Læknablaðið - 15.04.2007, Blaðsíða 101
UMRÆÐA & FRÉTTIR / ÍÐORÐ 197
Vefjaflæði
BjarniÞórEyvindsson,deildarlækniráLandspítala,
sendi beiðni um umfjöllun á enska heitinu tissue
perfusion. Hefðbundið tekur heitið til flæðis blóðs
inn í lifandi vefi og um æðabeð þeirra. Á síðari
tímum hefur verið lögð áhersla á að hugtakið
nái til flæðis vökva, súrefnis og næringarefna.
Ófullnægjandi flæði leiðir svo til ástands eða
heilkennis sem nefnt hefur verið lost (shock).
Gegnflæði
íðorðasafn lækna þýðir heitið perfusion sem
gegnflæði. Orðrétt þýðing á tissue perfusion er
þá vefjagegnflæði. I réttu samhengi ætti að vera
alveg fullnægjandi að tala um vefjaflæði. Það
yfirheiti getum við látið ná til flæðis blóðs, vökva,
súrefnis og næringarefna um vefi, en aðgreint með
undirheitum þegar þörf er á. Vefjaflæði má í sumum
tilvikum mæla með sérstakri segulómskoðun og
mælist þá í millilítrum á mínútu á gramm vefjar.
Nákvæmni
Þegar krafist er fullrar nákvæmni til að aðskilja
mismunandi þætti í flæðinu, þ.e. blóð, vökva,
súrefni og næringarefni virðist örlítill vandi á
höndum. Fara má þá leið að hafa tiltæk, þegar við
á, heitin vefjablóðflæði (vefjaflæði blóðs, vefja-
gegnflæði blóðs), vefjasúrefnisflæði (vefjaflæði
súrefnis, vefja gegnflæði súrefnis) og vefjanæring-
arefnaflæði (vefjaflæði næringarefna, vefjagegn-
flæði næringarefna). Þessi heiti eru gegnsæ, birta
nákvæmlega það sem þarf, en orðin nokkuð löng.
PET scanning
Pétur H. Hannesson, yfirlæknir á röntgendeild
Landspítala, sendi tölvupóst og spurði hvort til
væri íslenskt heiti á tækni sem nefnist á enskunni
positron emission tomography, (sk.st. PET).
Tæknin byggir á því að skammlíft geislavirkt efni,
sem komið hefur verið (sprautað) inn í líkamann,
gefur frá sér jáeindir (e+), sem aftur gefa frá sér
gamma-geisla þegar þær mæta rafeindum (e ) á
því líkamssvæði sem til rannsóknar er. Gamma-
geislana má nema með sérstökum skynjurum utan
líkamans og byggja upp mynd af geislasvæðinu.
Pétur sagði frá því að greiningartækið væri
nú oftast samsett og réði einnig yfir tækni til
tölvusneiðmyndatöku, computerized tomography
(CT).
Orðskýringar
Heitið tomography, áður sectional radiography, er
komið úr grísku, þar sem tome merkir skurður, að
skera, en graphy ritun eða skráning. Hið íslenska
heiti tölvusneiðmyndataka, á ensku computerized
axial tomography (CAT-scan) eða computerized
tomography (CT-scan), hefur nú áunnið sér fulla
hefð í læknamálinu. Emission merkir útgeislun
eða útsending og positron er jáeind, rafeind hlaðin
einnijákvœðri raforkueind, samkvæmt íðorðasafni
lækna.
Jáeindaskönnun
Sögnin að skanna og nafnorðið skönnun eru
viðurkennd sem íslensk orð í íslenskri orðabók
Eddu frá 2002. íslenska hefðin er sú að reyna að
finna stutt og lýsandi heiti. I samræmi við það er
rétt að velja heitiö jáeindaskönnun fyrir aðferð-
ina og jáeindaskanni fyrir tækið. Bein þýðing og
full nákvæmni í samræmi við enska heitið mundi
krefjast þess að aðferðin nefndist jáeindaútgeisl-
unarsneiðmyndataka, en þá er komið langt út fyrir
þolmörk hins daglega máls. Hugsanlega er þörf á
því að eiga einnig tiltækt samsetta heitið jáeinda-
og tölvusneiðmyndataka (PET-CT).
Compartment syndrome
Kristinn Tómasson, yfirlæknir Vinnueftirlitsins,
leitaði eftir íslensku heiti á fyrirbærinu comp-
artment syndrome. Heitið nær til ástands þar sem
aukinn þrýstingur í aflokuðu vefjarými leiðir til
minnkunar á blóðflæði í rýminu, blóðþurrðar í
vefjum viðkomandi rýmis, starfsemistruflunar og
loks vefjadreps, ef ekki er úr bætt. f umræðum
okkar kom upp vel nothæft heiti, heilkenni stoð-
kerfíshólfa. Leit í safni sjúkdómaflokkunarkerfis-
ins ICD-10 leiddi í ljós annað heiti, rýmisheilkenni.
Gaman væri að heyra um hugmyndir annarra.
Mobilization
Þorkell Jóhannesson, professor emeritus, sendi
stutt bréf og stakk upp á því að nota orðið útlausn
sem oftast í þeim notkunardæmum sem rakin
voru í 167. og 194. pistli. Orðið sagði hann merkja
kveðjur eða brottför og gæti það þannig falið í sér
hreyfingu líkt og erlenda orðið. Til upprifjunar
má endurtaka notkunardæmin með þessari lausn
Þorkels: 1. útlausn frumna úr beinmerg, 2. útlausn
efna úr forðabúri í vefjum eða frumum í líffœri,
3. útlausn varnarviðbragða, 4. útlausn liðsauka á
stofnun til vinnu eða í útkall, 5. útlausn líffœris úr
samvöxtum eða náttúrulegri festingu við skurð-
aðgerð og 6. útlausn liða og liðamóta.
L.
Jóhann Heiðar
Jóhannsson
johannhj@landspitali. is
Jóhann Heiðar er læknir
á Landspítala Hringbraut.
Læknablaðið 2007/93 365