Morgunblaðið - 09.10.2014, Page 95

Morgunblaðið - 09.10.2014, Page 95
Kórsöngur og Alpaferðir Guðmundur söng með Karlakórn- um Þrym á Húsavík, í Kirkjukór Húsavíkurkirkju, með Karlakór Keflavíkur og Kirkjukór Keflavík- urkirkju í nokkur ár. Þú varst kallaður „antísportisti“ á skólaárunum. Á það enn við? „Nei, ég hef lært að meta heil- næma útiveru, ekki síst gönguferðir og skíðaiðkun. Við hjónin höfum ark- að þekktar, íslenskar gönguslóðir í góðra vina hópi og farið í gönguferð- ir erlendis á hverju ári frá 1995, að einu ári undanskildu. Oftast förum við í austurrísku Alpana. En við höf- um einnig farið til Ítalíu, Sviss, Slóveníu og Krítar. Þá höfum við átt margar eftirminnilegar skíðaferðir í ítölsku Ölpunum. Við eigum líka sumarhús í Gríms- nesinu og þar erum við fleiri helgar en færri, sumar og vetur, og oftar en ekki með einhverjum af barnabörn- unum. Það eru unaðsstundir og dásamlegt líf að fá að njóta þeirra.“ Fjölskylda Eiginkona Guðmundar er Vigdís Gunnarsdóttir, f. 21.12. 1944, fyrrv. ritari. Foreldrar hennar voru Gunn- ar Maríusson, f. 17.10. 1906, d. 9.8. 1998, sjómaður og bóndi á Húsavík, og Elín Jónsdóttir, f. 11.9. 1911, d. 15.12. 1990, húsfreyja. Dætur Guðmundar og Vigdísar eru Jakobína, f. 23.9. 1964, sviðs- stjóri hjá Iceland Travel í Reykjavík en maður hennar er Geir Svan- björnsson, rafmagnstæknifræðingur og verkefnastjóri hjá Gagnaveitu Reykjavíkur; Arna, f. 25.11. 1965, læknir og formaður Læknafélags Reykjavíkur, búsett í Reykjavík en maður hennar er Thor Aspelund, doktor í stærðfræði hjá Hjartavernd og HÍ; Silja Rún, f. 23.9. 1974, véla- verkfræðingur hjá Teris, búsett í Kópavogi en maður hennar er Gunn- ar Sverrir Gunnarsson, vélaverk- fræðingur hjá Mannviti. Barnabörn- in eru átta. Bræður Guðmundar: Ásgeir, f. 9.2. 1934, d. 24.8. 1998, var versl- unarmaður á Húsavík, og Stefán Jón, f. 30.9. 1948, fyrrv. bæjarstjóri á Dalvík, fyrrv. sveitarstjóri í Sand- gerði og nú verkefnastjóri hjá HS- orku í Reykjanesbæ. Foreldrar Guðmundar voru Bjarni Stefánsson, f. 10.8. 1898, d. 22.1. 1977, bifreiðarstjóri og versl- unarmaður á Húsavík, og Jakobína Jónsdóttir, f. 26.9. 1908, d. 18.2. 1992, húsfreyja. Úr frændgarði Guðmundar Bjarnasonar Guðmundur Bjarnason Anna Þorláksdóttir húskona Kristján Davíðsson húsm., af Hvassafellsætt, systursonur Kristjáns, langafa Jónasar frá Hriflu og Jóhanns Sig- urjónssonar skálds Kristín Kristjánsdóttir húsfr. á Höskuldsstöðum Jón Olgeirsson b. á Höskuldsstöðum í Reykjadal Jakobína Jónsdóttir húsfr. á Helluvaði og á Húsavík Guðbjörg Eiríksd. húsfreyja í Reykjadal Jón Jónsson alþm. í Múla Árni Jónsson frá Múla alþm. í Rvík Sigurður Jónsson skáld á Arnarvatni Málfríður Sigurðardóttir fyrrv. alþm. Björg Jónsd. húsfr. á Húsavík Pétur Olgeirsson skipstj. á Húsavík Linda Pétursdóttir fyrrv. fegurðar- drottning Olgeir Sigurgeirsson útgerðarm. á Húsavík Sigfríður Jónsdóttir húsfr. á Húsavík Margrét Karlsdóttir húsfr. í Eyjum Guðlaugur Friðþórsson sundkappi Sigurhanna Stefánsd. húsfr. á Húsavík Stefán Benediktsson kaupm. á Húsavík Sigrún Stefánsd. húsfr. í Rvík Kolbeinn Sigþórsson knatt- spyrnum. hjá Ajax Margrét Magnúsdóttir húsfr. á Bergsstöðum Jónas Ólafsson b. á Bergsstöðum í Aðaldal Guðrún Jónasdóttir ljósmóðir á Fótaskinni Stefán Guðmundsson b. á Fótaskinni í Aðaldal Bjarni Stefánsson b. á Helluvaði í Mývatnsssveit og starfsm. KÞ á Húsavík Ingibjörg Guðmundsdóttir húsfr. í Valla- koti, bróðurdóttir Björns Pálssonar, langafa Björns á Hróaldsstöðum, langafa Halldórs Ásgrímssonar fyrrv. forsætis- ráðherra Guðmundur Jónsson b. í Vallakoti Jón Múli Árna- son tónskáld og útvarpsm. Jónas Árnason alþm. og rithöfundur Olgeir Hinriksson b. á Ytra-Fjalli í Aðaldal, af Harðabóndaætt Jón Hinriksson skáld á Helluvaði ÍSLENDINGAR 95 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 2014 Lára Margrét fæddist í Reykja-vík 9.10. 1947. Foreldrarhennar voru Ragnar Tómas Árnason, útvarps- þulur og heildsali, og Jónína Vigdís Schram læknaritari. Ragnar Tómas var sonur Árna Benediktssonar stórkaupmanns og Kristrúnar Tómasdóttur húsfreyju, en Jónína Vigdís var dóttir Kristjáns Schram skipstjóra og Láru Jóns- dóttur húsfreyju. Systkini Láru Margrétar eru Kristján Tómas, prófessor og yf- irlæknir; Árni Tómas, yfirlæknir; Ásta framkvæmdastjóri og Hall- grímur Tómas, viðskiptafræðingur og framkvæmdastjóri. Lára Margrét giftist Ólafi Grétari Guðmundssyni augnlækni en þau skildu. Þau eignuðust þrjú börn, Önnu Kristínu sem er látin, Ingva Steinar, og Atla Ragnar. Lára Margrét lauk stúdentsprófi frá MR, viðskiptafræðiprófi frá HÍ og meistaranámi í heilsuhagfræði frá Háskólanum í Björgvin. Hún var skrifstofustjóri Læknasamtakanna 1968-72, forstöðumaður áætl- anadeildar Ríkisspítalanna 1983-85 og kenndi jafnframt heilsuhagfræði, var forstöðumaður þróunardeildar Ríkisspítalanna 1989-91, alþm. fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Reykjavík 1991- 2003 og vþm. 2003-2006. Hún sat í ut- anríkismálanefnd, umhverfisnefnd og heilbrigðis- og trygginganefnd, stýrði heilbrigðisnefnd Sjálfstæð- isflokksins um árabil, sat í full- trúaráði Sólheima, í stjórn Íslensku óperunnar og Íslensk-ameríska fé- lagsins, var formaður Skálholts- nefndar, sat þing Vestur-Evrópu- sambandsins og leiddi Íslandsdeild þess. Hún var ötul baráttukona fyrir mannréttindum og lýðræði, sat í Ís- landsdeild Evrópuráðsins og var for- maður þess og varaforseti ráðsins 1998-2000. Innan Evrópuráðsins stýrði hún m.a. rannsóknum á afleið- ingum kjarnorkuslyssins í Tjernobyl og aðbúnaði stríðsfanga í Tjetsníu. Eftir að þingmennsku lauk starfaði hún áfram fyrir Evrópuráðið og ut- anríkisráðuneytið. Lára Margrét lést 29.1. 2012. Merkir Íslendingar Lára Margrét Ragnarsdóttir 95 ára Ingibjörg Friðjónsdóttir 90 ára Hannes Pálsson 85 ára Halldór Christensen Haraldur Árnason Hermann Sigurjónsson Jónína Magnúsdóttir Steindór Ólafsson 80 ára Baldur Pálsson Olgeir Svavar Gíslason Sveinn Þ. Sigurjónsson 75 ára Árni Þorsteinsson Bryndís F. Guðjónsdóttir Gerður Björnsdóttir Guðni Kristján Sörensen Kolfinna Gunnarsdóttir Moritz Wilhelm Sigurðsson 70 ára Björn Jóhannsson Elsa Hlíðar Jónsdóttir Guðmundur Bjarnason Helgi Jónsson Magdalena M. Kjartansdóttir Rafn Herbertsson Sveinbjörn Jónsson 60 ára Björg Brynjólfsdóttir Hafdís Sigurðardóttir Hrafnhildur Haraldsdóttir Ívar Valgarðsson Jón Gíslason Kristmundur Bjarnason Margeir Elentínusson Ríkarður M Ríkarðsson Vilborg Aðalsteinsdóttir 50 ára Alma Þórisdóttir Ása Valdís Ásgeirsdóttir Gíslína V. Gunnsteinsdóttir Jóhanna Guðný Guðjónsdóttir Kristín Þorleifsdóttir Lárus Jóhannesson Sigríður María Magnúsdóttir Steinar Þór Guðleifsson 40 ára Ágúst Mogensen Einar Ingimundarson Jóhannes Pétursson Kristbjörg Hjaltadóttir Kristján Sigurðsson Sigríður Ragna Birgisdóttir Sigurbjörg Ragna Ragnarsdóttir Sigurður Helgi Pálmason Silke Freudenberger Unnar Þorsteinn Bjartmarsson Vilhjálmur Vagn Steinarsson 30 ára Alyona Nekrasova Arndís Kristjánsdóttir Birna Hrönn Björnsdóttir Guðbjörg Sandra Óðinsd. Hjelm Helga Jóhanna Harðardóttir Hjördís Haraldsdóttir Jón Ingi Björnsson Jónína Aðalsteinsdóttir Magnús Þór Kristjánsson Marta Maria Sawicka Ómar Örn Ómarsson Sigrún Ingþórsdóttir Tinna Eiríksdóttir Tomasz Andrzej Kusmierski Til hamingju með daginn 30 ára Tinna lauk BA- prófi í bókmenntafræði og er að ljúka MA-ritgerð í umhverfis- og auðlindafr. Maki: Ólafur Eiríkur Þórð- arson, f. 1983, nemi í sagnfræði við HÍ. Sonur: Styrmir Logi, f. 2011. Foreldrar: Eiríkur Hreinn Helgason, f. 1955, yfirlög- regluþjónn og kennari við Lögregluskólann, og Stef- anía Valgeirsdóttir, f. 1956, ráðgjafi hjá Sjóvá. Tinna Eiríksdóttir 30 ára Jónína ólst upp í Kópavogi og býr þar, lauk iðjuþjálfaprófi frá HA og er iðjuþjálfi á Æfingastöð- inni í Reykjavík. Dóttir: Eva Rut, f. 2006. Systkini: Birna Rut, f. 1987, og Bjarki Steinn, f. 1992. Foreldrar: Aðalsteinn Jónsson, f. 1963, prentari og framleiðslustjóri hjá Odda, og Runný Björk Daníelsdóttir, f. 1964, lyfjatæknir við LSH. Jónína Aðalsteinsdóttir 30 ára Ómar ólst upp í Hafnarfirði, býr í Grindvík, lauk diplomaprófi í verk- efnastjórnun frá HR og stundar nú nám í við- skiptafræði við HÍ. Sonur: Gabríel Máni, f. 2010. Systkini. Hulda, f. 1969, Valdimar, f. 1970, og Íris, f. 1977. Foreldrar: Sigríður Þor- gilsdóttir, f. 1950, fé- lagsliði, og Ómar Sigurðs- son, f. 1953, rafeindavirki. Ómar Örn Ómarsson Auðbrekku 3 ~ 200 Kópavogur ~ Sími: 564 1660 ~ oreind.is 25ÁRA 1988-2013 Þar sem gervihnattabúnaðurinn fæst ÞRÁÐLAUSIR HÁTALARAR - BLUETOOTH NÝTT X05 hátalararnir eru tilvaldir hvar sem er þar sem að þú vilt njóta tónlistar í gegnum snjallsímann eða spjaldtölvuna. Þeir eru með rafhlöðu sem endist allt að 8 tíma. Þú getur svarað símanum með honum líka. Þetta er sérlega vandaðir hátalarar sem er búnir til úr burstuðu áli sem er fáanlegt í rauðum, svörtum og silfurlit. Þú ert 2-3 tíma að hlaða hann með USB hleðslutæki. Fellum niður vörugjöld af bluetooth hátölurum
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.