Frjáls verslun - 01.07.2006, Side 26
26 F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 0 6
FORSÍÐUEFNI
um helmingaskiptareglu sem byggðist á því að áður fyrr skiptu
einkafyrirtækin og kaupfélögin með sér innflutningsleyfum, þegar
haftastefna réði ríkjum. Illu heilli stigu menn ekki það skref að
opna hagkerfið til fulls á viðreisnarárunum, það gerðist ekki fyrr
en með EES-samningnum og í millitíðinni höfðum við fengið
tvo áratugi sem einkenndust af óðaverðbólgu og allsherjarrugli í
íslensku hagkerfi.“
Gerendurnir eru fleiri en áður
- Kolkrabbanum var í raun skipt upp á
milli manna. Hver voru áhrifin af umskipt-
unum og hafa í raun ekki nýjar valda-
blokkir tekið við af þeim gömlu?
„Örugglega tóku nýjar valdablokkir við í ein-
hverju tilliti, ef við skilgreinum þá sem nú eru
umsvifamestir sem blokkir. Hannes Smárason,
Karl Wernersson, Bakkavararbræður, Saxhóls-
menn, Gylfi og Gunnar, Baugsfeðgar, Jón Helgi
í Norvik, Engeyingar, Ólafur Ólafsson, þessir
aðilar eiga samstarf í ákveðnum verkefnum og sumir standa einir
og sér. Það er þó ljóst að gerendurnir í íslensku atvinnulífi eru
miklu fleiri en áður var.“
- Þú gagnrýndir Flugleiðir á árum áður fyrir einokun í
flugi til og frá landinu og í kringum 1990 undirbjóst þú
stofnun nýs flugfélags, Ísflugs. Hver var meginþunginn
í gagnrýni þinni á Flugleiðir – og hve langt náðu bolla-
leggingar um Ísflug?
„Á sínum tíma var samkeppnin í flutningum til og frá landinu
milli Eimskips og Hafskips og í fluginu kepptu Flugleiðir við Arn-
arflug. Að nokkru leyti voru sömu hluthafar hver í sinni fylkingu.
Á sínum tíma áttum við hlut í Hafskip, en tókum ekki þátt í hluta-
fjáraukningu sem félagið efndi til vegna útrásar þess í siglingum
á Norður-Atlantshafi. Ég hafði aldrei trú á þeim fyrirætlunum.
Hvað flugið varðar fannst mér mikilvægt að einhver samkeppni
væri til staðar þegar Arnarflug hætti starfsemi
og því fór ég með fleirum í söfnun hlutafjár
vegna Ísflugs. Þeirri vinnu var lokið þegar Stein-
grímur J. Sigfússon samgönguráðherra ákvað
að endurúthluta flugleyfinu til Amsterdam til
Flugleiða en ekki Ísflugs, eins og við höfðum
vænst. Það var því sjálfhætt, enda deilir enginn
við dómarann,“ segir Víglundur og bætir við að
nú á dögum séu allar aðstæður í flugi aðrar. Öll
sérleyfi hafa verið afnumin, samkeppni aukist
og markaðurinn stækkað. Icelandair sé í dag
fyrirtæki í fremstu röð og sú flugþjónusta sem
Íslendingar njóti sé í raun margfalt betri en vænta megi.
Evrópuævintýrið endaði út í mýri
Víglundur Þorsteinsson var um alllangt skeið formaður Félags
íslenskra iðnrekenda og kom sem slíkur að umræðunni um aðild
Íslands að EES, sem félagið barðist mjög fyrir. Hann bendir á að
upphaflega hafi öll aðildarríki EFTA stefnt að inngöngu í EES, en á
lokasprettinum hafi flest þeirra helst úr lestinni. Því hafi ríkin sem
eiga aðild að EES ekki orðið jafnmörg og í fyrstu var útlit fyrir.
„Skriflegar og leynilegar
kosningar eru bestar fyrir
stjórnandann, þá veit
hann nákvæmlega hvar
og hvernig hann stendur
á hverjum tíma. Hefur
miklu skýrara umboð frá
hluthöfunum en ella.“
„VÍG-LUNDAÐUR“
Björgólfur Thor Björgólfsson stjórnarformaður Straums-
Burðaráss gagnrýnir Víglund Þorsteinsson harðlega í
yfirgripsmiklu viðtal við Morgunblaðið þann 27. ágúst og
þá sérstaklega framgöngu hans á hluthafafundi Straums-
Burðaráss. „Hann vildi ræða mál sem ekki voru á boðaðri
dagskrá,“ segir Björgólfur Thor sem kveðst hafa verið vel
undirbúinn að ræða mál félagsins. Skv. auglýstri dagskrá
hafi ekki verið gert ráð fyrir öðru á fundinum en stjórn-
arkjöri.
„Víglundur Þorsteinsson er maður sem ég hef aldrei
talað við og þekki aðeins af afspurn. Fyrrum stjórnarmenn
og starfsmenn Íslandsbanka segjast ekki alltaf vita hvaða
hagsmunum hann berjist fyrir og hafa sagt mér að honum
fylgi oft þrætur og erjur. Hann er greinilega víg-lundaður bar-
áttumaður, - en spurningin er, baráttumaður fyrir hverju og
hverja?” segir Björgólfur Thor í viðtalinu í Morgunblaðinu.
Björgólfur Thor Björgólfsson, stjórnarformaður Straums-
Burðaráss fjárfestingarbanka.
FV.07.06.indd 26 7.9.2006 12:51:54