Frjáls verslun - 01.04.2009, Qupperneq 118
118 F R J Á L S V E R S L U N • 3 . T B L . 2 0 0 9
Íslenski hugbúnaðariðnaðurinn
Gogogic er þriggja ára fyrirtæki sem nýlega setti sína fyrstu fullunnu vöru á alþjóðlegan markað – iPhone-tölvuleikinn Symbol6. Leikurinn hefur fengið góðar viðtökur í erlendum
fjölmiðlum og hefur t.d. verið tilnefndur til Nordic Game Awards-
verðlaunanna. Gogogic er hinn dæmigerði sproti þar sem skóla-
félagar ákveða að stofna fyrirtæki með góða hugmynd í farteskinu.
Nú starfa 15 manns hjá fyrirtækinu.
Viðskiptavinir tortryggja Ísland
„Við lögðum af stað nánast án fjármagns en vorum duglegir að
finna verkefni sem við gátum haft tekjur af samhliða þróunarvinn-
unni. Við höfum þróað ýmsar tölvuleikja- og netlausnir fyrir við-
skiptavini hér heima og erlendis en höfum lagt upp með að verk-
efnin skapi ekki bara tekjur heldur nýtist líka til að þróa þekkingu
á lykilsviðum sem síðan gagnast okkur í eigin framleiðslu,“ segir
Jónas Björgvin Antonsson, framkvæmdastjóri Gogogic. Meðal við-
skiptavina er bandaríska sjónvarpsstöðin NBC en Jónas segir að í
þriggja ára sögu fyrirtækisins hafi viðskipti við erlenda aðila gengið
upp og ofan vegna ytri aðstæðna. „Til að byrja með fengum við ansi
lítið fyrir þjónustu fyrir erlend fyrirtæki, enda var krónan í toppi og
á tímabili þurftum við algerlega að snúa okkur að heimamarkaði.
Þetta hefur auðvitað snúist við núna og erlend verkefni gefa mun
meira af sér en áður. Vandamálin núna eru gjaldeyrishöftin og tor-
tryggni viðskiptavina, sem vita hrein-
lega ekki hvort það sé skynsamlegt að
skipta við íslensk fyrirtæki.“
Aukin umræða um Ísland erlendis
hefur reyndar hjálpað Gogogic að einu
leyti – við kynningu á tölvuleiknum
Symbol6. „Fjölmiðlafólk og aðrir hafa
oft samband við okkur vegna þess að
því finnst áhugavert að fjalla um fyr-
irtækið frá Íslandi sem er að gefa út
tölvuleik á meðan allt er að hrynja í
kringum það.“
Netið nýtt til markaðssetningar
Gott orð fer af íslenskum upplýsinga-
tæknifyrirtækjum erlendis að mati Jón-
asar, sem telur að íslensk fyrirtæki í
þessum geira ættu að vera duglegri við
að sækja sér erlend verkefni. „Þetta er
vel gerlegt ef viljinn er til staðar. Það
hefur auðvitað verið mótbyr síðustu
árin, sterk króna, bankar sem soguðu til sín gott vinnuafl og þrýstu
launum upp úr öllu valdi, skortur á fjármagni og háir stýrivextir sem
bitu sennilega hvergi jafnfast og hjá nýsköpunarfyrirtækjunum. Fjar-
lægðin frá mörkuðum er líka oft erfið, en á móti kemur að við erum
miðja vegu milli Evrópu og Bandaríkjanna og skiljum báða þessa
markaði, sem er alls ekki algengt. Fjarlægðin þýðir að við þurfum að
vera hugmyndarík við að koma okkur á framfæri og það eflir okkur
bara frekar en hitt. Við höfum t.d. verið dugleg við að nýta okkur
netið til markaðssetningar, sem er gríðarlega öflug kynningarleið ef
vel er að staðið. Mörg okkar verkefni fyrir viðskiptavini hafa verið á
sviði netmarkaðssetningar og því þekkjum við vel hvernig best er að
koma sér á framfæri.“
Tölvuleikjanýlenda á Íslandi?
Jónas segir að uppgangur CCP síðustu ár skili góðum jarðvegi fyrir
sprotafyrirtæki í tölvuleikjageiranum. „Við og fleiri fyrirtæki erum
að hasla okkur völl á þessu sviði og njótum góðs af brautryðjenda-
starfi CCP, sem hefur verið duglegt við að styðja við bakið á okkur.
Háskólasamfélagið er líka að taka við sér og draumurinn er að í
náinni framtíð verði kominn upp öflugur kjarni fyrirtækja í þessum
geira sem muni láta mikið til sín taka í íslensku efnahagslífi.“
Jónas Björgvin Antonsson, framkvæmdastjóri Gogogic:
Þurfum að vera duglegri
að sækja erlend verkefni
Jónas Björgvin Antonsson, framkvæmdastjóri Gogogic.