Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.04.2007, Page 60

Læknablaðið - 15.04.2007, Page 60
ÞIN G SKURÐLÆKNA, SVÆFINGA- OG GJÖRGÆSLULÆKNA / ÁGRIP ERINDA E-33 Úlnliðsbrot Reykvíkinga árið 2004 Kristbjörg Sigurðardóttir, Jóhann Róbertsson kristbjorg@yst. is Bæklunarskurðdeild Landspítala Fossvogi Inngangur: Úlnliðsbrot eru með algengari brotum og þau leiða stundum til langvarandi einkenna og færniskerðingar. Brotin eru af ýmsum gerðum og krefjast því mismunandi meðferða. Valkostir í meðferð eru stöðugt að breytast og því er nauðsyn- legt að reyna að átta sig á árangri þeirra hvers fyrir sig. Sem liður þar í þarf að afla grunnfaraldsfræðilegra gagna. Til er um 20 ára gömul íslensk rannsókn sem fór yfir faraldsfræði úlnliðsbrota hjá fullorðnum á einu ári. Tilgangur okkar rannsóknar var að kanna faraldsfræði úlnliðsbrota á íslandi nú og bera saman við fyrri rannsókn sem og við erlendar rannsóknir. Efniviður og aðferðir: Fjöldi þátttakenda var takmarkaður við þá Reykvíkinga sem leituðu á slysadeild Landspítala og fengu greininguna úlnliðsbrot á árinu 2004. Gerð var kerfisbundin leit í sjúkraskrárkerfi eftir greiningarnúmerum og síðan voru upplýs- ingar fengnar úr sjúkraskrám og röntgenkerfi. Skráð var aldur, kyn, tímasetning óhapps, eðli áverka, athöfn við áverka, félags- staða, tegund brota og meðferð þeirra. Niðurstöður: Skráð voru 496 brot hjá 495 einstaklingum á árinu 2004, þ.e. hjá 0,4% af áhættuþýðinu. Þar af voru 235 börn undir 16 ára (47%) og 98 ellilífeyrisþegar eldri en 66 ára (20%). Af fullorðnum (16 ára og eldri) voru konur 66% (meðalaldur 62 ár) og karlmenn 34% (meðalaldur 47 ár) en hæsta tíðnin var hjá 11-15 ára börnum (26%).Tíðni brota fullorðinna jókst með aldrinum og voru þau oftast tengd frítímaiðkun (50%) eða íþróttum (16%) en sjaldnar vinnutengd (12%). Langflest börnin hlutu áverka við fall í leik eða íþróttum (74%). Flest barnabrotin voru lítið tilfærð og fengu aðeins gipsmeðferð (84%) en lokaðri réttingu og gipsun var beitt í 14% tilfella. Tíðni brota hjá börn- unum var lítið háð árstíma en náði hámarki hjá þeim fullorðnu yfir vetrarmánuðina vegna hálkuóhappa. Langflest brota full- orðinna voru Colles’ brot (77%) og 67% þeirra höfðu ekki sprungur upp í liðflöt úlnliðarins. Algengasta meðferðin var lokuð rétting og gipsun (40%) en 5% fengu skurðmeðferð í upphafi og 7% þurftu aðgerð síðar. Um 23% fullorðinna fóru í sjúkraþjálfun og 16% voru lengur en 8 vikur í meðferð. Ályktun: Tíðni og faraldsfræði úlnliðsbrota á íslandi er svipuð og fyrir 20 árum og einnig svipuð niðurstöðum frá nágranna- löndum okkar. Skoða þarf frekar ákveðna sjúklingahópa með tilliti til viðvarandi einkenna og færniskerðingar til að hægt sé að meta árangur mismunandi meðferðarkosta. Fyrirhugað er að gera aðra rannsókn í framhaldinu þar sem farið verður nánar út í þessi atriði. E-34 Eru karlar veikara kynið þegar kemur að verkjum? - Samanburður á verkjastillingu karla og kvenna á svipuðum aldri eftir brjóstholsaðgerðir Gísli Vigfússon, Steinunn Hauksdóttir, Gísli H. Sigurðsson gislivig@landspitali. is Svæfinga- og gjörgæsludeild Landspítala Hringbraut Inngangur: Rannsóknir sýna að kynjamunur getur haft áhrif á verkun lyfja eftir aðgerðir1'. Ástæður eru margþættar, svo sem hormónaáhrif, mismunandi næmni ópíat viðtækja og verkunarmáti lyfj anna, erf ða- og sálrænir þættir. Gerðar haf a verið kannanir á verkun ópíatlyfja á karla og konur við sambærilegar aðgerðir og kringumstæður. Fáar klínískar rannsóknir hafa borið saman kynjamun og utanbastverkjameðferð. í ljósi þessa voru gögn svæfingadeildar Landspítala skoðuð með tilliti til kynjamunar á sama aldursskeiði og utanbastverkjameðferðar eftir brjóstholsaðgerðir. Efniviður og aðferð: Úr skráðum gögnum áranna 1996-2006 var kannaður árangur utanbastverkjameðferðar hjá 149 körlum (meðalaldur 60,5 ár) og 159 konum (meðalaldur 60,0 ár) á aldr- inum 51-70 ára. Árangur var metinn á fyrsta og öðrum degi eftir aðgerð og notast við VAS kvarða. VAS <3 var metinn ásættan- legur árangur. Dreypihraði í ml/klst og notkun verkjalyfja var borinn saman milli hópa. Niðurstööur Verkjastilling í hvíld/við hreyfingu Karlar Konur Fyrsti dagur. VAS<3 í hvíld. 93% 92% Fyrsti dagur. VAS<3 við hreyfingu 63% 68% Annar dagur. VAS<3 í hvíld. 95% 93% Annar dagur. VAS<3 við hreyfingu 80% 85% Dreypihraði á öörum degi 8,1 ml/klst 7,03 ml/klst Notkun ópíatverkjalyfja 48% 31% Notkun salýlyfja 48% 44% Ályktun: Verkjastilling var betri við hreyfingu, dreypihraði lægri og notkun sterkra verkjalyfja var minni hjá konum en körlum. Konur teljast því sterkari aðilinn þegar kemur að verkjastillingu og notkun viðbótarlyfja. nSex dijferences in opioid analgesia: clinical and experimental findings. Eur J Pain 2004;8:413-25. E-35 Aldur sjúklinga hefur áhrif á árangur utanbast- verkjameðferðar. - Samanburður á þremur aldurshópum karla eftir brjóstholsaðgerðir á 11 ára tímabili Gísli Vigfússon, Steinunn Hauksdóttir, Gísli H. Sigurðsson gislivig@landspitali.is Svæfinga- og gjörgæsludeild Landspítala Hringbraut Inngangur: Rannsóknir sýna að ýmsir þættir, eins og aldur og kyn, geta liaft áhrif á verkun lyfja í og utan utanbasts1*. Um er að ræða fáar rannsóknir með litlu úrtaki sjúklinga. Fáar stærri klínískar rannsóknir liggja fyrir sem staðfesta áhrif aldurs á verkun utanbastverkjameðferðar. í ljósi þessa voru gögn svæfingadeildar Landspítala skoðuð með tilliti til aldurs og utanbastverkjameðferð eftir brjóstholsaðgerðir. Efniviður og aðferð: Úr skráðum gögnum áranna 1996-2006 var kannaður árangur utanbastverkjameðferðar hjá 369 körlum, sem skipt var í þrjá aldurshópa: 50 ára og yngri (108 sjúklingar, meðalaldur 32,8 ár), 51-70 ára (156 sjúklingar, meðalaldur 61 ár) og 70 ára og eldri (105 sjúklingar, meðalaldur 75,2 ár). Árangur var metinn á fyrsta og öðrum degi eftir aðgerð og notast við VAS 324 Læknablaðið 2007/93
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.