Frjáls verslun - 01.07.2006, Qupperneq 9
F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 0 6 9
almennt. Í Færeyjum höfum við verið að lána litlum fyrirtækjum
sem eru í fiskvinnslu. Hvað varðar Ísland þá er sjóðurinn góður
kostur fyrir lítil fyrirtæki sem vilja taka þátt í útrásinni sem
einkennt hefur atvinnulífið síðustu ár. Við erum það litlir að við
getum ekki tekið þátt í útrás stóru fyrirtækjanna, en tilvalið er að
lítil fyrirtæki leiti til okkar ef þau eru að hugsa um möguleika sína
á Grænlandi eða í Færeyjum og eitt aðalstefnumál okkar er að efla
tengsl lítilla fyrirtækja í þessum löndum. Við hjá Lánasjóði Vestur-
Norðurlanda höfum þekkinguna til að aðstoða þegar verkefnin eru
fyrir hendi.“
Sverri nefnir eitt dæmi um samstarf sem nýlega komst á lagg-
irnar, en það var stofnun fiskverksmiðju í Færeyjum til að þurrka
hausa. Var hún sett á laggirnar í samstarfi við Laugafisk á Dalvík.
Stefnt að fjölbreytni
Sem fyrr mun starfsemi Lánasjóðs Vestur-Norðurlanda í nánustu
framtíð miðast við þarfir atvinnuveganna og áfram stefnir sjóð-
urinn að því að auka tengsl við atvinnulífið í löndunum þremur,
bæði hvað varðar einstök verkefni í Færeyjum og á Grænlandi og
einnig samstarfsverkefni sem kunna að koma upp á yfirborðið.
Hvað varðar Grænland hefur Lánasjóðurinn hingað til verið
virkastur innan ferðaiðnaðarins. Verður einnig lögð áhersla á að
finna aðrar tegundir verkefna ásamt möguleikum á samstarfs-
verkefnum. Í Færeyjum er Lánasjóðurinn í tengslum við fyrirtæki
innan margra atvinnugreina og er stefnt að fjölbreytni hvað varðar
atvinnugreinar.
Á Íslandi hefur lánþegum fækkað jafnt og þétt eftir að krafan
um samstarfsverkefni kom fram og er nú leitað að mögulegum
samstarfsverkefnum við Grænland eða Færeyjar.
Á heimasíðu sjóðsins, www.vestnorden.is má finna upplýs-
ingar, ársskýrslu 2005 ásamt áætlun stjórnar fyrir tímabilið 2006-
2008.
Stjórn Lánasjóðs Vestur-Norðurlanda er skipuð sjö mönnum
sem eru: Jørn Birk Olsen, Grænlandi, formaður, Sigurd Poulsen,
Færeyjum, varaformaður, William Friis-Møller, Danmörku, Carita
Putkonen, Finnlandi, Haukur Halldórsson, Íslandi, Bjørn Nor-
mann Hansen, Noregi, og Lars Engström, Svíþjóð.
Lánasjóður Vestur-Norðurlanda
hefur aðsetur í þremur löndum,
en aðalskrifstofan er í Kringlunni 4.
Lánasjóður Vestur-
Norðurlanda miðast við þarfir
atvinnuveganna og áfram
stefnir sjóðurinn að því að
auka tengsl við atvinnulífið
í löndunum þremur, bæði
með einstökum verkefnum í
Færeyjum og á Grænlandi og
einnig samstarfsverkefnum
sem kunna að koma upp á
yfirborðið.
Kringlunni 4 • 103 Reykjavik
Pósthólf 8096, 128 Reykjavík
Sími: 5302100 • Fax: 5302109
Heimasíða: www.vestnorden.is
Netfang: vestnorden@vestnorden.is
Sverri Hansen, forstjóri Lánasjóðs Vestur-Norðurlanda, á skrifstofu
sinni í Reykjavík.
Nuuk á Grænlandi. Þórshöfn í Færeyjum Frá Þingvöllum.
FV.07.06.indd 9 7.9.2006 12:50:14