Frjáls verslun - 01.04.2009, Blaðsíða 136
136 F R J Á L S V E R S L U N • 3 . T B L . 2 0 0 9
Fólk
Helga Jóhanna
Oddsdóttir: „Við eyðum
miklum tíma saman,
ferðumst töluvert inn-
anlands sem utan og
njótum hversdagsins
jafn
vel heima við og
er mikið spjallað.“
Nafn: Helga Jóhanna Oddsdóttir.
Fæðingarstaður: Reykjavík 4. júlí
1973, uppalin í Keflavík og bý nú í
Reykjanesbæ.
Foreldrar: Oddur Sæmundsson útgerð-
armaður og skipstjóri og Jónína
Guðmundsdóttir fyrrv. skólastjóri.
Maki: Einar Jónsson.
Börn: Oddur Fannar og Tómas ingi 5
ára, og stjúpsynirnir Arnór Breki 13 ára,
Ástþór Atli 16 ára, Haukur 20 ára.
Menntun: Viðskiptafræðingur M.Sc.
innan Opinna kerfa ríkir mikill kraftur enda einvala lið sérfræðinga sem þar starfar. Starfsandinn er einstakur,
metnaður og hæfileikar starfsfólks ekki
síðri. Við höfum unnið ötullega með okkar
birgjum undanfarna mánuði að því að
tryggja hag viðskiptavina okkar þrátt fyrir
erfiðleika í efnahagslífinu. Njótum við þar
góðs af áralöngu viðskiptasambandi við HP
en félagið hefur sýnt aðstæðum á Íslandi
einstakan skilning og velvilja. Grasrótin í
félaginu er mjög öflug og höfum við gengið
í gegnum algjöra endurskipulagningu með
hagræðingu að leiðarljósi og skilvirkara
starfaskipulag. Við sömdum um mjög hóflega
launaskerðingu við starfsmenn í október eða
3%. Allir lögðust á eitt enda markmiðin skýr.
Nú í apríl endurgreiddum við svo skerðingu
fyrsta ársfjórðungs í ljósi góðrar niðurstöðu
og stefnum á að endurtaka leikinn eftir
annan ársfjórðung náum við markmiðum
okkar. Þrátt fyrir mikla óvissu horfum við
björtum augum til framtíðar og ætlum okkur
að standa þennan storm af okkur.
Ég hóf störf hjá Opnum kerfum í janúar
2008 sem mannauðsstjóri en hafði áður starfað
sem starfsþróunarstjóri hjá Reykjanesbæ í
fimm ár, starfsmannastjóri Landsbréfa og
forstöðumaður á starfsmannasviði Landsbanka
Íslands þar áður. Í dag stýri ég Verkefnastofu
en verkefni hennar eru auk mannauðsmála,
gæðamál, markaðsmál, þjónustuborð og innri
þjónusta og rekstur. Starfið mitt felst einna helst
í daglegri stjórnun deildarinnar, stefnumótun
og verkefnastýringu. Innan Verkefnastofu eru
fjölmörg verkefni í pípunum, við vorum
t.a.m. að kynna ný gildi og starfsmannastefnu
Opinna kerfa fyrir starfsfólki.“
Helga Jóhanna lauk M.Sc. gráðu í stjórnun
og stefnumótun frá HÍ árið 2005, B.Sc.
gráðu í viðskiptafræði með áherslu á stjórnun
frá sama skóla árið 1998 og stúdentsprófi frá
MR árið 1993. Eiginmaður Helgu Jóhönnu
er Einar Jónsson, forstöðumaður hjá Ris ehf.
og eiga þau samtals fimm syni.
„Aðaláhugamálin lúta að fjölskyldunni
og uppeldi barnanna. Ég er svo rík að
auk tvíburanna býr unglingurinn 16 ára
hjá okkur og er því mikið líf og fjör. Það
að horfa á börnin sín njóta lífsins og taka
stöðugum framförum í þroska og árangri
í námi er ein sú mesta gæfa sem ég tel
mig njóta. Við eyðum miklum tíma saman,
ferðumst töluvert innanlands sem utan og
njótum hversdagsins jafn vel heima við og er
mikið spjallað. Við förum reglulega í bústað
fjölskyldunnar norður í Reykjadal og tökum
þá gjarnan skíðin með að vetrarlagi enda stutt
í Hlíðarfjall.
Ein eftirminnilegasta ferðin er skíðaferð
til Austurríkis sem við fórum í mars
2008. Þar nutum við okkar í útivist í
frábærum félagsskap frá morgni til kvölds.
Í sumarbyrjun er ferðinni heitið til Cannes
með stórfjölskyldunni en annar bræðra
minna býr ásamt fjölskyldu sinni og starfar
í London og ætlum við ásamt foreldrum
okkar að hittast og eiga saman góða viku í
snemmsumri þeirra Frakka.
Ég syng einnig með Sönghópi Suðurnesja
sem er félagsskapur afskaplega skemmtilegs
fólks. Tvö mótorhjól eru á heimilinu sem
við fullorðna fólkið tökum stundum fram
og rúntum um á, maðurinn minn er nú
ívið duglegri en ég við það enn sem komið
er. Önnur áhugamál má nefna lestur góðra
bóka og þá ekki síst þeirra sem fjalla um
stjórnun á einhvern hátt. Eins hef ég gaman
af eldamennsku en hvað hæfileikana á því
sviði varðar er víst öruggara að láta þá liggja
á milli hluta.“
mannauðsstjóri og forstöðumaður verkefnastofu hjá Opnum kerfum
HELGA JÓHANNA ODDSDÓTTIR
TExTi:
hilmar
Karlsson
MYNDiR:
GEir
ÓlaFsson