Frjáls verslun - 01.04.2009, Page 14
Fyrst þetta...
14 F R J Á L S V E R S L U N • 3 . T B L . 2 0 0 9
MP Banki varð tíu ára 11. maí sl. og hélt
meðal annars upp á afmælið með því að
opna nýtt útibú í Borgartúni 26 – í sama
húsnæði og Spron var með áður. Baldvin
Tryggvason, sparisjóðsstjóri Spron um
árabil, var fyrsti viðskiptavinurinn í nýja úti-
búinu.
Margeir Pétursson, stofnandi og stjórn-
arformaður MP Banka, sagði við opnun hins
nýja útibús að bankinn yrði sá best rekni
og hagkvæmasti á landinu, án þess þó að
slegið yrði af kröfum um persónulega þjón-
ustu við viðskiptavini.
MP Banki hf. var stofnaður árið 1999 og
hét þá MP Verðbréf. Árið 2003 fékk bank-
inn fjárfestingabankaleyfi og bauð þá alhliða
fjárfestingabankaþjónustu. MP Banki fékk
fullt viðskiptabankaleyfi í október 2008 og
hóf að taka við innlánum og séreignarsparn-
aði til viðbótar við fyrri starfsemi.
„Markmiðið er að vera með eina öfluga
þjónustumiðstöð fyrir viðskiptavini okkar,
en að afgreiðslan fari að sem mestu leyti
fram í gegnum netið. Ísland er sérstakt að
því leyti hve netnotkun er almenn og með
réttri notkun nettækninnar er hægt að reka
banka með mun hagkvæmari hætti en með
þéttriðnu og fjárfreku útibúaneti,“ sagði
Margeir.
MP Banki hélt síðar á afmælisdaginn
glæsilegan afmælisfagnað í Ásmundarsafni
þar sem meðfylgjandi myndir voru teknar af
Geir Ólafssyni ljósmyndara.
Margeir Pétursson og Styrmir Þór Bragason taka hér á
móti Jóni Sigurðssyni, fyrrum viðskiptaráðherra og banka-
stjóra NIB, í afmælisfagnaði í Ásmundarsafni.
MP BanKI
10 ára
Opnaði útibú í Borgartúni
á afmælisdaginn
Baldvin Tryggvason, sparisjóðsstjóri Spron um árabil, var fyrsti viðskiptavinur-
inn í nýju útibúi MP Banka í Borgartúni. Margeir Pétursson tekur hér á móti
honum, ásamt tengdaföður sínum, Indriða Pálssyni, fyrrum forstjóra Skeljungs.
Styrmir Þór Bragason, forstjóri MP Banka,
og Ólafur Haraldsson, útibússtjóri bankans í
Borgartúni 26.
Klippt á borðann. Nýtt útibú MP Banka í Borgartúni vígt.