Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.04.2007, Blaðsíða 28

Læknablaðið - 15.04.2007, Blaðsíða 28
FRÆÐIGREINAR / NÝRNAFRUMUKRABBAMEIN Mynd 9. Stigun nýrna- frumukrabbameins samkvœmt stigunarkerfi Robsons (65.) (<5 cm) í neðri hluta nýrans (78). Um 5-9% sjúk- linga með nýrnafrumukrabbamein hafa æxlisvöxt í neðri holæð (v. cava inf.). Ef engin meinvörp eru til staðar getur verið ávinningur af því fjarlægja þennan æxlissega við sömu aðgerð (79). Nýrnabrottnám er viðamikil aðgerð með fylgikvilla á við aðrar stórar kviðarholsaðgerðir. Á íslandi voru framkvæmd 575 nýrnabrottnám vegna nýrnafrumukrabbameins á árunum 1971-2000, á 8 sjúkrahúsum og af 32 skurðlæknum. Skurðdauði (operative mortality), það er dauðsföll innan 30 daga frá aðgerð, var 2,8% (15) sem er sambærilegt við erlendar tölur (80, 81). í öllum tilvikum (n = 16) reyndust dauðsföll beint tengd aðgerðinni en algengustu orsakirnar voru blæðingar í og eftir aðgerð (31%) og sýkingar (25%). Hlutabrottnám á nýra (partial nephrectomy) er aðgerð sem upphaflega var framkvæmd í sjúkling- um með stakt nýra eða æxli í báðum nýrum, eða sjúklingum í alvarlegri nýrnabilun (82). Nú er hlutabrottnám á nýra að auki viðurkennd með- ferð þegar æxli eru <4 cm að stærð (83). Vegna vaxandi fjölda lítilla tilviljanagreindra æxla hefur þessum aðgerðum fjölgað verulega, sérstaklega í Bandaríkjunum. Á síðustu árum hefur hluta- brottnám verið framkvæmt hér á landi (84) en þorri aðgerða við nýrnafrumukrabbameini er enn framkvæmdur með brottnámi alls nýrans. Sýnt hefur verið fram á að horfur sjúklinga sem gangast undir hlutabrottnám á nýra eru svipaðar og þeirra sem hafa æxli af sömu stærð og gangast undir heildarbrottnám á nýra (83, 85, 86). Hins vegar er meiri hætta á staðbundinni endurkomu sjúkdóms- ins eða í um 3-6% tilfella (87). Nýrnabrottnám með kviðsjárspeglun (lap- aroscopic nephrectomy) var fyrst lýst árið 1991 og hefur sums staðar erlendis náð fótfestu sem aðgerð við nýrnafrumukrabbameini (86). Hægt er að fjarlægja allt nýrað eða hluta þess með kvið- sjártækni. Þetta eru þó tæknilega töluvert flóknar aðgerðir. Kostir speglunaraðgerðanna eru minni verkir eftir aðgerð og styttri legutími og endurhæf- ing (88). Á hinn bóginn er ekki ljóst hver lang- tímaárangur þessara aðgerða er, til dæmis liggja ekki fyrir áreiðanlegar upplýsingar um tíðni end- urtekins krabbameins og langtíma lífshorfur (86). Aðgerð með kviðsjártækni hefur því ekki leyst af hólmi hefðbundið nýrnabrottnám. Á íslandi hefur nýrnabrottnám verið framkvæmt með kviðsjár- speglun og í vaxandi mæli á allra síðustu árum. Nýrnabrottnám hjá sjúklingum með meinvörp getur komið til greina hjá völdum hópi sjúklinga. Engu að síður gildir í flestum tilvikum sú regla að sjúklingar með fjarmeinvörp hafi ekki bættar horfur sé nýrað fjarlægt. Sjúklingar með alvarlega blóðmigu og/eða kviðverki, sem ekki svara annarri meðferð, geta þurft slíka aðgerð. Blóðmigu er þó oftast hægt að hemja með því að stífla blóðflæði í nýrnaslagæð (embolisation). I þessu sambandi er mikilvægt að hafa í huga að fylgikvillar eru algengari hjá þessum hópi sjúklinga samanborið við þá sem eru með staðbundinn sjúkdóm (81). Tilhneigingu í þessa átt mátti sjá í íslenskri rann- sókn, en 20% nýrnabrottnámsaðgerða á íslandi á tímabilinu 1971-2000 voru framkvæmdar í líkn- andi tilgangi (15). Líknandi aðgerð er því auðveld- ara að réttlæta hjá yngri sjúklingum og þeim sem ekki þjást af hjarta- og æðasjúkdómum eða öðrum sjúkdómum sem auka áhættu við aðgerð (89). Á síðustu árum hafa komið fram rannsóknir sem gefa til kynna að sjúklingar með meinvörp svari betur lyfjameðferð (til dæmis a-interferoni) eftir nýrnabrottnám heldur en þegar lyfjameðferð er veitt eingöngu (90, 91). Aðgerðin felst þá í því að minnka æxlisvef (cytoreductive) fyrir lyfjameð- ferðina. Þessi meðferð er ekki hættulaus og sumir sjúklingar þola hana illa. Því er mikilvægt að vanda vel val á sjúklingum (89). Skurðaðgerðir á meinvörpum nýrnafrum- krabbameins koma til greina í völdum tilvikum (86 89). Þetta á sérstaklega við um yngri sjúklinga með stök meinvörp þar sem langur tími hefur liðið frá nýrnabrottnámi þar til meinvarpið greinist (86 89). Nýlegar rannsóknir virðast benda til þess að slíkar aðgerðir, sérstaklega á stökum meinvörpum í lunga en jafnvel einnig í heila og lifur, geti bætt lífshorfur sjúklinga. Hefur verið lýst allt að 30% fimm ára lífshorfum í fjölda rannsókna (86 89) sem er umtalsvert betri árangur en fyrir aðra sjúklinga á stigi IV þar sem tveggja ára lífshorfur eru undir 20% (91). Rétt er þó að hafa í huga að um mjög 292 Læknablaðið 2007/93
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.