Frjáls verslun - 01.07.2006, Blaðsíða 90
90 F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 0 6
K
Y
N
N
IN
G
HAUSTIÐ ER TÍMINN
Capacent er ráðgjafar-,
ráðninga- og rannsókna-
fyrirtæki sem hefur það
hlutverk að aðstoða við-
skiptavini sína við að ná
auknum árangri. Félagið
hefur náð sterkri stöðu
á danska markaðnum og
stefnir að áframhaldandi
vexti á núverandi mörk-
uðum og annars staðar í
Norður-Evrópu.
Capacent:
Capacent er nýtt nafn IMG
Fyrirtækið, sem flestir þekkja sem IMG, hefur vaxið mikið á íslenskum markaði undanfarin ár, með innri vexti, fyrirtækja-kaupum og sameiningum. Félagið skráði alþjóðlega vöru-
merkið Capacent eftir kaup á ráðgjafareiningu KPMG í Danmörku
á síðasta ári og hefur verið að styrkja starfsemi sína þar. Breytt stefna
félagsins varð sýnileg á Íslandi 5. september sl. þegar IMG tók einnig
upp nafnið Capacent. Þetta er mikilvægt skref í að byggja upp öflugt
norður-evrópskt sérfræðifyrirtæki, með aðalbækistöðvar hér á landi en
um helmingur starfseminnar er í Danmörku, að sögn Ragnars Þóris
Guðgeirssonar, forstjóra Capacent á Íslandi.
IMG er best þekkt fyrir tengsl sín við Gallup en í rannsóknum hefur
fyrirtækið einnig átt áralangt samstarf við AC Nielsen. Síðustu ár hefur
félagið verið að styrkja starfsemina á sviði ráðgjafar, s.s. í stjórnunar- og
rekstrarráðgjöf, þjálfun, upplýsingatækni, ferlamálum og skipulagi.
Ráðningaþjónusta IMG, Mannafl - Liðsauki og Vinna.is, er sú stærsta
hér á landi. Með nafnbreytingunni verður öll starfsemi, sem áður var
tengd IMG, undir nafni Capacent ráðgjafar, Capacent ráðninga og
Capacent rannsókna.
Helstu stjórnendur
Forstjóri Capacent International er Skúli Gunnsteinsson en aðrir
stjórnendur móðurfélagsins eru Hrannar Hólm, framkvæmdastjóri
fjárfestingastarfsemi samstæðunnar og viðskiptaþróunar, og Guðlaug
Tómasdóttir fjármálastjóri. Kristján Kristjánsson stjórnarformaður mun
vinna að samþættingu milli landa.
Starfsemin eflist og styrkist
Ragnar segir að tilurð Capacent í Danmörku með kaupum á ráðgjaf-
arhluta KPMG hafi valdið straumhvörfum í starfsemi félagsins. Nýjasta
fyrirtækið í samstæðunni Logistik Gruppen sameinast nú starfseminni
í október nk. en félagið hefur sérhæft sig í vörustjórnun. Nú er unnið
að kaupum á heppilegum einingum fyrir rannsóknar- og ráðning-
arstarfsemina til að styrkja þá starfsemi enn frekar.
Hjá Capacent samstæðunni starfa á þriðja hundrað manns. Á
Íslandi eru starfsmenn rúmlega hundrað, auk um eitt hundrað spyrla
sem vinna í hverjum mánuði í tengslum við Gallup rannsóknirnar. Í
Danmörku starfa um hundrað og tuttugu manns undir stjórn Bjarna
Snæbjörns Jónssonar. „Við teljum að með sókn okkar á erlenda mark-
aði verði félagið sterkari uppspretta þekkingar og um leið áhugaverðari
vinnustaður,“ segir Ragnar.
Áfram öflugasta fyrirtækið
„Hugur er í mönnum og metnaður mikill. Hér á landi ætlum við að efla
og styrkja starfið í heild. Markmiðið er að vera áfram öflugasta fyrirtæki
á Íslandi í ráðgjöf, rannsóknum og ráðningaþjónustu, enda eru kjör-
orð okkar: „árangur á öllum sviðum“,“ segir Ragnar Þórir Guðgeirsson
forstjóri.
Ragnar Þórir Guðgeirsson, forstjóri Capacent á Íslandi.
FV.07.06.indd 90 7.9.2006 12:58:59