Frjáls verslun - 01.07.2006, Blaðsíða 82
82 F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 0 6
K
Y
N
N
IN
G
HAUSTIÐ ER TÍMINN
Í tæpan áratug hafa flugfarþegar á leið um Flug-stöð Leifs Eiríkssonar verslað í Saga Boutique, verslun Icelandair í Flugstöðinni. Verslunin var
opnuð þar á nýjum stað í júlí og er hún nú orðin
sannkölluð glæsiverslun sem býður viðskiptavinum
hágæða tískuvörur frá Boss, Burberry, Sand, Wol-
ford, Lloyd og Longchamp. Ferðalangurinn getur
fatað sig upp í flugstöðinni og mætt á fundi eða hvað
annað í nýjum fatnaði frá toppi til táar og með við-
eigandi fylgihluti, allt frá Saga Boutique.
Ragnhildur Gunnarsdóttir er forstöðumaður
Saga Boutique hjá Icelandair en Guðrún Skúladóttir
er verslunarstjóri í Leifsstöð. Þær segja að nýja versl-
unin byggi á sama grunni og sú eldri en hún sé bæði stærri og vöruúr-
valið miklu fjölbreyttara en áður, t.d. hafi bæst við herralína frá Sand
og dömulína frá Boss. Nýjasta merkið í Saga Boutique er Wolford frá
Austurríki. Í því má fá undirfatnað og sokkabuxur. Auk
þessa er rétt að minna á að Burberry fæst hvergi á Íslandi
nema í Saga Boutique.
Viðtökurnar mjög góðar
„Nýja verslunin hefur fengið mjög góðar viðtökur en
hún var opnuð 14. júlí sl. Við sjáum þegar að veruleg
aukning hefur orðið í sölunni, enda er verslunin bæði
stærri og vöruúrvalið meira. Vissulega hafa Íslendingar
verið okkar helstu viðskiptavinir fram til þessa en þetta
er að breytast kannski vegna þess að verslunin er orðin
meira áberandi en hún var áður og býður viðskiptavin-
ina, íslenska jafnt sem erlenda, velkomna um leið og þeir
koma auga á hana.“
Yfirbragð Saga Boutique er bjart og glæsilegt
og innréttingarnar vekja athygli. Ragnhildur segir
að erlendu fyrirtækin hafi sjálf hannað sín svæði
en Arkitektar Skógarhlíð ehf. hafi síðan séð um að
samhæfa útlit verslunarinnar. Menn eru sammála
um að mjög vel hafi tekist til og góð heildarmynd
hafi náðst og hvert merki njóti sín vel.
Saga Boutique stækkaði úr 60 fermetrum í 214
og Guðrún verslunarstjóri segir að aðstaða sé öll
miklu betri og þar með þjónustan við fólkið, sem
hafi nú úr miklu meiru að velja í versluninni en
áður. Þar vinna níu starfsmenn en þrír eru á Saga
Boutique skrifstofunni hjá Icelandair í Reykjavík en
deildin annast einnig sölu um borð í vélum Icelandair.
Verslunin í Leifsstöð er opin frá klukkan hálf sex á morngana til
hálfsex síðdegis, en lengur ef brottfarir eru á kvöldin.
Í Saga Boutique fást mjög
góðar vörur og verðið er
gott. Allar vörur án
virðisaukaskatts þannig
að þær eru allt að 20%
ódýrari en annars staðar
auk þess sem þær fást oft
ekki annars staðar hér-
lendis. Að sjálfsögðu
fá viðskiptavinir
vildarpunkta fyrir
viðskiptin.
Saga Boutique í Leifsstöð:
Glæsiverslun Saga Boutique
Guðrún Skúladóttir
verslunarstjóri, Lilja
Friðriksdóttir, Emilía
Jónsdóttir og Helga
Sigurðardóttir
í Saga Boutique.
ÍS
LE
N
S
K
A
A
U
G
LÝ
S
IN
G
A
S
TO
FA
N
/S
IA
.I
S
I
C
E
3
37
9
3
0
8
/2
0
0
6
NÝ OG GLÆSILEGRI SAGA BOUTIQUE
VERSLUN Í FLUGSTÖÐ LEIFS EIRÍKSSONAR
Saga BoutiqueSafnaðuVildarpunktum
Við bjóðum gott úrval af heimsþekktum vörumerkjum, vandaðan
herra- og dömufatnað, skó, belti, veski og fleiri fylgihluti.
Allar vörur eru toll- og skattfrjálsar og verðið er lægra en smásölu-
verð í flestum Evrópulöndum.
Saga Boutique í nýju húsnæði í Flugstöðinni.
FV.07.06.indd 82 7.9.2006 12:57:45