Læknablaðið - 15.04.2007, Blaðsíða 70
ÞIN G SKURÐLÆKNA, SVÆFINGA- OG GJÖRGÆSLULÆKNA / ÁGRIP ERINDA
Áberandi sýkingamerki voru ekki til staðar. Gerð var aðgerð
þar sem rectus abdominis-flipi var lagður yfir græðlinginn og
sárinu lokað.Tveimur mánuðum síðar er hann einkennalaus og
lætur vel af sér.
Ályktun: Ósæðarskeifugarnarfistill er alvarlegur fylgikvilli
aðgerða vegna rofs á ósæðagúli. Eins og þetta tilfelli sýnir er
meðferð flókin og mörg meðferðarúrræði í boði. í okkar tilfelli
tókst að stöðva bráða blæðingu með innæðargræðlingi en frekari
skurðaðgerð þurfti til að eiga við sýkingu og rof á skeifugörn
sem fylgdi í kjölfarið.
V-12 Aðskilinn lungnahluti (pulmonary sequestration) getur
tengst efri hluta meltingarvegar. - Tvö einstök sjúkratilfelli
Sœmundur Jón Oddsson'A, Þráinn Rósmundsson2-4, Vigdís Pétursdóttir’4,
Friörik E. Yngvason5, Bjarni Torfason14,Tómas Guðbjartsson'4
saemiodds@hotmail. com
‘Hjarta- og lungnaskurðdeild, 2skurðdeild Barnaspítala Hringsins og
'rannsóknarstofu í meinafræði, Landspítala, 4læknadeild HÍ, 5Fjórðungs-
sjúkrahúsið á Akureyri
Inngangur: Aðskilinn lungnahluti er sjaldgæfur meðfæddur
galli þar sem lungnavefur er án tengsla við bæði lungnaberkjur
og lungnablóðrás. Lungnahlutinn er nærður af kerfisslagæð og
getur ekki tekið þátt í loftskiptum. Einkenni geta verið fjölbreytt
en eru oftast rakin til endurtekinna lungnasýkinga og/eða hjarta-
bilunar. Orsök aðskilins lungnahluta er ekki þekkt. Ein kenning
gerir ráð fyrir því að um afleiðingar endurtekinna lungnasýkinga
sé að ræða. Síðari ár hafa þó flestir hallast að því að orsökin sé
um meðfædd. Hér er lýst tveimur mjög sérstökum tilfellum sem
styðja síðari tilgátuna. Þetta eru jafnframt fyrstu íslensku tilfellin
af aðskildum lungnahluta sem lýst hefur verið.
Sjúkratilfelli 1: Nýfætt stúlkubarn gekkst undir skuggaefnisrann-
sókn á meltingarvegi vegna þrengingar á skeifugörn (atresia).
Við rannsóknina barst skuggaefni upp í neðra blað hægra lunga
og voru upptökin frá mótum maga og vélinda. Við skurðaðgerð
kom í ljós stór aðskilinn lungnahluti sem var tvíblaða og lá út í
bæði hægra og vinstra brjósthol. Lungnahlutinn var þakinn eigin
fleiðru og nærður af stórri kviðarholsslagæð. Lungnahlutinn var
fjarlægður með skurðaðgerð. Tveimur árum frá aðgerð heilsast
stúlkunni vel.
Sjúkratilelli 2: 18 ára piltur með rúmlega árs sögu um end-
urtekna lungnabólgu greindist á tölvusneiðmynd með fyrirferð
í miðju hægra lunga. Við skurðaðgerð sást aðskilinn lungnahluti
neðst í efri lugnalappa. Lungnahlutinn var þakinn eigin fleiðru
og inn í hann gekk berkja sem tengdist 4x5 cm stórri vökva-
fylltri blöðru. Vefjagerð blöðrunnar samrýmdist vel vélindavegg.
Ekki reyndist beinn samgangur á milli hennar og vélinda. Efri
lungnalappinn var fjarlægður ásamt lungnahlutanum og blöðr-
unni. Hálfu ári frá aðgerð er sjúklingurinn við ágæta líðan.
Niðurstaöa: Aðskilinn lungnahluti getur tengst meltingarvegi
með beinum eða óbeinum hætti. Þessi tengsl geta ýtt stoðum
undir þá kenningu að um meðfæddan galla sé að ræða frekar en
áunninn, enda eru lungu og efri meltingarfæri bæði upprunnin
frá forgirni á fósturskeiði.
V-13 Skurðaðgerðir vegna lungnameinvarpa nýrnafrumu-
krabbameins á íslandi 1984 - 2006
Scemundur Jón Oddsson'1, Helgi ísaksson’, Eiríkur Jónsson1-4, Guðmundur
Vikar Einarsson4,Tómas Guðbjartsson21
tomasgud@landspitali. is
‘Læknadeild HÍ, 2hjarta- og lungnaskurðdeild, ’rannsóknarstofu í meina-
fræði og Jþvagfæraskurðdeild Landspítala
Inngangur: Við greiningu nýrnafrumukrabbmeins eru tæplega
20% sjúklinga með lungnameinvörp. Hluti þessara sjúklinga
hefur stök meinvörp í lunga. Erlendar rannsóknir hafa sýnt
fram á 30-49% sjúkdómsfríar 5-ára lífshorfur hjá völdum
hópi sjúklinga sem fara í brottnám á lungnameinvarpi nýrna-
frumukrabbameins. Tilgangur þessarar rannsóknar var að kanna
afdrif sjúklinga sem gengust undir slíka aðgerð hér á landi á
tímabilinu 1984-2006.
Efniviður og aðferðir: Þessi rannsókn er hluti af stærri rannsókn
á nýrnafrumukrabbameini á íslandi og byggir á gagnagrunni
sem inniheldur alla sjúklinga sem greinst hafa með sjúkdóminn
frá 1971 til 2006. í þessari afturskyggnu rannsókn voru athugaðir
allir sjúklingar sem greinst höfðu með nýrnafrumukrabbamein
sem meinverptust til lungna á tímabilinu 1984-2006 og geng-
ust undir skurðaðgerð á lunga. Upplýsingar voru fengnar úr
sjúkraskrám og Krabbameinsskrá auk gagnagrunns rannsóknar-
stofu Landspítala í meinafræði. Könnuð voru afdrif sjúk-
linganna, fylgikvillar og lífshorfur. Notast var viðTNM stigun og
reiknaðar lífshorfur þar sem útreikningar miðuðust við 1. mars
2007.
Niðurstöður: Alls gengust 14 sjúklingar undir lungnaaðgerð
vegna meinvarpa frá nýrnafrumukrabbameini á 23 ára tímabili.
í hópnum voru 10 karlar og 4 konur og meðalaldur við greiningu
meinvarpa var 59 ár (bil 45-78 ár). Allir sjúklingarnir höfðu áður
gengist undir nýrnabrottnám, að meðaltali 39 mánuðum áður
(bil 1-132 mánuðir). T-stig upprunalegu nýrnaæxlanna var: T1
(n=l), T2 (n=5), T3a (n=5) og T3b (n=3). Af þeim voru 9 án
eitlameinvarpa (N0) en 6 með dreifð eitlameinvörp (Nl-2).
Lungnameinvarp var þekkt við greiningu hjá einum sjúklingi en
greint síðar (>3 mán. frá nýrnaaðgerð) hjá 13 sjúklingum. Flestir
(n=ll) þessara sjúklinga voru með stakt meinvarp, meðalstærð
27 mm (bil 8-50). Helmingur sjúklinganna gekkst undir brott-
nám á lungnalappa (n=7), þrír fóru í fleygskurð og aðrir þrír í
lungnabrottnám. Einn sjúklingur gekkst bæði undir fleygskurð
og brottnám á lungnalappa. Hjá 6 sjúklingum voru meinvörp
eingöngu hægra megin en hjá þremur vinstra megin. Samtals
fóru þrír sjúklingar í fleiri en eina aðgerð og einn sjúklingur fór
í aðgerð á báðum lungum. Fylgikvillar eftir aðgerð reyndust
fátíðir, sá helsti var gáttaflökt sem greindist hjá einum sjúklingi.
Aðgerðirnar tóku að meðaltali 123 mín og miðgildi legutíma var
10 dagar. í dag eru fjórir af sjúklingunum á lífi (meðal-eftirfylgni
82 mán.). Lífshorfur tveimur árum frá greiningu meinvarpa í
lungum voru 64% og 29% eftir 5 ár. Til samanburðar var lifun
þeirra sem fóru ekki í brottnám meinvarpsins (1984 -2000) 34%
eftir 2 ár og 11% eftir 5 ár.
334 Læknablaðið 2007/93