Frjáls verslun - 01.07.2006, Síða 33
F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 0 6 33
FORSÍÐUEFNI
Sjóður 9 fjárfestir aðallega í ríkisverðbréfum, bankavíxlum, innlánum og stuttum
skulda- bréfum. Hann sveiflast mjög lítið og hentar því sérlega vel fyrir skammtíma-
ávöxtun og fyrir þá sem vilja hafa greiðan aðgang að sparifé sínu.
KOSTIR VERÐBRÉFASJÓÐA GLITNIS:
• Mikil áhættudreifing og góð ávöxtun
• Eignastýring í höndum sérfræðinga
• Ávallt innleysanlegir
Þú getur fjárfest í áskrift eða keypt fyrir staka upphæð. Farðu á www.glitnir.is og kláraðu málið.
Sjóður 9 er fjárfestingarsjóður skv. lögum nr. 30/2003 um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði. Rekstrarfélag sjóðsins er Glitnir Sjóðir hf. Útboðs-
lýsingu og útdrátt úr útboðslýsingum má nálgast í útibúum Glitnis eða á www.glitnir.is/sjodir.
*Ávöxtun í fortíð er ekki ávísun á ávöxtun í framtíð
13,7%
Nafnávöxtun í júlí 2006: 13,7% á ársgrundvelli.*
SJÓÐUR 9
MEÐ BESTU ÁVÖXTUN
PENINGAMARKAÐSSJÓÐA
Á ÍSLANDI Í JÚLÍ
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
6
20
8
„Ég tel mig tiltölulega mildan stjórnanda. Við höfum verið heppnir
með starfsfólk og haldist vel á því, hér starfar stór og öflugur hópur
fólks með mikla reynslu. Sú sem hefur hér lengstan starfsaldur hóf
störf 1957,“ segir Þorsteinn sem byrjaði sjálfur hjá BM-Vallá sem
þrettán ára gamall sumarstrákur. „Slíkt væri
sjálfsagt kolólöglegt samkvæmt vinnutilskip-
unum dagsins í dag. Ég tel mig þó ekki hafa
borið neinn skaða af því að hafa byrjað svo
ungur að vinna hér, raunar þvert á móti. Starfs-
reynsla frá unglingsárunum kom sér til dæmis
mjög vel þegar ég settist í forstjórastólinn.“
„Ég villtist inn í viðskipalífið“
Þorsteinn Víglundsson er fæddur árið 1969.
Eftir stúdentspróf nam hann stjórnmálafræði
við Háskóla Íslands, sem hann taldi góðan bak-
grunn fyrir draumastarfið; blaðamennsku. „Ég
ætlaði mér alltaf í blaðamennsku. Þar hafði ég
móður mína Sigurveigu Jónsdóttur sem fyrirmynd, jafnframt því
að fréttaáhugi á heimili foreldra minna var afar mikill. Ég var ráð-
inn á Moggann 1995 og var settur í viðskiptafréttirnar og kunni því
afar vel. Moggaárin voru góður skóli,“ segir Þorsteinn. Hann var á
fréttavakinni í þrjú ár, en árið 1998 réðst hann til Kaupþings, var
fyrst forstöðumaður greiningardeildar en starfaði síðan í tvö ár á
vegum bankans í Lúxemborg. Eftir það snéri hann til starfa í fjöl-
skyldufyrirtækinu og gerðist forstjóri. „Ég hef stundum sagst hafa
villst inn í viðskiptalífið.“
Feðgarnir í BM-Vallá starfa náið saman. En
eru viðhorf þeirra til mála í viðskiptalífinu hin
sömu, er Þorsteinn sammála þeim gagnrýnu
sjónarmiðum sem Víglundur faðir hans segir svo
óhikað?
„Við feðgarnir erum ekki alltaf sammála, en
oft fara skoðanir þó saman,“ segir Þorsteinn.
„Ég hef starfað í greiningardeild fjármálafyr-
irtækis og almennt finnst mér viðskiptalífið hér
á landi viðkvæmt fyrir aðfinnslum. Helst er
tekið mark á gagnrýni ef hún kemur erlendis frá.
Menn tóku skilaboðin frá Fitch og Den Danske
Bank sl. vor óstinnt upp, en síðustu mánuði
hafa íslensku bankarnir hins vegar verið á fullu
við að breyta starfsháttum sínum í átt að því sem þessir aðilar
reifuðu. Viðkvæmnina tel ég annars hluta af þroskaferli íslensks
verðbréfamarkaðar, sem er rétt kominn yfir fyrsta áratuginn.
Þegar fram líða stundir læra menn að taka gagnrýnni umræðu sem
sjálfsögðum hlut.“
„Ég tel mig tiltölulega
mildan stjórnanda. Við
höfum verið heppnir með
starfsfólk og haldist vel
á því, hér starfar stór
og öflugur hópur fólks
með mikla reynslu. Sú
sem hefur hér lengstan
starfsaldur hóf störf 1957.“
FV.07.06.indd 33 7.9.2006 12:52:46