Frjáls verslun - 01.07.2006, Blaðsíða 74
74 F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 0 6
K
Y
N
N
IN
G
HAUSTIÐ ER TÍMINN
Í Inn X fæst allt frá skil-
veggjum upp í skrifborð og
stóla, fundar-, skrifstofu- og
gestastóla, sem og húsgögn
og innréttingar fyrir heimilið
auk ýmiss konar smámuna
sem setja punktinn yfir i-ið
hvar sem þeim er bætt við
falleg húsgögn.
INN X:
Þægilegt vinnuumhverfi
með húsgögnum frá Inn X
Rétt staða og þægilegt vinnuum-hverfi er veigamikið, ekki síst fyrir þá sem þurfa að sitja lengi
við skrifborð. Margir hafa tileinkað sér
„sittu-stattu“ aðferðina á skrifstofunni,
það er að sitja og standa til skiptis við
skrifborðið. Til þess þarf hæðarstillanleg
skrifborð, en verslunin Inn X í Faxafeni
8 sérhæfir sig einmitt í rafmagnshæð-
arstillanlegum borðum. Hjá Inn X er líka
mikið úrval af þægilegum og vönduðum
fjölstillanlegum skrifstofustólum auk
húsgagna fyrir heimilið og innréttingar
í eldhús, bað- og svefnherbergi, að sögn
Halldórs Gunnarssonar, sölustjóra skrifstofuhúsgagna.
Húsgögnin fyrir skrifstofuna koma m.a. frá danska fyrirtækinu
Dencon og húsgögn fyrir heimili frá öðru þekktu dönsku fyrirtæki,
Boconcept. Þá er í Inn X mikið úrval af stólum frá Steelcase, t.d. skrif-
stofustóllinn Please sem er mest seldi skrifborðsstóll í Evrópu. Innrétt-
ingarnar í Inn X koma frá Aran á Ítalíu.
Teikniforrit fyrir skrifstofuna
Skrifstofuhúsgögnin í Inn X standa mjög framarlega og á heimasíð-
unni www.innx.is er hægt að sækja sér teikniforrit og raða sjálfur inn
í skrifstofuna húsgögnum frá Inn X. Að sjálfsögðu aðstoða starfsmenn
Inn X viðskiptavini við að teikna upp og skipuleggja skrifstofurnar eða
stofurnar heima og velja til þess eitthvað af þeim glæsilega búnaði sem
verslunin býður upp á.
Hægt er að fá skrifstofuhúsgögn úr
hlyn, beyki og kirsuberjaviði og einnig
úr eik og harðplasti. Að auki getur Inn
X tekið að sér sérsmíði í stærri verk.
Húsbúnað frá Inn X má sjá í fjölda-
mörgum stórfyrirtækjum hér á landi
þar sem menn velja nú gjarnan raf-
magnshæðarstillanleg skrifborð til að
gera vinnuumhverfið þægilegra. Hall-
dór Gunnarsson sölustjóri segir að um
80% skrifborðanna, sem verslunin selji,
séu rafmagnshæðarstillanleg. Inn X sé
leiðandi á þessu sviði hérlendis og öll
skrifborð sem seld séu í Inn X séu að
jafnaði með 20 sm hæðarstillingu. Rafmagnsstillanlegu borðin má hins
vegar stilla allt frá 62 upp í 130 sm hæð og hafa þau reynst mjög vel
sem sýnir sig best í því að viðskiptavinir Inn X kaupa þau aftur og aftur.
Sumir kjósi að vera bæði með aðal- og hliðarborð stillanleg en aðrir ein-
ungis aðalborðið. Stólarnir við skrifborðin eru líka fjölstillanlegir sem
gerir vinnuaðstöðuna enn þægilegri.
Vellíðan í vinnunni eykur afköst
„Fólki verður að líður vel í vinnunni svo að það geti skilað fullum
afköstum og þess vegna leggjum við áherslu á að laga allt að starfs-
manninum, borðið, stólinn og þægilega og aðgengilega skápa undir
pappíra og skjöl. Um leið og skrifstofan verður þægileg aukast afköstin
til muna,“ segir Halldór Gunnarsson sölustjóri.
Halldór í þægilegu skrifstofuumhverfi.
Skrifstofuhúsgögnin í Inn X eru hönnuð svo fólki líði sem
best í vinnunni.
FV.07.06.indd 74 7.9.2006 12:56:27