Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.04.2007, Page 51

Læknablaðið - 15.04.2007, Page 51
ÞING SKURÐLÆKNA, SVÆFINGA- OG GJÖRGÆSLULÆKNA / ÁGRIP ERINDA 682 í Skotlandi, 162 í Finnlandi og 92 á íslandi. Fimm ára hlutfallslegar lífslíkur (relative survival rate) sjúklinga með endaþarmskrabbamein voru betri í Noregi (konur 0,57, karlar 0,63), Skotlandi (konur 0,58, karlar 0,60) og Svíþjóð (konur 0,63, karlar 0,55) borið saman við Danmörk (konur 0,54, karlar 0,46), Finnland (konur 0,47, karlar 0,45) og ísland (konur 0,36, karlar 0,40). í Cox fjölþáttagreiningu, þar sem tekið var tillit til ald- urs, kyns, sjúkdómsstigunar, fulllæknunar (curatively operated) og viðbótarmeðferðar, höfðu íslensku sjúklingarnir marktækt verri horfur til 5 ára (FIR 1,7; 95% CI 1,3-2,2), borið saman við Svíþjóð (HR 1,0) og Skotland (HR 0,8; 95% CI 0,8-0,9). Alyktun: Betri lifun sjúklinga með endaþarmskrabbamein í Noregi, Skotlandi og Svíþjóð skýrist líklega af því að sérhæfð skurðtækni (total mesorectal excision) og geislun hefur náð meiri útbreiðslu en í Danmörku, Finnlandi og íslandi. Niðurstöður þessarar rannsóknar benda til að lífslíkur sjúklinga með endaþarmskrabbamein séu síðri á íslandi en í Svíþjóð og Skotland. Islendingar þurfa að fara vandlega í saumana á með- ferð sjúklinga með endaþarmskrabbamein til þess að sjá hvort möguleikar séu á að bæta meðferð og lífslíkur. E-13 Ólæknandi krabbamein í endaþarmi Helgi Kjartan Sigurðsson, Hartvig Körner, Olav Dahl, Jon Arne Söreide helgi.kjartan.sigurdsson@broadpark.no Norsk Rectumregister Inngangur: Það getur reynst erfitt að ákvarða hvort líknandi skurðaðgerð sé til bóta hjá sjúklingum með ólæknanlegt krabba- mein í meltingarfærum. Hér er litið á Iifun sjúklinga sem geng- ust undir líknandi skurðaðgerð í Noregi vegna ólæknandi krabbameins í endaþarmi frá árinu 1997 til 2001. Á þessum árum greindust 4831 sjúklingar með krabbamein í endaþarmi. 1240 (26 %) af þessum fengu líknandi meðferð. Niðurstöður: Sjúklingar lifðu lengur ef æxli í endaþarmi var fjarlægt samanborið við sjúklinga þar sem eingöngu var lögð út stómía, eða 12.8 mánuðir (bil 11.4-14.2) samanborið við 5.3 mánuði (bil 4.4-6.1). Meðal lifun sjúklinga sem ekki gengust undir skurðaðgerð var 4.5 mánuðir (bil, 3.5-5.4). Verulegur munur var á lifun milli aldurshópa hjá sjúklingum sem gengust undir skurðaðgerð (<60 ára, 14.4 mánuðir (bil 11.6-17.1); 60 til 69 ára, 11.1 (bil 8.3-14); 70 til 79 ára, 6.9 (bil 5.3-S.4); >80 ára, 6.5 (bil 4.2-8.7)); (p < 0,001). Lifun sjúklinga eldri en 80 ára var óháð meðferðarvali. 30 daga dánartíðni hækkaði samhliða hærri aldri, eða frá 2,3 % í 15,6 %. Ályktun: Það að fjarlægja upprunalegt æxli við ólæknandi krabbamein í endaþarmi tengist lengri lifun, en ávinningur aðgerðar dvínar með aldri og er lítill fyrir elstu aldurshópana þar sem 30 daga dánartíðni er há. E-14 Brottnám legs. - Breytingar á algengi, ástæðum og aðferðum á íslandi síðastliðin 18 ár Hrefna Katrín Guðmundsdóttir', Jens A. Guðmundsson1-2, Auður Smith2 jens@landspitali. is ‘Læknadeild HÍ,2kvennadeild Landspítala Inngangur: Legnámsaðgerðir eru meðal algengustu aðgerða sem konur gangast undir. Markmið rannsóknarinnar var að finna tíðni legnáms hjá íslenskum konum og bera saman við tíðni í öðrum löndum. Einnig að kanna þær breytingar sem orðið hafa hérlendis síðastliðin 18 ár á þáttum eins og aldri kvenna sem gangast undir legnámsaðgerðir, legutíma vegna aðgerðanna, sjúkdómsgreininga sem leiða til legnáms og tíðni mismunandi aðferða við legnám. Efniviður og aðferðir: Skoðaðar voru upplýsingar um allar konur sem gengust undir legnám á íslandi árin 1986,1989,1994, 1999 og 2004. Upplýsinga var leitað um tegund aðgerðar, aldur kvennanna, legutíma og sjúkdómsgreiningar sem leiddu til leg- náms. Niðurstöður: Aldurstöðluð tíðni legnámsaðgerða hérlendis var 230 legnám fyrir hverjar 100.000 konur árið 1986, 220 fyrir hverjar 100.000 konur árið 1989,290 árið 1994,390 árið 1999 og 350 legnám fyrir hverjar 100.000 konur árið 2004. Þessar tölur sýna að fleiri legnámsaðgerðir eru gerðar hérlendis en í Noregi, Svíþjóð og Danmörku en aftur á móti færri en í Finnlandi og í Bandaríkunum. Líkur á því að íslensk kona gangist undir legnám einhvern tíma á lífsleiðinni eru 25,5%. Á rannsókn- artímabilinu hækkaði aldursmiðgildi þeirra kvenna sem gengust undir legnámsaðgerðir úr 45 árum árið 1986 í 47,5 ár árið 2000. Legudögum vegna aðgerða fækkaði á tímabilinu og á það við um allar tegundir legnámsaðgerða. Legudögum eftir legnám um leggöng fækkaði mest. Allt rannsóknartímabilið hafa legnáms- aðgerðir með kviðskurði verið algengasta aðferð við legnám hér- lendis en frá 1994 hefur brottnámsaðgerðum um leggöng og með kviðsjártækni fjölgað. Sléttvöðvaæxli voru algengasta ábending fyrir legnámi öll árin og þegar orsakir aðgerða í mismunandi ald- urshópum voru skoðaðar sást að þau eru lang algengasta ástæða legnáms í stærstu aldurshópunum (36 til 65 ára). Ályktunir: Legnámsaðgerðir eru algengar aðgerðir á íslandi og hefur tíðni þeirra aukist svipað og í nálægum löndum. Aðgerðatækni hefur þróast frá opnum aðgerðum til þess að oftar sé beitt kviðsjártækni og brottnámi legs um leggöng. E-15 Æxli í skeifugörn Jóhann Páll Ingimarsson', Jón Gunnlaugur Jónasson2, Jónas Magnússon', Páll Helgi Möller1 kirurgia@gmail. com 'Skurðlækningadeild og 2rannsóknarstofa í meinafræði, Landspítala Inngangur: Æxli í skeifugörn eru sjaldgæf og hafa yfirleitt slæmar horfur. Umdeilt er hvaða meðferð sé ákjósanlegust við slík æxli, bæði þegar kemur að aðgerðavali og lyfjameðferð. Tilgangur rannsóknar okkar var að athuga faraldsfræði skeifu- garnaæxla, greiningaraðferðir, meðferðir og lifun á fslandi yfir 50 ára tímabil eða frá 1955 til 2005. Efniviöur og aðferðir: Upplýsingar voru fengnar úr Krabbameinsskrá KÍ um alla einstaklinga sem greinst hafa með æxli í skeifugörn á tímabilinu 1955 til 2005 og þær bornar saman við greiningaskrá rannsóknarstofu HÍ í meinafræði. Gögn voru fengin úr sjúkraskrám einstaklinganna. Öll sýni voru endurskoð- uð af sama meinafræðingi. Læknablaðið 2007/93 315
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.