Frjáls verslun - 01.04.2009, Page 25
F R J Á L S V E R S L U N • 3 . T B L . 2 0 0 9 25
70 ára
Ágústa Einarsdóttir,
sölustjóri Iceland
Trade Directory.Benedikt
Jóhannesson,
framkvæmda-
stjóri Heims.
Elías Kristjánsson,
dreifingarstjóri
Heims.
þurfum við aftur að minnka blaðið. Samt
held ég að það fari ekki niður í þá stærð sem
það var í árið 1995. Allt byggir þetta þó á því
að það sé eftirspurn eftir blaðinu og henni
viðhöldum við bara með því að halda því
áhugaverðu.
Hvað hefur útgefandi mikil áhrif á efni
blaða?
Það er örugglega mjög mismunandi. Sum
blöð eru gefin út fyrst og fremst til þess að
hafa áhrif. Þetta á til dæmis við um dag-
blöðin. Hvernig get ég verið viss um að til-
gangurinn sé ekki annar? Jú, af þeim hefur
verið mikið tap undanfarin ár. Hver skyldi
vilja reka fyrirtæki ár eftir ár með tapi nema
hann fái eitthvað annað í staðinn? Umfjöllun
um Baugsmálið er dæmi um það þar sem
eignarhald litar mjög umfjöllun um mál. Það
er ekki þar með sagt að eigendur hafi stöð-
ugt skipað ritstjórum og blaðamönnum fyrir.
Menn hafa talið sig vita hvað væri þóknanlegt
að skrifa eða skrifa ekki.
Hins vegar finnst mér margir vera á
villigötum með umfjöllun um hlutleysi fjöl-
miðla. Hvers vegna skyldu fjölmiðlar vera
hlutlausir? Ef einhver vill boða einhverja
skoðun sem ekki brýtur í bága við lög eða
vil að heimur gefi út vönduð blöð
almennt siðferði er þá ekki allt í lagi að boða
hana með því að gefa út blað? Þetta gerðu
menn í sjálfstæðisbaráttunni við Dani, svo
dæmi sé tekið. Hættan er aðallega sú að
menn villi á sér heimildir, láti eins og þeir séu
hlutlausir en dæli í raun áróðri yfir landslýð.
Hann getur verið bæði beinn og óbeinn, til
dæmis með því að flytja stöðugt af því fréttir
að þeir sem eru eigendum ekki þóknanlegir
séu óheiðarlegir eða vitlausir. Eina blaðið sem
stundar slíka blaðamennsku núna er DV, en
Fréttablaðið var skrifað með þeim hætti á
árum áður. Á endanum hlýtur útgefandi samt
að hafa úrslitaáhrif til góðs eða ills því að eng-