Morgunblaðið - 09.10.2014, Page 108

Morgunblaðið - 09.10.2014, Page 108
FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 282. DAGUR ÁRSINS 2014 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470 1. 15 ára lék tveim skjöldum 2. Betlari á glænýjum bíl 3. Eldri kona vann 45 milljónir 4. Snerti andlitið með sýktum hanska »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Sinfóníuhljómsveit BBC í Skotlandi flutti íslenska tónlist eftir tónskáld samtakanna S.L.Á.T.U.R á tónleikum 4. okt. sl. undir stjórn Ilans Volkovs. Gagnrýnandi Guardian gaf tónleik- unum fjórar stjörnur af fimm og taldi þá takast vel og gefa fagra mynd af tónlist upprennandi tónsmiða á Ís- landi. Morgunblaðið/Kristinn Guardian ber lof á tónlist S.L.Á.T.U.R.  Vive la France, kvikmynd Helga Felixsonar og Titti Johnson, hlaut sérstök verðlaun dómnefndar á kvikmyndahátíð í París, Paris Science Int- ernational Film Festival, sem lauk í fyrradag. Vive la France hlaut dómnefndarverðlaun  Upptaka af uppsetningu Young Vic leikhússins í Lundúnum á leikritinu A streetcar named Desire verður sýnd í Bíó Paradís í kvöld kl. 18. Leikstjóri sýningarinnar er Benedict Andrews og mun leikarinn Atli Rafn Sigurð- arson ræða við hann að lokinni sýn- ingu. Andrews hefur hlotið fjölda verðlauna fyrir leikstjórn, m.a. Grímuverðlaunin 2011 og 2012 fyrir uppsetningar í Þjóðleik- húsinu á Macbeth og Lé konungi. Í aðal- hlutverkum í leik- sýningunni eru Gillian Anderson, Ben Foster og Vanessa Kirby. A Streetcar Named Desire í Bíó Paradís Á föstudag Norðan og norðaustan 5-10 m/s og lítilsháttar slydda eða rigning á NA- og A-landi, en léttskýjað suðvestantil. Hiti 1 til 8 stig, mildast syðst. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðaustanátt, víða 5-13 m/s. Léttskýjað á S- og SV-landi, annars skýjað og lítilsháttar væta fyrir norðan og austan. Hiti 2 til 10 stig. VEÐUR Íslandsmeistarar Snæfells í körfuknattleik kvenna hófu titilvörn sína á sannfærandi hátt í gærkvöldi með því að leggja Hauka að velli, 65:60, á heimavelli sínum í Stykkishólmi. Grindavík vann nýliða Hamars í Grindavík með 13 stiga mun, 93:80, og Valur vann KR-inga í íþróttahúsi KR með fjögurra stiga mun, 71:67, og Keflavík lagði Breiðablik. »3 Íslandsmeistarar byrjuðu vel Fátt getur komið í veg fyrir að KR-liðið verði að minnsta kosti deildarmeistari í körfuknattleik karla á keppnis- tímabilinu sem hefst með keppni í Dominos-deild karla í kvöld. Ís- landsmeistarar KR eru með yfirburðalið, segir Kristinn Friðriksson í síðari grein sinni um liðin 12 í Dominos- deildinni. »2-3 Fátt virðist geta stöðvað KR-inga í vetur „Þjálfararnir hafa rætt um það að ef manni líður eitthvað illa þá eigi að láta vita af því en ég vil spila, enda hefði pabbi ekki tekið annað í mál,“ sagði Emil Hallfreðsson við Morg- unblaðið fyrir æfingu landsliðsins í knattspyrnu á Skonto Stadium í Riga í Lettlandi í gær. Emil missti nýlega föður sinn, Hallfreð Emilsson, eftir erfið veikindi. »1 Pabbi hefði ekki tekið annað í mál en að spila ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Þórunn Kristjánsdóttir thorunn@mbl.is „Ég hef mjög gaman af því að við höf- um fengið sömu verðlaunin,“ segir Hjörtur Marteinsson um bók- menntaverðlaun Tómasar Guð- mundssonar sem hann hlaut í annað skipti nýverið en sonur hans Dagur hlaut þau fyrir tveimur árum. Hjört- ur hlaut þau í ár fyrir ljóðahandritið Alzheimer-tilbrigðin en árið 2000 fyr- ir skáldsöguna AM 00. Dagur fékk þau fyrir ljóðahandritið Þar sem vindarnir hvílast og fleiri einlæg ljóð. Hjörtur hefur gefið út tvær aðrar ljóðabækur, Ljóshvolfin 1996 og Myrkurbil 1999. Eftir Dag liggur smásagnasafnið Eldhafið yfir okkur 2013 og bókverkið Sjálfsmorðstíðni í Finnlandi 2013. „Jú jú, við spjöllum um skáldskap. En þetta er alls ekki eins og í bíó- myndunum þar sem faðirinn gengur um gólf og sonurinn hlustar af and- akt á orð föður síns og bíður eftir næsta spakmæli eða ljóði,“ segir Hjörtur kíminn. Dagur tekur undir og segir þá feðga ekki alltaf sammála um bókmenntir og menningu, en það komi þó fyrir. Verðlaunin komu Hirti nokkuð á óvart en segir þau hvatningu til frek- ari ritstarfa. Hann er með sína aðra skáldsögu í smíðum. Hjört dreymir um að geta sinnt ritstörfum alfarið. „Það á vel við mig að skrifa og ég nýt þess að vera í eig- in heimi en það er ekki mikið upp úr ritstörfum að hafa.“ Lesa yfir hvor fyrir annan „Hann hefur eflaust orðið fyrir áhrifum en ég bjóst allt eins við að hann færi aðra leið í lífinu,“ segir Hjörtur. Eins og sönnum föður sæm- ir þá hefur hann fulla trú á syni sín- um. „Mér líst vel á ljóðin hans. Hann er áhugasamur, metnaðarfullur og hef- ur ánægju af því að skrifa. Það er mikilvægt.“ Í gegnum tíðina hafa feðgarnir les- ið mikið yfir hvor fyrir annan og veitt góð ráð. „Foreldrar mínir eru góðir yfirlesarar og hafa ekki hlíft mér, það hefur reynst mér mjög gefandi,“ seg- ir Dagur. Hann segir fjölskylduna listhneigða en móðir hans er listmál- arinn Guðbjörg Lind Jónsdóttir. „Ég hafði engan áhuga á listum sem barn og var alltaf mikið í íþróttum.“ Það var ekki fyrr en á menntaskóla- árunum sem Dagur fékk áhuga á ljóðagerð. Þegar hann skráði sig í ís- lensku kviknaði áhuginn fyrir alvöru og ljóðin hrönnuðust upp í skúffunni. Sigfús Daðason í uppáhaldi „Mér er minnisstætt þegar ég var í tíma hjá Bergljótu Kristjánsdóttur í háskólanum og við lásum ljóð eftir ýmsa höfunda. Ég heillaðist strax af ljóðum Sigfúsar Daðasonar. Þegar ég kom heim og talaði um Sigfús við pabba þá átti hann upptöku af Sigfúsi lesa sama ljóðið. Þá urðu ákveðin tímamót,“ segir Dagur og tekur fram að Sigfús sé skáld skáldanna. Forlagið Tunglið, sem Dagur stofnaði ásamt Ragnari Helga Ólafs- syni, gefur út ljóðabók föður hans. Dagur er einnig með skáldsögu í bígerð. Ljósmyndir utan úr geimnum er vinnutitill bókar Dags. Þeir sinna báðir listagyðjunni og leggur Hjörtur stund á myndlist í formi lágmynda, þrívíðra verka og málverka. Um helgina mun Hjörtur lesa upp úr nýjustu ljóðabókinni í Gamla sjúkrahúsinu á Ísafirði. Þau hjónin verða þar að taka niður sam- eiginlega listasýningu sem nefnist Umhverfis djúpan fjörð. Ljóðrænir feðgar heiðraðir  Hlutu báðir bókmenntaverð- laun Tómasar Guðmundssonar Morgunblaðið/Kristinn Feðgar Hirti Marteinssyni og Degi Hjartarsyni er margt til lista lagt en þeir eru ritfærir með eindæmum. Sjaldan fellur eplið langt frá eikinni, á vel við um þá feðga. Báðir hafa þeir lokið BA-prófi í íslensku og meistaraprófi í ís- lenskum bókmenntum. Hjörtur kennir íslensku á unglingastigi í Árbæjarskóla og hefur kennslu- réttindi í farteskinu og Dagur kennir íslensku við Mennta- skólann við Sund. Þá hafa þeir báðir verið í ritlist við Háskóla Íslands. Íslenska og bókmenntir SJALDAN FELLUR EPLIÐ LANGT FRÁ EIKINNI
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.