Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.04.2007, Page 56

Læknablaðið - 15.04.2007, Page 56
ÞING SKURÐLÆKNA, SVÆFINGA- OG GJÖRGÆSLULÆKNA / ÁGRIP ERINDA lungum, einnig hvort um stök lungnameinvörp var að ræða. Loks var kannað hversu margir þessara sjúklinga hefðu farið í brott- nám á lungnameinvarpi frá 1984-2000. Æxlin voru stiguð skv. TNM-stigunarkerfi. Reiknaðar voru lífshorfur sjúklinga með lungnameinvörp og þær bornar saman við aðra sjúklinga með meinvörp nýrnafrumukrabbameins. Niðurstöður: Alls greindust 130 sjúklingar með lungnameinvörp, sem er 18,5% nýrnafrumukrabbameinssjúklinga sem greindust 1971-2000. Af þeim reyndust 73 með meinvörp annars staðar, oftast í lifur, beinum og heila. Einnig reyndust 44 sjúklingar hafa eitilmeinvörp. Hjá 56 sjúklingum voru meinvörp eingöngu bund- in við lungu og greindust 8 þeirra (14%) fyrir tilviljun. Stærð upprunalega nýrnaæxlisins var að meðtaltali 93 mm (bil 30-189). Hægt var að stiga 38 af þessum 56 sjúklingum og reyndust 6 sjúk- lingar á stigi Tl, 5 á T2,6 á T3a og 15 á T3b. Á stigi T4 voru alls 6 sjúklingar. Nákvæmar upplýsingar um lungnameinvörp fengust hjá 36 sjúklingum. Af þeim greindust 28 (78%) með fleiri en eitt meinvarp og 17 (47%) með meinvörp í báðum lungum. Af 8 sjúklingum með stakt lungnameinvarp voru 6 karlar og 2 konur og meðalaldur við greiningu var 63 ár. Á tímabilinu 1984-2000 greindust 39 sjúklingar með lungnameinvarp innan þriggja mán- aðar frá greiningu nýrnafrumukrabbameins í nýra. Aðeins einn gekkst undir brottnám meinvarpsins. Ályktun: Lungnameinvörp greinast hjá tæplega fimmtungi sjúk- linga með nýrnafrumukrabbamein. Stór hluti þessara meinvarpa (44%) er eingöngu bundinn við lungu og 22% þeirra eru stök. Ef hafðar eru til hliðsjónar niðurstöður nýlegra erlendra rannsókna er ljóst að brottnám lungnameinvarpa getur komið til greina hjá ákveðnum hluta síðastnefndu sjúklinganna. Tiltölulega fáir þeirra hafa farið í slíka aðgerð hér á landi. í þessu samhengi er þó rétt að hafa í huga að þessi rannsókn nær 35 ár aftur í tímann og að gagnsemi þessara aðgerða er tiltölulega nýlega komin í ljós. E-24 Hjartaskurðlækningar á íslandi í 20 ár Þórarinn Arnórsson, Bjarni Torfason, Grétar Ólafsson, Höröur Alfreösson, Kristinn B. Jóhannsson,Tómas Guðbjartsson thorarn@landspitali. is Hjarta- og lungnaskurðdeild Landspítala Inngangur: Frá því fyrsta opna hjartaaðgerðin var framkvæmd á íslandi þann 14. júní 1986 hafa verið gerðar yfir 4000 aðgerðir hér á landi. Þær hafa allar verið gerðar á Landspítala af sama hópi skurðlækna. Þetta er því 20 ára yfirlit allra opinna hjarta- skurðlækninga á íslandi. Efniviður og aðferðir: Um er að ræða afturvirka skoðun á öllum opnum hjartaskurðaðgerðum á íslandi frá 14. júni 1986 og fram til 14. júní 2006. Upplýsingum var safnað úr sjúkraskrám og miðlægum upplýsingabanka. Árangur: Heildarfjöldi aðgerða á þessu tímabili var 3938. Fyrstu 6 mánuðina voru gerðar 32 aðgerðir á ári, en fjöldinn fór vaxandi þar til 1994 að aðgerðirnar urðu 270. Síðan hefur aðgerðafjöld- inn verið nokkuð jafn í kringum 220 á ári (76 tilfelli fyrir 100.000 íbúa á ári). Kransæðahjáveituaðgerðir (CABG) voru algeng- astar, eða 2997, en af þeim voru 181 gerðar á sláandi hjarta án hjarta- og lungnavélar (OPCAB). Hlutfall OPCAB og aðgerða á vél var 31% 2004, 21% 2005 og 26% á fyrri helmingi ársins 2006. Meðalaldur kransæðasjúklinganna jókst úr 59 árum 1986 í 67 ár 2006. LIMA græðlingar voru notaðir í 94% aðgerðanna og meðalfjöldi tenginga á hjartað var 3,6. Skurðdauði við krans- æðaaðgerðir var 2,3%. Algengustu lokuaðgerðir voru ósæð- arlokuskipti (n=564), og var notast við 313 (55%) lífrænar lokur og 255 gervilokur. í 259 tilvikum (46%) var gerð samhliða ósæð- arlokuskiptum kransæðahjáveituaðgerð og míturlokukaðgerð hjá 29 sjúkl. (5%). Frá 2002 voru 88% af lífrænu ósæðarlokunum svínalokur án grindar sem oftast var komið fyrir í ósæðarrótinni undir kransæðunum (subcoronar position). Skurðdauði fyrir ósæðarlokuaðgerðir var 6,6% (4,4% beint tengt aðgerð og 2,1% af öðrum orsökum). í míturlokuaðgerðum voru gerð 45 mít- urlokuskipti og 53 lokuviðgerðir með 9,7% skurðdauða (3,9% fyrir valaðgerðir og í 6 tilfellum (5,8%) sem lið í endurlífgun). Alls voru skornir 79 ósæðargúlar, þar af voru 65 aðgerðir á ris- meginæð og var notast við 23 gerviæðar (composite graft) og í 16 tilvikum gerð ósæðarrótarskipti með lífrænni æð og loku. Sjö gúlar voru fjarlægðir á ósæðarboga og 7 á fallmeginæð. Tvær Ross aðgerðir voru gerðar. Frá 1997 hafa verið gerðar alls 128 hjartaaðgerðir á börnum vegna meðfæddra hjartagalla, þar af 57 aðgerðir vegna ASD, 40 vegna meðfæddra ósæðarþrengsla (coarctatio) og allnokkrar vegna heilkennis Fallots. Öll börnin lifðu aðgerðina, en rétt er að taka fram að flóknustu tilvikin voru send erlendis til aðgerða. Niðurstaða: Opnar hjartaaðgerðir hafa verið gerðar á íslandi í 20 ár með árangri sem er sambærilegur við stærri hjartaskurð- deildir erlendis. Þetta á einnig við um aðgerðir vegna meðfæddra galla á börnum. Tíðni hjartaaðgerða á íslandi er sambærileg við hin Norðurlöndin. Hins vegar er notkun grindarlausra lífrænna ósæðarloka og kransæðahjáveituaðgerðir á sláandi hjarta mun algengari hér á landi. E-25 Brottnám á vinstri hliðstæðu blaði lifrar með kviðsjá í grísalíkani. - Rannsókn á virkni og öryggi mismunandi aðferða Kristinn Eiríksson', Diddi Fors2, Stein Rubertsson2, Dag Arvidsson1 mceiriks@gmail. com 'Department of Surgery, Stavanger University Hospital, Stavangri, Noregi, 2Department of Anesthesiology, Uppsala University Hospital, 3Department of Surgical Sciences, Uppsala University, Uppsölum, Svíþjóð Inngangur: Lifraraðgerðir með hjálp kviðsjár eru í hraðri framþróun. Margar mismunandi aðferðir eru notaðar við deil- ingu lifrar. Ekki hefur verið sýnt fram á hvaða aðferð er best. Markmiðið með þessari rannsókn er að skoða mismunandi tækni við deilingu lifrar með kviðsjáraðgerð, þá sérstaklega með tilliti til virkni, hættu á blæðingu og myndun loftreks. Efniviður og aðferðir: Sextán grísir voru slembiraðaðir í tvo hópa. Annar hópurinn gekkst undir aðgerð með ómskærum (ultrasicion shears) og ómhníf (ultrasonic dissector) (Hópur UC) og hinn hópurinn (hópur VS) með æðadeili (vessel sealing system) og ómhníf (ultrasonic dissector). Brottnám var gert á vinstra hliðstæða blaði lifrar. Ómun var gerð á hjarta með til að 320 Læknablaðið 2007/93
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.