Frjáls verslun - 01.01.2009, Blaðsíða 100
100 F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 0 9
s t j ó r n u n
Reynsla stjórnendanna var yfirleitt mjög mikil. Yfir 70% svar-
enda sögðust hafa yfir 11 ára reynslu og yfir fjórðungur yfir 20 ára
reynslu.
reYnsLa ÍsLenskra stjórnenDa?
Mesta þekkingin á þessum hugtökum og aðferðum reyndist vera
meðal þeirra sem höfðu 11–20 ára reynslu í stjórnun en hún reyndist
minnst hjá þeim sem höfðu meiri reynslu en það. Athygli vekur að
stjórnendur með minnstu reynsluna reyndust nota þessi hugtök og
aðferðir minnst í sínum fyrirtækjum.
Íslensku viðskiptaumhverfi var lýst í langflestum tilfellum sem
mjög hröðu og óstöðugu. Þeir stjórnendur sem sögðu umhverfi sitt
vera frekar rólegt og stöðugt virtust þekkja og nota þessi hugtök og/
eða aðferðir minna en hinir. Jafnframt töldu 92% stjórnenda árangur
fyrirtækja sinna síðastliðin fimm ár hafa verið samkvæmt væntingum
þeirra eða umfram það.
Flestir stjórnendur sem svöruðu könnuninni starfa í
iðnaðargeiranum eða 28%. Næstflestir voru í smásölu eða 17%
og var þekkingin og notkunin á þessum hugtökum og aðferðum
minnst þar. Þar á eftir kom fjármálageirinn með 12% svarenda en
stjórnendur þar töldu sig þekkja þessi hugtök og aðferðir aðeins
meira en aðrir að meðaltali. Athygli vekur að þeir stjórnendur sem
voru úr matvælaiðnaðinum, eða um 5% svarenda, höfðu mun betri
þekkingu á þessum hugtökum og aðferðum og notuðu þau töluvert
meira en aðrir. Hugsanlega má skýra það að einhverju leyti með hve
svörin voru fá í þeim geira.
Þekking innan fyrirtækjanna og viðhorf starfsmanna til þess-
ara hugtaka og/eða aðferða er að mati stjórnendanna frekar góð.
Um helmingur stjórnenda taldi þekkinguna frekar mikla eða mjög
mikla.
Viðhorf starfsmanna gagnvart upptöku nýrra aðferða var að sama
skapi frekar jákvæð með um 50% stjórnenda sem sögðu að svo væri.
Hins vegar var svipaður fjöldi sem taldi að sér stæði alveg á sama
þó að nýjar aðferðir væru kynntar til sögunar í fyrirtækinu. Þetta
er mikilvægt að hafa í huga þar sem hæfi og vilji starfsmanna geta
haft mikið um það að segja hvort skynsamlegt sé fyrir stjórnendur
að innleiða breytingar innan fyrirtækjanna sem oft eru flóknar og
tímafrekar. Oft miða þær að því að fækka eða breyta störfum innan
þeirra. Þessi jákvæða afstæða gefur því til kynna að starfsmenn eru ekki
nein sértök hindrun fyrir íslenska stjórnendur við innleiðinguna.
Almennt virðist sem stjórnendur þessara fyrirtækja telji að fyr-
irtæki sín séu vel í stakk búin til þess að innleiða einhverjar þeirra
aðferða sem nefndar voru í könnuninni. Yfir helmingur þeirra töldu
fyrirtæki mjög vel eða vel í stakk búin og aðeins 13% sögðu fyr-
irtækin illa í stakk búin til þess.
ÁhrifaÞÆttir viÐ innLeiÐingu Þessara Lausna
Rannsóknin gerir ráð fyrir að það séu aðallega þrír þættir sem hafi
áhrif á þekkingu stjórnenda á þessum hugtökum og/eða lausnum
og hafi þ.a.l. beint eða óbeint áhrif á það að þau séu innleidd
í fyrirtæki þeirra. Þessir þættir eða aðilar eru menntastofnanir,
stjórnunarráðgjafar og fjölmiðlar, þ.e. allt útgefið efni.
Menntun íslenska stjórnandans er mikil, þar sem um 88% þeirra
sögðust vera með háskólamenntun og þar af helmingur með meira en
grunnmenntun á háskólastigi.
hvaÐa Menntun hafa ÍsLenskir stjórnenDur?
Langflestir stjórnendurnir voru með verkfræði- eða viðskipta- eða
hagfræðimenntun en skiptingin milli þessara tveggja var svipuð.
Athyglisvert var að sjá að þeir sem hafa verkfræðimenntun virtust
hafa mjög svipaða þekkingu á þessum hugtökum og/eða aðferðum
og þeir sem hafa viðskipta- og hagfræðimenntun jafnvel þó að flest ef
ekki öll hugtökin eigi uppruna sinn í fræðum síðarnefnda hópsins.
Stjórnendur með MBA-gráðu virtust þekkja og nota þessi hugtök
meira en aðrir og þeir sem voru aðeins með grunnskólapróf virtust
þekkja og nota þau minnst. Það sem kom mest á óvart hins vegar er
að þeir sem eru voru með masters- og doktorsgráðu virtust vera undir
meðallagi í þekkingu á þessum hugtökum.
Spurt var í könnuninni í hvaða landi stjórnendurnir menntuðu
sig síðast. Flestir eða 56% svarenda menntuðu sig annarstaðar en á
Íslandi og um 70% af þeim í Evrópu. Mjög fáir höfðu menntað sig
annarstaðar en í Evrópu eða Bandaríkjunum.