Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.04.2007, Side 92

Læknablaðið - 15.04.2007, Side 92
UMRÆÐA & FRÉTTIR / ÁHUGAMÁL Golfið er fyrir alla aldurshópa - viðtal við Ásgerði Sverrisdóttur Ásgerður Sverrisdóttir krabbameinslæknir er í hópi fremstu golfkvenna landsins. Hún var íslandsmeistari tvö ár í röð, 1983 og 1984 og var í kvenna- landsliðinu í golfi frá 1981 fram til ársins 1995. Hún útskrifaðist úr læknadeild HÍ árið 1989 og hélt síðan til sérnáms í Svíþjóð og fluttist heim til íslands árið 2004. Hún hefur ekki tekið þátt í stóru móti undanfarin ár en seg- ist þó litlu hafa gleymt og er í dag með sömu forgjöf og árið sem hún varð íslandsmeistari. „Eftir að við fluttum til Svíþjóðar þá breyttist þetta talsvert. Það var minna svigrúm til æfinga og þátttöku í mótum og einnig komu börn til sögunn- ar þannig að ýmislegt kom í veg fyrir fulla þátttöku í golfinu. Golf er tímafrek íþrótt og við bjuggum í Stokkhólmi og erfitt að komast að á golfvöllum nema í fríum, vinnudagurinn var lengri og birtan á kvöldin endist ekki jafnlengi og hér heima.” Ásgerður bendir á að hér á íslandi sé einstak- lega gott tækifæri til að stunda golfíþróttina, „ ... þegar veður og árstíðir leyfa, en það er ekki víða í veröldinni jafn auðvelt og fljótlegt að komast út á golfvöll einsog hér heima. Það setur reyndar svolítið strik í reikninginn að ekki er hægt að spila úti yfir veturinn en á sumrin er birtutíminn svo langur og hægt að fara eldsnemma á morgnana eða á kvöldin með litlum fyrirvara.” Hvenœr byrjaðirðu að spila golf? „Ég byrjaði að dingla golfkylfum 7-8 ára gömul því foreldrar mínir voru í Golfklúbbi Ness á Seltjarnarnesi og 12 ára gömul krafðist ég þess að fá að taka þátt í meistaramóti klúbbsins.” Var þetta ekki dálítið óvenjulegt á þessum tíma? „Jú, þetta þótti svolítið öðruvísi íþrótt og var nærri óþekkt. Það var helst miðaldra fólk sem spil- aði golf og klúbburinn á Nesinu var með svolítið sérstöku yfirbragði. Golfklúbbur Reykjavíkur, sem ég gerðist síðar meðlimur í, var stærri og með Hávar öflugt unglingastarf, en það má reyndar rifja upp Sigurjónsson að hann var upphaflega stofnaður af læknum. Það 356 Læknablaðið 2007/93 voru mjög fáir krakkar að spila golf á þessum tíma og enn færri stelpur. Ég spilaði bara með strák- unum og vandist því að þurfa að keppa við þá líka.” Og árangurinn lét ekki á sér standa. íslandsmeistari kvenna tvö ár í röð. „Það er reyndar skrýtið hvað þetta gekk vel því á þessum sama tíma var ég á fyrsta og öðru ári í læknisfræðinni sem voru býsna strembin. En ég var auðvitað búin að vera spila mjög mikið golf í mörg ár á undan, hafði verið í landsliðinu og var að berjast um toppsæti á mótum.” Hverjar voru þínir helstu sam- og mótherjar? „Á mínu reki voru Steinunn Sæmundsdóttir, Sólveig Þorsteinsdóttur, Þórdís Gei'rsdóttir og Kristín Þorvaldsdóttir en nokkru eldri og reyndari voru Jóhanna Ingólfsdóttir og Kristín Pálsdóttir. Síðan koma Karen Sævarsdóttir og Ragnhildur Sigurðardóttir til sögunnar og hafa báðar verið íslandsmeistarar margsinnis. Ólöf María, sem er atvinnukona á Evrópumótaröðinni núna, var að byrja í lok míns keppnisferils. Við vorum allar að keppa hver við aðra og æfðum líka saman í lands- liðinu, þannig að þetta var mjög skemmtilegur tími.” Ásgerður segir ekki hægt að bera saman golfið eins og það var stundað á áttunda áratugnum og hvernig það er núna. „Það er eiginlega alveg sama hvar litið er á. Allar aðstæður til golfiðkunar hafa breyst mikið til batnaðar. Þegar ég var að byrja í golfinu, þá þótti mörgum sem þetta væri alls ekki íþrótt fyrir börn og unglinga og sumir vildu jafnvel banna okkur aðgang að völlunum. Sem betur fer varð þetta sjón- armið ekki ofan á og unglingastarfið hefur skilað gríðarlega góðum árangri, m.a. með atvinnumönn- um erlendis. Vellirnir eru líka orðnir fleiri og betri gæði á grasi sem notað er og umönnun vallanna og því hægt að byrja fyrr á vorin og spila lengra
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.