Frjáls verslun - 01.07.2006, Blaðsíða 78
78 F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 0 6
K
Y
N
N
IN
G
HAUSTIÐ ER TÍMINN
Mikill og stöðugur vöxtur hefur verið hjá EJS undanfarin ár. Fyrirtækið er mjög sterkt á sviði PC-tölva og fartölva og hvers kyns skrifstofuvéla, t.d. ljósritunarvéla. Þá hefur
vöxturinn ekki orðið minni á sviði miðlægs tölvubúnaðar, netþjóna,
gagnageymslna, afritunarbúnaðar sem og hugbúnaðar
að sögn Jóns Viggós Gunnarssonar, forstjóra EJS.
„Vöxturinn hefur verið mikill síðustu árin á öllum
sviðum sem EJS starfar á. Viðskiptavinir okkar eru af
öllum stærðum og gerðum og eru staðsettir um allt
land. Flestir þekkja okkur sem Dell og það erum við
líka en ekki má gleyma að EJS býður upp á margs
konar lausnir og þjónustu á fyrirtækjamarkaði frá
öðrum samstarfsaðilum eins og t.d Microsoft, EMC,
Trend Micro, Xerox og svo mætti lengi telja.“
Símkerfi og samskiptalausnir
„Árið 2004 keyptum við fyrirtækið Símkerfi og sam-
einuðum það þjónustukerfi okkar þótt það sé reyndar starfrækt sem
sérhópur innan fyrirtækisins. Við erum með í boði Alcatel-símkerfi
sem hafa aðallega verið seld stórum fyrirtækjum. Við höfum lagt
megináherslu á stóru kerfin, þótt við séum einnig með símstöðvar
fyrir smærri fyrirtæki sem ástæða er fyrir menn að kynna sér. Alcatel-
símkerfin geta verið svo stór að aðeins fjórar símstöðvar myndu nægja
fyrir allt Ísland! Hins vegar er algengasta stærðin sem við seljum og
setjum upp fyrir á milli 100 og 500 notendur. Menn eru líka farnir að
nota IP-tæknina mikið og flest símkerfin sem við höfum selt á síðasta
ári eru á einhvern hátt IP-vædd, þ.e. nota IP-tæknina
mikið og er þá verið að flytja símkerfin yfir netlagnir
innanhúss eða milli starfsstöðva með meiri gæðum
og lægri kostnaði en áður hefur þekkst,“ segir Jón
Viggó.
Stöðugar breytingar í upplýsingatækni
Jón Viggó bætir við að stöðugt eigi sér stað miklar
breytingar hjá EJS, enda sé öll starfsemi sem teng-
ist upplýsingatækniheiminum síbreytileg og stöðugt
þurfi að viðhalda þekkingu þar sem viðskiptaum-
hverfið og tæknin taka stöðugum breytingum. „EJS
hefur gengið í gegnum margvíslegar breytingar og
er dýnamískt og lifandi fyrirtæki að vinna í. Til að ná framúrskarandi
árangri í síbreytilegu umhverfi verða fyrirtæki að geta tekist á við breyt-
ingar og þá er hæft starfsfólk lykilatriði. Stjórnendur og allir starfsmenn
verða að vera meðvitaðir og taka þátt í breytingunum og áhersla hefur
einmitt verið lögð á það hjá EJS.“
Jón Viggó Gunnarsson,
verkfræðingur frá
Álaborgarháskóla,
tók við starfi forstjóra
EJS í apríl sl. af
Viðari Viðarssyni.
Jón Viggó hefur m.a.
verið verkefnastjóri á
hugbúnaðardeild, ráð-
gjafi og framkvæmda-
stjóri Sölusviðs EJS
EJS:
EJS í stöðugum vexti
Jón Viggó Gunnarsson, forstjóri EJS, hefur unnið hjá fyrirtækinu frá árinu 2000.