Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.04.2007, Síða 45

Læknablaðið - 15.04.2007, Síða 45
ÞING SKURÐLÆKNA, SVÆFINGA- OG GJÖRGÆSLULÆKNA / ÁVARP Verið velkomin á sameiginlegt vísindaþing Skurðlæknafélags íslands og Svæfínga- og gjörgæslulæknafélags íslands Þaö er okkur sérstök ánægja að kynna 9. sameiginlega ársþing Skurðlæknafélags íslands og Svæfinga- og gjörgæslulæknafélags Islands. Þingið verður haldið í nýuppgerðum salarkynnum Hótel Sögu og hátíðarsal Háskóla íslands. Mikil vinna hefur verið lögð í undirbúning þess. Auk stjórna félaganna hefur ráðstefnufyr- irtækið Congress Reykjavík haft með höndum skipulag þingsins. Samstarfið við Congress Reykjavík hefur verið sérlega ánægju- legt og vonandi hefur okkur tekist að þróa þingið áfram til hins betra. Nýbreytni í ár er að við báðum þátttakendur að skrá sig fyrirfram eða við upphaf þingsins. Skráningargjaldi er stillt í hóf (1000 kr) og læknanemar, unglæknar og hjúkrunarfræðingar greiða ekki þátttökugjald. í ár koma háls-, nef- og eyrnalæknar auk bráðalækna að skipulagningu þingsins sem vonandi á eftir að auka aðsókn. Einnig vonumst við til að sjá sem flesta kven- sjúkdómalækna á þinginu, enda handlækningar stór hluti af starfi margra þeirra. Þingið í ár er óvenjustórt í sniðum, enda á Skurðlæknafélagið 50 ára afmæli á þessu ári. Af því tilefni verður hátíðardagskrá í hátíðarsal HI eftir hádegi á laugardeginum. Þar verða stutt ávörp og mun sérstakur gestur þingsins, prófessor Bill Heald, sem er heimsþekktur fyrir skurðaðgerðir á ristli- og endaþarmi, halda heiðursfyrirlestur. Boðið verður upp á mál- þing um ýmis efni innan skurð-, svæfinga- og gjörgæslulækninga. Þar má nefna nýjar áherslur í vökvameðferð kringum aðgerðir, notkun sogsvamps við skurðsýkingar, meðferð vélindarofs, mál- þing um greiningu og meðferð andlitsáverka og hvort víkka eigi út gjörgæslumeðferð á legudeildir. Til landsins hefur verið boðið 9 erlendum fyrirlesurum sem munu leiða málþingin sem haldin verða á ensku. En á þinginu verður ekki einungis boðið upp á hreina læknisfræði.Til dæmis mun Haraldur Örn Ólafsson, Everest- og pólfari, flytja fyrirlestur um síðasta áfangann á Everestfjall. Haraldur er áhugamaður um háfjallalæknisfræði og mun segja frá baráttu sinni við kulda og háfjallaveiki við þessar gríðarlega erfiðu aðstæður. Enginn ætti að missa af þessu erindi Haraldar en auk hæsta fjalls veraldar hefur hann lagt að velli alla Stjórn Skurðlœknafélags íslands Tómas Guðbjartsson, formaður Helgi H. Sigurðsson, varaformaður Þorvaldur Jónsson, ritari Fritz Berndsen, gjaldkeri Hulda Brá Magnadóttir, meðstjórnandi sjö hæstu tinda hverrar heimsálfu að ógleymdum bæði suður- og norðurpól! Einn mikilvægasti hluti þingsins er kynning á vísindavinnu. í ár bárust hátt í 80 erindi sem er umtalsvert meira en á fyrri þingum. Ánægjulegt er að sjá hversu mörg erindi bárust frá læknanemum og unglæknum í sérnámi. Flest ágripanna verða kynnt með stuttum erindum en tæpur þriðjungur sem vegg- spjöld. Veggspjaldakynning er því fyrirferðarmeiri en á fyrri þingum. Gengið verður milli veggspjaldanna á föstudag, höfund- ar kynna þau stuttlega og standa síðan fyrir svörum. Með þessu móti vonumst við til að hleypa auknu lífi í umræðurnar og auka fjölbreytni á þinginu. Önnur nýbreytni er að þrjú bestu erindi ungra vísindamanna munu keppa til verðlauna. Sérstök vísindanefnd félaganna fékk það verkefni að velja þrjú erindi af þeim sem send voru á þingið. Öll ágrip ungra vísindamanna á þinginu koma til greina þegar verðlaunað verður best flutta erindið og/eða kynning vegg- spjalds. Þinginu lýkur með fordrykk og þríréttuðum hátíðarkvöld- verði í Súlnasal Hótel Sögu. Þar verða skemmtiatriði og lifandi tónlist og nýir heiðursfélagar sæmdir heiðursviðurkenningu. Að loknum kvöldverði munu Bogomil Font og hljómsveitin Flís halda uppi stuði á dansgólfinu í suðrænum anda kalypsó-tónlist- ar. Á dansleikinn (kl. 22.30) hafa félögin boðið unglæknum og læknanemum á 4., 5. og 6. ári. Hugmyndin er sú að tengja saman (utan skurðstofu og gjörgæslu) eldri, yngri og verðandi kollega. Fyrir hönd Svæfinga- og gjörgæslulæknafélags íslands og Skurðlæknafélags Islands viljum við sérstaklega þakka öllum þeim fjölmörgu fyrirtækjum sem styrkt hafa þingið. Gunnhildur Jóhannsdóttir deildarstjóri fær þakkir fyrir frábær störf við skipulagningu vísindahluta þingsins, einnig Læknafélag íslands og starfsfólk Læknablaðsins fyrir ómetanlega aðstoð við und- irbúning þingsins. Stjórn svcefinga- og gjörgœslulœknafélags fslands Sigurbergur Kárason, formaöur Felix Valsson, varaformaður Hildur Tómasdóttir, ritari Kári Hreinsson, gjaldkeri Guðmundur Klemenzson. meðstjórnandi GlaxoSmithKline Markmið lyfjafyrirtækisins GlaxoSmithKline er að gera fólki kleift að aorka meiru, liða betur og lifa lengur. The Clinical Advantage icepharma GRÓCO ehf. Læknablaðið 2007/93 309
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.