samúðar- kveðjur fluttar Nönnu, Hró- bjarti, Sveini og Jónasi ásamt fjölskyldum þeirra um leið og blessuð er minning hans. Ásgeir Jóhannesson. Minningar um móðurbróður minn eru fyrst tengdar búsetu hans og Nönnu í starfs- mannabústað á Kleppi, þar sem hún starfaði um árabil. Við frænkur vorum gjarnan fengnar til að gæta sona þeirra, Jónasar og Sveins. Það sem einkenndi Jonna var yfirvegun en hann var gamansamur og sagði marg- ar sögur úr sjóferðum sínum. Jonni var einstaklega hjálpsam- ur og velviljaður og allar hans sögur voru græskulaust gaman. Hann var alinn upp á heimili þar sem sjö bræður sóttu sjóinn og lífið í Ólafsvík snerist allt um aflabrögð. Sjórinn gaf og sjórinn tók af okkar fjölskyldu. Þegar Jonni útskrifaðist sem lögfræð- ingur var hann með allra fyrstu Ólsurum sem luku háskólaprófi. Hann stundaði útgerð á tímabili og fékk Lárus bróðir minn 16 ára gamall sína fyrstu reynslu á sjónum á skipinu Sigurði Sveinssyni, sem gert var út frá Stykkishólmi. Skipið átti Jonni með Sveinbirni bróður sínum. Sjómennskan var honum held ég í raun hugleiknari en lög- fræðin enda þótt hann væri með allra bestu lögfræðingum lands- ins. Hann sameinaði þetta reyndar hvort tveggja í ára- langri kennslu í sjórétti í Sjó- mannaskólanum. Er ég hóf sjálf nám í lögfræði gaf hann mér margvísleg ráð. Ég var heldur að flýta mér í gegnum lagadeild- ina en hann lagði ríka áherslu á hvað þyrfti að melta vel lög- fræðina, leyfa þessu að síast inn. Hann stofnaði um fimmtugt lög- fræðistofu í samstarfi við son sinn Hróbjart eftir að hafa starfað hjá ríkissaksóknara um áratuga skeið. Í lögmennskunni held ég að hann hafi notið sín enn betur en hjá ákæruvaldinu. Það er merkilegt að sumir af þeim sem hann hafði sótt til sak- ar leituðu síðar til hans á lög- mansstofuna. Jonni var ekki ref- siglaður og lagði áherslu á að sætta sjónarmið. Ekki gleymi ég því þegar Jonni bauð mér að ganga inn í lögmannsstofuna á því tímabili í mínu lífi sem mest mæddi á fjölskyldu minni. Enda þótt ég hafi ekki þegið boðið þá sýnir það best hvaða umhyggju hann bar fyrir mér. Hann áleit að á stofunni gæti ég haft það svigrúm sem ég þyrfti í erfiðum veikindum eiginmanns míns. Jonni var einstakur gæfumaður að eiga Nönnu fyrir lífsförunaut. Það var stundum sagt frá því í fjölskyldunni að Jonni hefði ver- ið mikið kvennagull enda stór- glæsilegur. Hann bjó á tímabili í fjölbýlishúsi hjá systur sinni og mági og mun hann hafa sætt nokkurri ásókn af hálfu kven- þjóðarinnar. Það var hins vegar mágurinn sem sagði að sér hefði litist langsamlega best á Nönnu og því ákveðið að vísa henni beint á réttan stað í húsinu. Þau Jonni áttu síðan samleið í meira en 50 ár og var umhyggja henn- ar fyrir honum í veikindum al- veg einstök. Frá því ég man eft- ir mér hefur Nanna verið máttarstólpi fjölskyldunnar. Hún er glaðvær og úrræðagóð og óþreytandi að liðsinna öðrum. Við Finnbogi vottum Nönnu og öðrum aðstandendum innilega samúð okkar. Berglind Ásgeirsdóttir. Það tekur alltaf á að kveðja. En þegar við kveðjum Jónatan Sveinsson, þennan trausta og hugprúða mann, er okkur efst í huga þakklæti fyrir hvern dag í návist hans. Kveðjustundin er ljúfsár. Lituð af rúmlega hálfrar aldar kynnum og nánum fjöl- skyldutengslum. Það er sárt að kveðja en ljúft að staldra við, líta til baka og finna allar fal- legu minningarnar um liðnar samverustundir streyma fram. Þær leiftra um hugann. Ör- lagaríkt ferðalag til Raufarhafn- ar á síldarárunum þar sem veðr- ið var vont og vegirnir verri. Eða fjallganga Jónatans og tengdaföður hans, Jónasar Hall- grímssonar, vestur yfir Heljar- dalsheiði þar sem lagt var af stað í blíðskaparveðri sem breyttist í foráttu suðvestanátt þegar komið var að Heljar- brekku og Kolbeinsdalurinn framundan. Vöxtur hlaupinn í ána Kolku og úr varð löng þrautaganga út að Sleitustöðum. Jónatan Sveinsson
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.