Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.04.2007, Page 119

Læknablaðið - 15.04.2007, Page 119
HUGLEIÐING HÖFUNDAR / EINU SINN VAR LÆKNIRI Einu sinni var læknir Þegar ég var að alast upp austur á Seyðisfirði um og eftir miðbik síðustu aldar var í kaupsstaðnum einhleypur maður sem gekk undir nafninu Egill læknir. Vísast var hann einhvers son en það skiptir ekki máli fyrir þessa sögu. Starfsheitið þjónaði sem eftirnafn. Egill læknir var Egill læknir og annað var aukaatriði. Hann var lengi eini læknirinn árið um kring en fór stundum til útlanda á vetrum. Fékk hann þá einhvern fyrir sig á meðan og var sólbrúnn og sællegur er heim kom. Sagt var að hann sigldi á skipi um suðurhöf á meðan við sátum í skugga hárra fjalla og biðum sumars. Þetta með öðru skapaði honum sérstöðu í plássinu. Er skemmst frá því að segja að Egill skar upp og saumaði saman, fjarlægði brunnar tennur (þegar tannlækni vantaði), setti saman brot, tók á móti börnum, bólusetti og gerði annað sem til féll. Sjálfsagt voru honum mislagðar hendur í ein- hverju, stundum illilega en hann var læknirinn okkar í blíðu og stríðu. Hann bragðaði ekki áfengi á þorrablóti í vikunni áður en yngsti bróðir minn (Stefán læknir á Hvolsvelli) fæddist. Sagði að frú Arnþrúður ætti von á sér og bjóst við erfiðri fæð- ingu. Þessi heiðursmaður bjó í gamla Bjarka, hús- inu sem Þorsteinn Erlingsson skáld og ritstjóri reisti árið 1897. Húsinu sem Seyðfirðingar rifu niður sjötíu árum síðar ásamt trjágróðri öllum og malbikuðu yfir því þá vantaði bílastæði. Sá gjörn- ingur fór fram skömmu eftir að þeir ruddu gamla Apótekið frá 1890 en það var með upphaflegum innréttingum. Þá var síldarævintýrið mikla að hefj- ast og athafnamenn sunnan úr Reykjavík vantaði bragga undir síldarstúlkur. I Bjarka tók Egill læknir á móti sjúklingum á stofu áratugum saman. Og þá er ég komin að meginmálinu. Þegar sjúklingurinn gekk inn byrj- aði læknirinn að tala. Hann sagði ekki bara einu sinni hvað væri að heldur mörgum sinnum. Þegar sá sjúki fór út var hann með tilfellið á tæru. Sumir sögðu reyndar að karlinn væri of fljótur á sér. Hvað sem öðru leið lét hann mann ekki velkjast í neinum vafa. Oft verður mér hugsað til Egils þegar ég sit fyrir framan lækni sem þegir lon og don en hefur þá nærveru að ég fer að tala í sótthitakenndu fári í von um að hann taki eftir mér. Fái hann til að skilja að ég sé komin út af ákveðnu erindi en ekki bara til að horfa á hann sitja á stólnum hummandi. Stundum talar hann líka einhvern latínublending en hann hjálpar mér lítið. Eg man aldrei til að Egill læknir segði neitt á útlensku. Samt hlaut hann að kunna hana, maðurinn margsigldur í suðurhöfum. Hann amaðist heldur ekki við okkur krökkunum. Egill kom upp í hugann þegar ég fór með son minn til sérfræðings fyrir allmörgum árum. Við urðum að gera okkur ferð til Reykjavíkur með Akraborg og hafa yngri bróður hans með. Ef ég man rétt var haugasjór á leiðinni yfir Flóann en drengirnir þokkalega sprækir eftir volkið. Er skemmst frá því að segja að læknirinn, eldri herra, skoðaði sjúklinginn samanbitinn. Síðan reif hann upp hurðina og vísaði honum út ásamt litla bróður en ég sat eftir á stólnum, hlustaði á hann humma og tala sinn latínublending á meðan hann skrifaði aðskiljanlega lyfseðla. I dag hefði ég lamið hann. Svo hefði ég skellt hurðum og kannski rifið húsið líka. En þarna sat ég og barðist við að vera kurteis um leið og ég bað til Guðs að drengirnir mínir yrðu enn í bygging- unni þegar ég kæmi út. I þessu sambandi er rétt að komi fram að strákarnir voru ekki óþægari en gengur og gerist. Annar er í dag tölvunarfræðingur, hinn lögfræðingur og talið sama og sannað að þeir gátu setið kyrrir. Eg er að vona að það sé einsdæmi að læknir hendi sjúklingi sínum út í miðju kafi... Svo var það hér á dögunum að ég átti að koma í eftirlit á Borgarspítalann sem einu sinni var. Þar tók á móti mér ungur, brosmildur læknir sem byrj- aði að spjalla áður en ég settist niður. Mál hans var ekki áberandi latínuskotið, hann var heldur ekki að flýta sér en útskýrði allt vel. Þá gerðist það. Ég var ekki lengur á efri hæð í gímaldi inni í Fossvogi heldur komin í Bjarka milli hárra fjalla austur þar. Og gamla öryggiskenndin kom yfir mig. Ég fór heim með fullvissuna um að allt yrði þetta í lagi. Við næstu gatnamót rifjaði ég upp hlýjar móttökur karla og kvenna á slysa- og bráðadeild í ársbyrjun. Flestir voru læknarnir ungir. Gat verið að þeir kynnu minni latínu en hinir eða höfðu þeir farið á samskiptanámskeið? Ég hafði ekki komist að niðurstöðu þegar langdregið flaut bílsins fyrir aftan vakti mig upp úr hugleiðingunum og ég slapp yfir á grænu ljósi. Kristín Steinsdóttir Kristín Steinsdóttir hefur veriö í fremstu röö íslenskra barna- og unglingabókahöfunda frá því að hún sendi frá sér sína fyrstu bók, Franskbrauð með sultu, árið 1987 og hlaut fyrir hana íslensku bama- bókaverðlaunin. Þá hefur hún skrifað leikrit í samvinnu við Iðunni systur sína. Kristín hefur fengið viðurkenningu IBBY-samtakanna fyrir verk sín, og fyrir bókina Engill í Vesturbœnum Barnabókaverð- laun Fræðsluráðs Reykjavíkur, Norrænu bamabókaverðlaunin vorið 2003 og Barna- og unglingabókaverðlaun Vest- norræna ráðsins ári síðar. Kristín hefur skrifað tvær skáldsögur fyrir fullorðna sem hafa hlotið afar góða dóma, Sólin sest að morgni (2004) og Á eigin vegum (2006). Læknablaðið 2007/93 383 L
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.