Læknablaðið - 15.04.2007, Page 117
SÉRLYFJATEXTAR
Atacor - Atorvastatin 10,20 og 40 mg
Atacor 10 mg, 20 mg og 40 mg. filmuhúöaðar töflur. Virk
innihaldsefni og styrkleikar: Hver filmuhúðuð tafla
inniheldur: 10 mg,20 mg eða 40 mg atorvastatín (sem
atorvastatín kalsíum).Ábendingar: Atacor er notað sem
viðbót við mataræðisbreytingu til að lækka of hátt heildar-
kólesteról, LDL-kólesteról,apólípóprótein B eða þríglýseríö hjá
sjúklingum með kólesterólhækkun af ókunnri orsök, ættgenga
kólesterólhækkun, blandaða blóðfituhækkun (svo sem lla- og
llb-gerð skv.flokkun Fredericksons), þegar viðunandi árangur
hefur ekki náðst með sérstöku mataræði eða öðrum ráðstöf-
unum en lyfjagjöf.Til viðbótar annarri blóðfitulækkandi
meðferð,t.d.með öðrum LDL-kólesteróllækkandi lyfjum,eða
ef aörar ráðstafanir hafa ekki reynst árangursríkartil lækkunar
á heildarkólesteróli og LDL-kólesteróli hjá sjúklingum
með arfhreina (homozygot), ættgenga kólesterólhækkun.
Skammtar og lyfjagjöf: Sjúklingur á að byrja á stöðluðu
kólesteróllækkandi mataræði áður en honum er gefið Atacor
og ætti að halda því áfram meðan á meðferð með Atacor
stendur.Skammta á að ákveða fyrir hvern einstakling með
tilliti til upphaflegs LDL-kólesterólgildis, markmiða meðferð-
arinnar og svörunar sjúklings.Venjulegur upphafsskammtur
er 10 mg einu sinni á sólarhring.Skammta skal aðlaga með
4 vikna millibili eða sjaldnar. Hámarksskammtur er 80 mg einu
sinni á sólarhring.Sólarhringsskammt á að taka í einu lagi en
hann má taka hvenær sem er sólarhringsins með eða án fæðu.
Kólesterólhækkun eingöngu og blönduð (samsett) blóðfítu-
hækkun: Hæfilegur skammtur handa flestum sjúklingum er
10 mg Atacor á sólarhring.Arfblendinættgeng kólesteról-
hækkun: Upphafsskammtur er 10 mg Atacor á sólarhring.
Skammta skal ákveða fyrir hvern einstakling og aðlaga með
4 vikna millibili í allt að 40 mg á sólarhring. Síðan má auka
skammt annaðhvort í 80 mg hámarksskammt á sólarhring
eða gefa 40 mg af atorvastatín einu sinni á sólarhring og
gallsýrubindandi lyf samtímis.Arfhrein ættgeng kólesteról-
hækkun:]0-80 mg á sólarhring,til viðbótarannarri blóðfitu-
lækkandi meðferð (t.d.öðrum LDL-kólesteróllækkandi
lyfjum), þegar viðunandi árangur hefur ekki náðst með
annarri meðferð. Sjúklingar með skerta nýrnastarfsemi:
Nýrnasjúkdómar hafa hvorki áhrif á plasmaþéttni né verkun
atorvastatíns á blóðfitu og þarf því ekki að breyta skömmtum.
A/drað/r: Verkun og öryggi af notkun ráðlagðra skammta hjá
sjúklingum eldri en 70 ára er svipuð og hjá öðrum fullorðnum.
Börn og unglingar: Notkun hjá börnum á að vera undir
eftirliti sérfræðings. Reynsla af notkun lyfsins hjá börnum er
takmörkuð og bundin við lítinn hóp sjúklinga (á aldrinum
4-17 ára) með alvarlega afbrigðilega blóðfituhækkun eins og
arfhreina ættgenga kólesterólhækkun. Ráðlagður upphafs-
skammturfyrir þennan hóp er 10 mg atorvastatín á sólarhring.
Eftir svörun og þoli má auka skammtinn í 80 mg á sólarhring.
Ekki er búið að meta upplýsingar um öryggi varðandi
þroska hjá þessum hópi.Frábendingar:Ofnæmifyrirvirka
efninu eða einhverju hjálparefnanna.Virkur lifrarsjúkdómur
eða óskýrð viðvarandi hækkun á transamínösum í
sermi þar sem hækkunin er meiri en þreföld efri mörk
meðalgilda.Vöðvakvilli.Meðganga og brjóstagjöf.Konurá
barneignaraldri sem nota ekki getnaðarvarnir. Varnaðarorð
og varúðarreglur: Áhrifá lifur: Rannsaka skal lifrarstarfsemi
áður en meðferð hefst og síðan reglulega meðan á meðferð
stendur.Gera skal prófanir á lifrarstarfsemi sjúklinga ef
merki eða einkenni um hugsanlegar lifrarskemmdir koma
fram.Hækki transamínasagildi skal fylgjast með sjúklingum
þar til gildi veröa eðlileg. Hækki transamínasar meira en
þrefalt miðað við efri mörk meðalgilda er mælt með því að
minnka skammta eða stöðva Atacorgjöf. Nota skal Atacor
með varúð hjá sjúklingum sem neyta mikils magns áfengis
og/eða hafa fengið lifrarsjúkdóm.Áhrifá beinagrindarvöðva:
Atorvastatín,eins og aðrir HMG CoA redúktasa-hemlar,getur
í einstaka tilvikum haft áhrif á beinagrindarvöðva og valdið
vöðvaþrautum,vöðvaþrota og vöðvakvillum sem geta leitt
til rákvöðvalýsu, sem er lífshættulegt ástand og einkennist
af hækkuðu CPK-gildi (meiri en tíföld efri mörk mæligilda),
vöðvarauða í blóði og vöðvarauðamigu sem getur valdið
nýrnabilun. Atorvastatín á að nota með varúð hjá sjúklingum
sem eru útsettir fyrir rákvöðvalýsu. Mæla á (CPK-gildi) áður en
meðferð með statínum hefst þegar um er að ræða sjúklinga
með skerta nýrnastarfsemi.skjaldvakabrest, sögu um arfgenga
vöðva-kvilla,sögu um vöðvakvilla eftirfyrri notkun statína eða
's_________________________________________________________
fíbrata, lifrarbilun og/eða þegar um mikla alkóhólneyslu er
að ræða.CPK-gildi skal einnig mæla áður en meðferð er hafin
hjá öldruðum (70 ára og eldri). Meta á þörf fyrir slíka mælingu
útfrá fyrrgreindum þáttum.íþessum tilvikum þarf að íhuga
vandlega hugsanlegt gagn umframáhættu meðferðarinnar
og mælt er með nákvæmu klínísku eftirliti.Ef CPK-gildi er
mark-tækt hátt (meira en fimmföld efri mörk mæligilda) á
ekki að hefja meðferð. Mælingar kreatlnfosfókínasa (CPK): Ekki
á að mæla CPK í kjölfar erfiðra æfinga eða ef einhver þáttur
er til staðar sem líklegur er til að hækka CPK-gildið, þar sem
það gerir túlkun erfiða. Ef CPK-gildi er marktækt hátt (meira
en fimmföld efri mörk mæligilda) á að endurtaka mælingu
eftir 5-7 daga til staðfestingar.Meðan á meðferð stendur
þarf að gera sjúklingum grein fyrir mikilvægi þess að tilkynna
strax ef þeir finna fyrir vöðvaverkjum, krömpum eða máttleysi
sérstaklega ef lasleiki eða hiti fylgir. Ef þessi einkenni koma
fram meðan á atorvastatín-meðferð stendur á að mæla CPK-
gildi og ef það reynist marktækt hækkað (meira en fimmföld
efri mörk mæligilda) á að hætta meðferð.Ef einkenni frá
vöðvum eru alvarleg eða valda daglegum óþægindum á að
hugleiða að hætta meðferð, jafnvel þótt CPK-gildi reynist ekki
vera hærri en fimmföld efri mörk mæligilda.Ef einkenni hverfa
og CPK-gildi verður eðlilegt má hugleiða að hefja meðferö
atorvastatíns eða annars statíns, þá með lægsta skammti og
undir nákvæmu eftirliti. Ef klfnfsk merki um hækkað CPK-
gildi (meira en tíföld efri mörk mæligilda) eða rákvöðvalýsu
eða ef grunur um rákvöðvalýsu koma fram á að hætta
meðferð atorvastatíns.Mllliverkanir: Hætta á vöðvakvilla
við notkun HMG CoA redúktasa hemla eykst ef ciklósporín,
fíbröt, makrólíðsýklalyf þ.m.t. erytrómýsín, azól-sveppalyf
eða níasín eru tekin inn samtímis og hefur í örfáum tilvikum
leitt til rákvöðvalýsu auk skertrar nýrnastarfsemi af völdum
vöðvarauðamigu.íhuga þarf vandlega hugsanlegan ávinning
umfram áhættu við samtímis notkun. Cýtokróm P4503A4
hemlar: Atorvastatín umbrotnar fyrir áhrif cýtókróm P450 3A4.
Milliverkanir geta átt sér stað þegar Atacor er gefið samtímis
cýtókróm P450 3A4 hemli og skal gæta varúðar þegar
atorvastatín er gefið samtímis slíkum lyfjum því það getur
leitt til aukinnar plasmaþéttni atorvastatíns.Við samtímis gjöf
atorvastatíns 10 mg einu sinni á sólarhring og erytrómýsíns
(500 mg fjórum sinnum á sólarhring) eða klarítrómýsíns (500
mg tvisvar sinnum á sólarhring), en það eru þekktir cýtókróm
P-450 3A4 hemlar, kom fram hækkun á plasmaþéttni
atorvastatíns. Klaritrómýsín jók Cmax atorvastatíns um 56%
og AUC um 80%. Atorvastatín og niðurbrotsefni þess eru
hvarfefni P-glýkópróteins.Hemlar P-glýkópróteins (t.d.
ciklósporín) geta aukið aðgengi atorvastatíns. Samtímis gjöf
atorvastatíns 40 mg og ítrakónazóls 200 mg á sólarhring
leiddi til þrefaldrar hækkunar á AUC atorvastatíns.Samtímis
notkun atorvastatíns og próteasa hemla sem eru þekktir
CYP3A4 hemlar leiddu til aukinnar plasmaþéttni atorvastatíns.
Greipaldinsafi inniheldur eitt eða fleiri efni sem hamla CYP3A4
og geta leitt til aukinnar plasmaþéttni lyfja sem eru umbrotin
fyrir tilstilli CYP3A4. AUC atorvastatín jókst um 37% og AUC
hins virka orthohýdroxý-umbrotsefnis minnkaði um 20,4%
eftir inntöku 240 ml af greipaldinsafa. Hinsvegar veldur mikið
magn greipaldinsafa (meira en 1,21 á dag í fimm daga) 2,5
faldri aukningu á AUC atorvastatíns og 1,3 faldri aukningu
á AUC virkra HMG-CoA redúktasa hemla (atorvastatín og
virk umbrotsefni). Því er ekki ráðlagt að drekka mikið magn
af greipaldinsafa meðan á atorvastatín meðferð stendur.
Cýtókróm P450 3A4 örvar: Áhrif efna sem örva cýtókróm
P450 3A4 (t.d. rífampisín eða fenýtóín) á Atacor eru ekki
þekkt.Hugsanlegarmilliverkanirannarra hvarfefna þessa
ísóensíms eru óþekktar,en þær ætti að hafa í huga þegar um
lyf með þröngan lækningafræðilegan stuðul er að ræða, t.d.
lyf við hjartsláttartruflunum af flokki III, þ.m.t.amíódarón.
Gemflbrózíl/Fíbröt: Hætta á atorvastatín hvötuðum vöðvakvilla
getur aukist við samtímis gjöf fíbrata. Niðurstöður in vitro
rannsókna benda til þess að gemfíbrózíl hindri glúkúróneringu
atorvastatíns og getur þannig hugsanlega valdið aukinni
plasmaþéttni atorvastatíns. Dígoxln: Endurteknir skammtar
dígoxíns og atorvastatíns 10 mg samtímis höfðu ekki
áhrif á stöðuga plasmaþéttni dígoxíns.Hinsvegar jókst
þéttni dígoxíns um 20% við samtímis notkun dígoxíns og
atorvastatíns 80 mg daglega. Þessa milliverkun má skýra
með hindrun á himnuflutningspróteininu P-glycóprótein.
Fylgjast skal náið með sjúklingum á dígoxínmeðferð.
Getnaðarvarnalyf til inntöku:V\ð samtímis notkun atorvastatíns
og getnaðarvarnalyfja til inntöku jókst þéttni noretíndróns og
etinýlestradíóls. Hafa skal þessar hækkanir á þéttni í huga
þegar skammtar getnaðarvarnalyfja til inntöku eru ákveönir.
Kólestípól: Plasmaþéttni atorvastatíns og virkra umbrotsefna
þess lækkaði (u.þ.b.25%) þegar kólestípól var gefið með
Atacor. Verkun á blóðfitu varð hins vegar meiri þegar
atorvastatín og kólestípól voru gefin saman en þegarefnin
voru gefin hvort fyrir sig.Sýrubindandi lyf: Við samtímis gjöf
atorvastatíns og sýrubindandi mixtúra,sem innihalda magnesíum
og álhýdroxíð, lækkaði plasmaþéttni atorvastatíns og virkra
umbrotsefna þess u.þ.b.35%;lækkun á LDL-kólesteróli
breyttist hins vegar ekki. Warfarín: Viö samtímis notkun
atorvastatíns og warfaríns styttist prótrombíntími lítillega
fyrstu daga meðferðarinnar en varð aftur eðlilegur innan
15 daga. Engu að síður skal fylgjast náið með sjúklingum á
warfarín-meðferð þegar atorvastatíni er bætt vi ð.Fenazón:
Við samtímis notkun atorvastatíns og fenazóns um nokkurt
skeið komu aðeins lítil eða engin sýnileg áhrif á úthreinsun
fenazóns í Ijós. Címetidín: í einni rannsókn á címetidíni og
atorvastatín m.t.t.milliverkana komu engar slíkar í Ijós.
Amlódipín: Samtímis notkun atorvastatíns 80 mg og amlódipíns
10 mg hafði ekki áhrif á lyfjahvörf atorvastatíns við stöðuga
blóðþéttni. Önnurlyf: í klínískum rannsóknum sáust
engar klínískt marktækar milliverkanir þegar atorvastatín
var gefið samtímis blóðþrýstingslækkandi lyfjum eða
blóðsykurslækkandi lyfjum. Meðganga og brjóstagjöf:
Meðganga og brjóstagjöf eru frábendingar við notkun Atacor.
Konur á barneignaraldri verða að nota örugga getnaöarvörn
meöan á meðferðinni stendur. Ekki hefur enn verið sýnt
fram á öryggi við notkun atorvastatíns á meðgöngu og við
brjóstagjöf. Rannsóknir á dýrum benda til þess að HMG-CoA
redúktasa-hemlar geti haft áhrif á þroska fósturvísa og fóstra.
Ekki er vitað hvort atorvastatín eða umbrotsefni þess skiljast
út í brjóstamjólk hjá mönnum. Akstur og notkun véla:
Atacor hefur engin áhrif á hæfni til aksturs eða notkunar véla
svo vitað sé. Aukaverkanir: Algengustu aukaverkanir sem
búast má við eru einkenni frá meltingarfærum þar á meðal
hægðatregða, vindgangur, meltingartruflanir og kviðverkir
sem venjulega lagast við áframhaldandi meðferð.lnnan við
2% sjúklinga hættu þátttöku í klínískum rannsóknum vegna
aukaverkana. Eftirfarandi listi yfir aukaverkanir er byggður
á niðurstöðum klínískra rannsókna og aukaverkunum sem
skráðar hafa verið eftir markaðssetningu lyfsins. Algengar
(> 1/100, < 1/10): Hægðatregða, vindgangur, meltingartruflun,
ógleði, niðurgangur, ofnæmi, svefnleysi, höfuðverkur, sundl,
breytt húðskyn, snertiskynsminnkun, húðútbrot, kláði,
vöðvaþrautir, liðverkir, þróttleysi, brjóstverkur, bakverkur,
bjúgur á útlimum.Sjaldgæfar (>1/1.000,<1/100): Lystarleysi,
uppköst, blóðflagnafæð, hárlos, of hár eða of lágur blóðsykur,
brisbólga, minnisleysi, úttaugakvilli, eyrnasuð, ofsakláði,
vöðvakvilli, getuleysi, lasleiki, þyngdaraukning. Mjög
sjaldgæfar (> 1/10.000,< 1/1.000); Lifrarbólga, stíflugula,
vöðvaþroti, rákvöðvalýsa. Koma örsjaldan fyrir (< 1/10.000):
Bráðaofnæmi, ofsabjúgur, útbrot með blöðrum (þ.m.t.
regnbogaroðasótt, Steven-Johnsons heilkenni og drep
í húðþekju). Ofskömmtun: Engin sérstök meðferð er til
við ofskömmtun Atacor.Sé um ofskömmtun að ræða skal
sjúklingur meðhöndlaður eftir einkennum og fá nauðsynlega
stuðningsmeðferð.Fylgjast skal með lifrarstarfsemi og CPK-
gildum í sermi.Vegna mikillar bindingar við plasmaprótein
er þess ekki að vænta að blóðskilun auki úthreinsun
atorvastatíns marktækt.Pakkningar og hámarksverð í
smásölu (l.júní 2006): Filmuhúðaðartöflur 10 mg, 100
stk.: 9358 kr., 20 mg, 100 stk.: 12.746 kr., 40 mg, 100 stk.:
15.741 kr.Afgreiðslutilhögun: R.Greiðsluheimild: E.
Markaðsleyfishafi: Actavis hf., Reykjavíkurvegi 76-78,220
Hafnarfirði. Maí2006.
actavis
hagur í heilsu
Læknablaðið 2007/93 381
k