Læknablaðið - 15.04.2007, Blaðsíða 25
FRÆÐIGREINAR / NYRNAFRUMUKRABBAMEIN
Tilviljanagreind nýrnafrumukrabbamein
Með tilviljanagreiningu er átt við mein (til dæmis
krabbamein) sem greinast fyrir tilviljun við rann-
sóknir sem gerðar eru vegna sjúkdóma eða ein-
kenna sem ekki er hægt að rekja til viðkomandi
meins. Hér er hins vegar ekki átt við æxli sem
greinast fyrir tilviljun við krufningu. Slík æxli
teljast til svokallaðra krufningagreininga. Alls
greindust 17% nýrnafrumukrabbameina með
þeim hætti á tímabilinu 1955-1999 og er búist við
að sú tala lækki vegna fækkunar krufninga (57).
Tilviljanagreiningu nýrnafrumukrabbameina má
langoftast rekja til myndrannsókna á kviði, sér-
staklega tölvuneiðmynda og ómskoðana sem
framkvæmdar eru vegna gruns um sjúkdóma í gall-
vegum og lifur (8, 12). Einkennalausir sjúklingar
sem greinast með smásæja blóðmigu eða hækkað
sökk við heilsueftirlit eru oftast taldir með í þess-
um hópi. Rétt er þó að geta þess að skilgreining á
tilviljangreiningu er nokkuð flöktandi eftir rann-
sóknum og hefur því áhrif á hlutfallslegan fjölda
tilviljanagreindra æxla í þeim (17). Með aukinni
notkun myndgreiningarannsókna á undanförnum
árum hefur hlutfall tilviljanagreindra aukist hratt
(19, 58). Þessi þróun hefur sést glögglega hér á
landi með auknum myndrannsóknum á kviði
(mynd 7) sem leitt hefur af sér aukinn fjölda tilvilj-
anagreindra nýrnafrumukrabbameina (mynd 8).
A síðustu árum greinast allt að 40% nýrnafrum-
krabbameina hér á landi fyrir tilviljun og langflest
þessara æxla finnast við ómskoðun eða tölvusneið-
myndatöku af kviðarholi (12, 17). Svipuð þróun
hefur orðið erlendis þar sem hlutfall tilviljana-
greindra æxla er yfirleitt á bilinu 30-50% (59-61)
en svo virðist sem hlutfall tölvusneiðmynda sé
vaxandi á kostnað annarra myndrannsókna (17).
Stigun og gráðun
Með stigun krabbameina er átt við kortlagningu á
útbreiðslu þeirra. Stigun er langmikilvægasti for-
spárþáttur hvað varðar lífshorfur sjúklinga með
nýrnafrumukrabbamein (62-64). Hefur meðal
annars verið sýnt fram á mikilvægi hennar í
íslenskum rannsóknum (8, 9). Tvö stigunarkerfi
hafa mest verið notuð hér á landi; stigunarkerfi
Robsons (65) (sjá mynd 9) ogTNM stigunarkerfið
(tafla VII) (66 67).
Kostur fyrrnefnda kerfisins er hversu einfalt
það er. Það er hins vegar takmarkað hvað varðar
sjúklinga á stigi III þar sem ekki er gerður munur á
æxlisvexti í eitlum, sem hefur í för með sér slæmar
horfur, og æxlisvexti í nýrnabláæð, sem stundum er
hægt að fjarlægja með aðgerð (37 38).TNM-kerfið
þykir því fullkomnara að þessu leyti og er í dag
algjörlega ráðandi.
Tafla VI. Einkenni sem leiddu til greiningar hjá 529 sjúklingum meö nýmafrumukrabbamein á íslandi 1971-2000*.
Einkenni Fjöldi sjúklinga (%)
Verkir I kviö/síöu 280 (53)
Bersæ blóðmiga 229 (43)
Þyngdartap 138 (26)
Einkenni vegna blóðleysis 113 (21)
Fyrirferð í kvið 52 (10)
Hiti 47(9)
Háþrýstingur 6(1)
Rauökornafjölgun (erythocytotosis) 4(1)
Þrenna einkenna (triad) 13(3)
Einkenni vegna meinvarpa 99 (19)
Önnur 10(2)
* Sjúklingar geta haft fleiri en eitt einkenni.
Fjöldi
—»-IVP
■ CT
US
__Samtals
Af 708 íslenskum sjúklingum greindum með
nýrnafrumukrabbamein á árunum 1971-2000 voru
629 tilfelli staðfest með vefjagreiningu (hinir
sjúklingarnir voru „klínískt“ greindir) (9). Mynd
10 sýnir TNM-stigun þessara sjúklinga en flestir
greindust á stigi I (30%) og IV (32%). Þegar á
rannsóknartímabilið leið fjölgaði sjúklingum á
stigi I og að sama skapi fækkaði sjúklingum á stigi
IV. Þetta skýrist af aukningu í tilviljanagreiningu
en á tímabilinu 1996-2000 greindust 37% æxlanna
fyrir tilviljun og hlutfall æxla á stigi I voru 46% og
25% á stigi IV (12).
Með gráðun (grading) er átt við útlit frumanna
(í ljóssmásjá) sem mynda æxlið. Gráðun getur
sagt til um ágengni (agressiveness) frumanna og
tilhneigingu til meinvarpa. Þetta er mikilvægur
forspárþáttur lífshorfa enda þótt stigun vegi mun
þyngra (9). Margar rannsóknir hafa sýnt að gráð-
un er sjálfstæður forspárþáttur lífshorfa (68-70),
meðal annars áðurnefnd íslensk rannsókn (9).
Mörg kerfi til gráðunar hafa verið notuð en þekkt-
ast er kerfi Fuhrmans (70) sem byggir á fjórum
flokkum og stuðst var við í íslensku rannsókninni
(mynd 11).
Mynd 7. Fjöldi mynd-
greiningarannsókna á
kvið og nýrum á íslandi
1986-2004. Töluryfir
fjölda rannsókna byggja á
skýrslum frá Landspítala,
Fjórðungssjúkrahúsinu á
Akureyri og röntgendeild
Domus Medica (Ólafur
Kjartansson, persónu-
legar upplýsingar). IVP =
nýrnamynd (intravenous
urography), CT = tölvu-
sneiðmyndataka (compu-
ted tomography), US =
ómskoðun (ultrasound).
Læknablaðið 2007/93 289