Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.04.2007, Page 5

Læknablaðið - 15.04.2007, Page 5
LISTAMAÐUR MÁNAÐARINS II M R Æ 6 A 0 G F R É T T I R 343 Af sjónarhóli stjórnar. Læknar, velkomnir á 21. öldina - virkjum heimasíðuna Sigurdís Haraldsdóttir 345 Starfsþroski og tvíhöfða stjórnkerfi. Af stjórnarfundi LÍ á Flúðum Hávar Sigurjónsson 346 Stendur undir nafni sem kennslu- og rannsóknarspítali - viðtal við Olaf Baldursson Hávar Sigurjónsson 351 Þótti hafa þrönga sérmenntun - viðtal við Höskuld Baldursson skurðlækni Hávar Sigurjónsson 356 Golfíð er fyrir alla aldurshópa. Ahugamál Asgerðar Sverrisdóttur Hávar Sigurjónsson 359 Sjúkraflutningar í dreifbýli Björn Gunnarsson, Hildigunnur Svavarsdóttir, Sveinbjörn Dúason, Helga K. Magnúsdóttir F A S T I R P I S T L A R 365 íðorð 197. Vefjaflæði Jóhann Heiðar Jóhannsson 366 Einingaverð og taxtar 366 Svar við tilfelli mánaðarins 372 Sérlyfjatextar 382 Ráðstefnur og fundir 383 Einu sinni var læknir - Hugleiðing höfundar Kristín Steinsdóttir Klippimyndin Kabarett (2004) er full af fjöllum sem hefur hlaðið hverju ofan á annað þannig að hún er óvenju löng og mjó. Þarna eru kunnugleg kennileiti, í það minnsta bregður fyrir Þingvöllum með Almannagjá og Öx- arárfossi. Undirstaða listasögu þjóðarinnar er fjöll og Þingvellir eru þar kapítuli út af fyrir sig. Fjöll áttu sinn þátt í sjálfstæðisbaráttunni og að móta með islendingum þjóðarímynd. Hér eru jú fjölbreyttari fjöll en annars staðar í veröldinni vegna jarðfræðilegrar sérstöðu - í Ölpunum er bara ein gerð fjalla. Þjóðin ann þeim í listum og frístundum, málar af þeim myndir og klífur í gönguferðum. Hin unga listakona, Ingibjörg Birgisdóttir (f. 1981), tekur við þessum menningararfi og hrúgar upp í eins konar mystnur. Þessi mynd hennar getur virkað eins og kaldhæðin ádeila á sjálfsmynd þjóðarinnar. Eitthvað í líkingu við viðáttuverk Errós þar sem hann hleður saman myndum úr samfélagi fjölda- framleiðslu og ofgnóttar, matarlandslag, flugvélalandslag og svo framvegis. Þegar betur er að gáð leynast í myndinni smáatriði sem brjóta í bága við einsleitnina, punktur yfir i-ið sem dregur að sér athygli og end- urtekningin verður að veggfóðri þar á bak við. Framan við fjöllin stigur par í þjóðbúningi samkvæmisdans og annars staðar stendur maður á hól og lítur fjalladýrðina augum eins og í málverki þýska rómantíkersins Caspar David Friedrichs. Tilgátan um kaldhæðni víkur smám saman og nostalgísk rómantík kemur í hennar stað. Ingibjörg virðist vinna á mörkum yfirgengilegrar væmni og stríðn- islegs húmors. Þegar allt kemur til alls virðist myndefnið sjálft ekki lykilatriði heldur efn- iskennd þess og framsetning, þetta kemur líka fram í öðrum verkum Ingibjargar sem teiknar á gulnuð saurblöð fornbóka, upp- lituð og blettótt stilabókablöð og innrammar í gamla, fundna ramma. Það er samt ekki saga hlutanna, uppruni eða merking sem skiptir máli, aðeins að þeir séu gamlir í sjálfu sér. Ingibjörg viðar að sér því sem teng- ist fjöldaframleiðslu liðinna tíma, gömlum bókum, póstkortum, Ijósmyndum og öðru prentverki. Þannig eru fjöllin fengin úr svart- hvítum eða gulnuðum póstkortum, likast til fjarri því að vera íslensk. Hún býr til grípandi verk með næmni fyrir stemningu, uppbygg- ingu og efniskennd. Markús Andrésson Læknablaðið 2007/93 269
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.