Frjáls verslun - 01.07.2006, Qupperneq 41
F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 0 6 41
D A G B Ó K I N
Hreiðar Már Sigurðsson,
forstjóri Kaupþings banka.
2. ágúst
KB banki
selur í Exista
Sagt var frá því að Kaupþing
banki hefði selt 6,1% hlutafjár í
Exista til 9 íslenskra lífeyrissjóða
og ætti eftir viðskiptin um 14,8%
í Exista. Til stendur að skrá
Exista í Kauphöllina á Íslandi
um miðjan þennan mánuð, sept-
ember, og verður félagið með
næstmest eigið fé allra íslenskra
fyrirtækja á markaðnum þegar
það verður skráð.
Bankinn innleysir um 5,7 millj-
arða hagnað af sölunni á þriðja
ársfjórðungi.
Í tilkynningu frá KB banka
sagði að stefnt sé að því að
selja af hlutafé bankans í Exista
til fagfjárfesta í tengslum við
skráningu Exista í Kauphöll
Íslands og að helmingi þeirra
hluta sem voru í eigu bankans
fyrir þau viðskipti verði úthlutað
til hluthafa í formi arðgreiðslna.
Öll þessi viðskipti eru liður í
því að bankinn eigi óverulegan
hlut í Exista og slíti þannig
á þau krosseignatengsl sem
erlend greiningarfyrirtæki gagn-
rýndu hann m.a. fyrir í „svörtum
skýrslum“ fyrri hluta ársins.
7. ágúst
Marel kaupir
Scanvægt
á 10 milljarða
Sagt var frá því að Marel hefði
keypt allt hlutafé í einum af
keppinautum sínum, danska
matvælavélaframleiðandanum
Scanvægt International, fyrir um
109 milljónir evra, sem svarar til
um 10 milljarða króna.
Helstu áhrifin af kaupunum
eru þau að velta Marel-samstæð-
unnar mun ríf-
lega tvöfaldast
á þessu ári,
2006, en áður
hafði Marel
keypt breska
fyrirtækið AEW
Delford.
Marel og
Scanvægt eru
bæði í fararbroddi í framleiðslu
voga, flokkara, úrbeiningar- og
snyrtiflæðilína, tölvustýrðra
skurðarvéla og öflugs hugbún-
aðar til framleiðslustýringar í
matvælaiðnaði.
Fyrirtækin tvö munu starfa
áfram á markaði sem tvær
aðskildar rekstrareiningar með
sín eigin vörumerki.
Lárus Ásgeirsson, fram-
kvæmdastjóri sölu- og mark-
aðssviðs Marel, mun leiða
starfsemi Scanvægt, ásamt
Erik Steffensen núverandi fram-
kvæmdastjóra.
Seljandi Scanvægt, Lars
Grundtvig og fjölskylda hans,
eignast með þessum viðskiptum
18% hlut í Marel og verða þriðji
stærsti hluthafi fyrirtækisins.
Hjá Marel samstæðunni
starfa nú yfir 2.000 starfsmenn,
þar af um 350 á Íslandi, um 795
í Danmörku, 380 í Bretlandi, auk
starfsmanna á yfir 30 söluskrif-
stofum víða um heim.
9. ágúst
Um 2.200
framteljendur
eingöngu með
fjármagnstekjur
Í þeim miklu umræðum, sem
urðu um launamál forstjóra
og fjármagnstekjur í kjölfar
Tekjublaðs Frjálsrar verslunar,
birti Morgunblaðið afar merki-
lega frétt um að nær 2.200
framteljendur á Íslandi, einstakl-
ingar og samskattað sambúð-
arfólk og hjón, hefðu eingöngu
fjármagnstekjur. Embætti rík-
isskattstjóra vann þessar tölur
fyrir Morgunblaðið.
Þá kom fram í fréttinni að
rúmlega 6.600 framteljendur, 4%
allra sem töldu fram, hefðu haft
hærri fjármagnstekjur en launa-
tekjur á síðasta ári – og hefði
þeim, sem væru í þessari stöðu,
fjölgað um rúmlega 1.660 frá
árinu 2000.
Áréttað skal að þeir ein-
staklingar, sem hafa eingöngu
fjármagnstekjur og engar
aðrar tekjur og lifa af fjármála-
starfsemi, greiða 10% fjármagns-
tekjuskatt af sinni innkomu, en
þeir sem hafa launatekjur greiða
36,72% í tekjuskatt og útsvar.
9. ágúst
9 þúsund hjón með
að jafnaði 6 milljónir
í tekjur af sölu
hlutabréfa
Gluggum frekar í viðtal
Morgunblaðsins við Indriða H.
Þorláksson ríkisskattstjóra. Þar
kemur fram að fjármagnstekjur á
Íslandi í fyrra voru 120 milljarðar
króna og að meira en helmingur
af þessum fjármagnstekjum
er hagn-
aður af sölu
hlutabréfa og
fimmtungur
er arður af
hlutabréfum.
Að sögn
Indriða höfðu
rúmlega níu
þúsund fjöl-
skyldur tekjur af sölu hlutabréfa
á síðasta ári, varlega áætlað
um 6 milljónir króna á hverja
af þessum fjölskyldum að með-
altali, þó ólíklegt sé að þessum
gæðum sé jafnt skipt. Um 40
þúsund fjölskyldur höfðu arð af
eign slíkra bréfa.
9. ágúst
Tæplega 26
þúsund
einkahlutafélög
Enn vísum við í umrætt viðtal við
Indriða í Morgunblaðinu. Fram
kemur að sprenging hafi orðið í
fjölda einkahlutafélaga. Núna eru
tæplega 26 þúsund einkahluta-
félög skráð hjá ríkisskattstjóra
en í fyrra voru þau rúmlega 22
þúsund og um 20 þúsund árið
2004.
Stærstur hluti þessara einka-
hlutafélaga er stofnaður utan
um rekstur einyrkja. Þeir stofna
félögin utan um tekjurnar sem
þeir vinna sér inn. Það eru
einkum iðnaðarmenn, tann-
læknar, læknar, lögfræðingar
og þeir sem standa í fjármála-
starfsemi sem stofna félög utan
um sjálfa sig.
Fram kemur að aukinn fjöldi
einstaklinga, sem hafa eingöngu
fjármagnstekjur eða hafa stofnað
einkahlutafélög um sinn rekstur
og greiða frekar fjármagnstekju-
skatt en tekjuskatt og útsvar,
skapar ákveðið ójafnvægi hjá
sveitarfélögunum og er áætlað
Indriði H.
Þorláksson.
Hörður
Arnarson,
forstjóri Marels.
FV.07.06.indd 41 7.9.2006 12:53:40