Frjáls verslun - 01.07.2006, Blaðsíða 52
52 F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 0 6
ráku golfverslun í Grafarholti en eftir að sambúðinni
lauk seldu þau reksturinn og héldu hvort í sína áttina.
Jóhanna segir að það hafi aldrei verið takmark hjá sér að
gifta sig og hún á ekki börn.
,,Mér finnst allt of margar konur hafa það að mark-
miði að gifta sig og sinna börnum og búi og gleyma að
hugsa um hvort þær langi ekki til að gera eitthvað annað
áður en heimilishaldið byrjar. Ég hef alltaf haft þörf fyrir
að láta að mér kveða og ég tel að mér farist vel úr hendi
að stjórna. Ég hef yfirleitt skoðanir á hlutunum. Ætli mér
þyki ekki bara gaman að vera í fararbroddi.“
Eftir að Jóhanna útskrifaðist sem þjóðhagfræð-
ingur frá HÍ tók hún sér frí í nokkra mánuði til að
hugsa sinn gang og spila golf. Því næst var hún ráðin
hjá Verðbréfamarkaði Íslandsbanka og starfaði þar til
1993 þegar hún fór til Bandaríkjanna í MBA-nám. Eftir
sex ára dvöl í Bandaríkjunum við nám og störf kom
hún aftur heim og hóf störf hjá FBA fjárfestingabanka.
Þaðan hélt hún til Svíþjóðar og starfaði þar sem fjár-
málastjóri í tvö ár.
Að sögn Jóhönnu fylgdist hún grannt með því sem
var að gerast á Íslandi á meðan hún bjó í Bandaríkjunum
og Svíþjóð og að á þeim tíma segir hún Baug hafa farið
að vekja athygli hennar. ,,Mér fannst það strax mjög
spennandi fyrirtæki og hafði samband við þá einu sinni
þegar ég kom heim til að sjá hvað þeir væru að gera og
nokkrum mánuðum seinna var haft samband við mig frá
Baugi og mér boðið í viðtal í London.”
The Happy Hookers
Gunnar Sigurðsson,
framkvæmdastjóri
fjárfestinga Baugs í
Bretlandi, er mágur
Jóhönnu og þau hafa
unnið hjá sama fyrir-
tæki. „Jóhanna hefur
mjög gaman af því
að spila golf. Hún er
góður golfari og hefur
unnið til fjölda verðlauna. Við vorum bæði í
Golfklúbbi Reykjavíkur og þannig kynntist ég
henni og síðar Jónínu systur hennar. Jóhanna
er hreint út sagt frábær manneskja. Í einka-
lífinu er hún bæði áreiðanleg og skemmtileg
og gott að hafa hana í kringum sig og henni
þykir gaman að lifa lífinu. Þegar kemur að
vinnu er Jóhanna metnaðarfull og fylgin sér,
frábær starfskraftur og fær í því sem hún
gerir.“
Að sögn Gunnars er Jóhanna mikil
keppnismanneskja í golfi. „Jónína, konan
mín, var viðstödd þegar Jóhanna fór holu í
höggi með eftirminnilegum hætti í golfferð
á Spáni. Hún sló gríðarlega fallegt högg og
kúlan fór inn á flötina og hvarf svo og það
varð allt brjálað á teignum og Jóhanna varð
að splæsa drykkjum allt kvöldið þannig að
þetta var dýrt högg. Jóhanna er mikil útivist-
armanneskja og tekur líkamsrækt alvarlega.
Hún er í veiðihópi með nokkrum stelpum
sem kalla sig The Happy Hookers og veiðir
lax reglulega með þeim. Jóhanna hefur líka
gaman af því að hjóla og fór einu sinni í viku
hjólreiðatúr til Ítalíu. Það lýsir kannski keppn-
isskapinu í henni ágætlega að á morgana var
hún svo sár á rassinum að hún varð að sitja
á hnakknum í nokkrar mínútur til að láta sitj-
andann dofna áður en hún gat lagt af stað.
Hún á það líka til að taka líkamsræktina með
miklum krafti og þá er hún ekkert að hanga
yfir hlutunum. Það er ráðist í verkið, mat-
aræðið er tekið í gegn og hún mætir í rækt-
ina einu sinni á dag sjö daga vikunnar.“
Strákastelpa og diskódís
Hauður Helga
Stefánsdóttir, fjár-
málastjóra Flotmúrs
ehf., kynntist Jóhönnu
í Verslunarskóla
Íslands og hefur þekkt
hana tvo þriðju af
ævinni eins og hún
orðar það sjálf. „Við
kynntumst snemma í
skólanum og urðum strax vinkonur og ásamt
Jónínu vorum við þríeyki. Hún er mjög trygg
vinkona og við höfum aldrei misst tengslin
þrátt fyrir að hún hafi verið erlendis og glímt
við erfið og metnaðarfull verkefni. Mér finnst
alltaf eins og við höfum talast við í gær þó
að stundum hafi liðið margir mánuðir sem við
höfum ekki heyrt frá hvor annarri.
Jóhönnu er margt til lista lagt og fátt sem
vex henni í augum og hún er snillingur í að
finna lausnir. Á þeim tíma sem við vorum að
alast upp var mjög sjaldgæft að konur væru í
stjórnunarstörfum og því lítið um fyrirmyndir
hvað það varðar. Jóhanna setti snemma
markið hátt og var ákveðin í að ná árangri.
Að loknu stúdentspróf vorum við báðar tví-
stígandi um hvað við vildum gera en hófum
nám við Kennaraháskólann. Eftir tvær vikur í
Kennó sagði Jóhanna að námið væri ekki fyrir
sig. Ekkert nema þema og sálfræði en engin
stærðfræði eða vinna með tölur og hún hætti.
Að kvöldi dagsins sem hún hætti í Kennó
kom hún í heimsókn og sat við eldhúsborðið
ásamt fósturföður mínum. Hann spurði hvers
vegna hún væri að hætta og hvað hún ætl-
aði sér að gera í staðinn. Hún horfði á hann
alvarleg í bragði og sagði að hún ætlaði að
verða framkvæmdastjóri eins og hann. Ég
man að okkur þótti þetta rosalega fyndið, við
sprungum öll úr hlátri. Við vorum bara tuttugu
og eins árs og Jóhanna var búin að ákveða
að verða framkvæmdarstjóri. Þetta var alveg
absúrd en hún var búin að setja sér markmið
og vann eftir því. Jóhanna er mjög skiplögð
fjárhagslega og vill aldrei skulda neinum
neitt. Hún var til dæmis búin að kaupa sér
íbúð langt á undan vinkonum sínum og áður
en hún hóf nám við Háskóla Íslands.
Jóhanna hefur mjög gaman af tónlist og
hefur alltaf átt góð hljómflutningstæki. Hún
spilar á gítar og söng sig inn í hjörtu skóla-
N Æ R M Y N D A F J Ó H Ö N N U W A A G F J Ö R Ð
S
A
G
T
U
M
J
Ó
H
Ö
N
N
U
:
Gunnar
Sigurðsson.
Hauður Helga
Stefánsdóttir.
FV.07.06.indd 52 7.9.2006 12:54:47