Frjáls verslun - 01.07.2006, Blaðsíða 40
40 F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 0 6
D A G B Ó K I N
arra brota er kynnu að vera til
rannsóknar.
Orðalag þessarar tilkynningar
þar sem sagði „að ekki væri
nægilega líklegt að sakfelling
náist“ fór verulega fyrir brjóstið
á Jóni Ásgeiri og verjanda hans
Gesti Jónssyni sem töldu að í
þessu orðalagi fælist ákveðin
sakfelling af hálfu Sigurðar
Tómasar, setts saksóknara.
23. júlí
Bloomberg fjallar
um Björgólf Thor
Umfjöllun um Björgólf Thor er
stöðugt að aukast í þekktum
erlendum fjölmiðlum sem fjalla
um viðskipti. Þessa helgi var
hálftíma viðtals- og heimild-
arþáttur um Björgólf Thor og
alþjóðlega fjárfestingarstarfsemi
hans sýndur á Bloomberg við-
skiptasjónvarpsstöðinni. Vinna
við þáttinn hófst í júní og stóð
yfir í sjö vikur.
27. júlí
Árni nýr
forstjóri Eddu
Tilkynnt að Árni Einarsson væri
nýr forstjóri Eddu útgáfu og hefði
hafið störf. Hann tók við Páli
Braga Kristjónssyni sem lét af
störfum á síðasta aðalfundi. Þótt
Árni hafi síðustu fimm árin ein-
beitt sér að eigin hótelrekstri er
hann öllum hnútum kunnugur í
útgáfu bóka. Hann starfaði meira
en 20 ár hjá Máli og menningu,
fram til ársins 2001, þar af í ell-
efu ár sem framkvæmdastjóri og
sex ár sem sviðsstjóri verslunar-
sviðs.
30. júlí
Coca-Cola verðmæt-
asta vörumerkið
Morgunblaðið sagði frá því að
Coca-Cola væri verðmætasta
vörumerki heims, fimmta árið í
röð, samkvæmt árlegri könnun
alþjóðlegu ráðgjafarstofnunar-
innar Interbrand. Vörumerki
Coca-Cola er metið á 67 millj-
arða dala, sem svarar til 4.900
milljarða króna. Microsoft er í
öðru sæti á listanum, metið á 57
milljarða dala, og IBM er metið
á 56 milljarða dala. Finnski
farsímaframleiðandinn Nokia
komst aftur í hóp 10 verðmæt-
ustu vörumerkjanna, er í 6. sæti
og metinn á 30 milljarða dala.
Tíu verðmætustu vörumerkin:
31. júlí
Tekjublað
Frjálsrar verslunar
Tekjublað Frjálsrar verslunar
kom út þennan dag en í blaðinu
eru birtar tekjur 2.400 þekktra
Íslendinga. Blaðið þykir gott
upplýsingarit um vinnumark-
aðinn og þá ekki síst tekjur
forstjóra stærstu fyrirtækja
landsins, bankamanna, næst-
ráðenda og annarra millistjórn-
enda í stærstu fyrirtækjum
landsins – og fleiri þekktra
manna í atvinnulífinu. Blaðið er
umdeilt og sitt sýnist hverjum
um birtingu þessara upplýsinga
sem unnar eru upp úr álagn-
ingarskrám sem skattstjórar
leggja fram í endaðan júlí.
Óvenjumiklar umræður urðu um
Tekjublaðið að þessu sinni og
vó þar þyngst að Morgunblaðið
fjallaði af miklum þunga um
laun, þróun launa og skattamál
dagana á eftir.
Tekjublað Frjálsrar verslunar.
2. ágúst
Spá minni
hagnaði bankanna
Eftir methagnað bankanna á
fyrri hluta ársins, gáfu fjármála-
sérfræðingar bankanna það út
þennan dag að hagnaður bank-
anna yrði minni á síðari hluta
þessa árs.
Enda má segja að erfitt sé
að toppa fyrri hlutann. Kaupþing
banki, Landsbankinn, Glitnir
og Straumur-Burðarás fjárfest-
ingabanki skiluðu þá samanlagt
92 milljörðum króna hagnaði
eftir skatta – borið saman við 54
milljarða hagnað fyrstu sex mán-
uðina í fyrra.
Bankarnir fjórir högnuðust um
92 milljarða á fyrri hluta ársins.
Það verður erfitt að toppa það.
2. ágúst
Heimsferðir kaupa
stærstu ferðaskrif-
stofu Finnlands
Stækkun Heimsferða undir for-
ystu Andra Más Ingólfssonar,
eiganda og forstjóra félags-
ins, hefur verið með ólíkindum
síðustu árin. Sagt var frá því
þennan dag að Heimsferðir
hefðu keypt stærstu ferðaskrif-
stofukeðju Finnlands, Matka
Vekka Group, og þar með eru
Heimsferðir orðnar fjórða stærsta
ferðaskrifstofa á Norðurlöndum
og er velta þeirra áætluð um 35
milljarðar á þessu ári.
Árið 2005 keyptu Heimsferðir
þrjár norrænar ferðaskrifstofur,
Solresor í Svíþjóð, Solia í Noregi
og Bravo Tours í Danmörku.
Andri Már Ingólfsson.
1. Coca-Cola ..................... 67
2. Microsoft ...................... 57
3. IBM .............................. 56
4. General Electric ............ 48
5. Intel .............................. 32
6. Nokia ............................ 30
7. Toyota .......................... 28
8. Disney .......................... 28
9. McDonald’s .................. 27
10. Mercedes ..................... 22
Milljarðar
dala
FV.07.06.indd 40 7.9.2006 12:53:32